Dagblaðið - 24.09.1981, Qupperneq 8
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1981.
Hörð valdabarátta í Finnlandi:
KOIVISTO STYRKIR STODU
SÍNA í FORSETASLAGNUM
— íslandsferðin reyndist Kekkonen um megn
Hér í Svíþjóð fylgjast menn af
miklum áhuga með framgangi mála á
pólitíska sviðinu i Finnlandi. Sjúk-
dómur Kekkonens forseta hefur
valdið mikilli spennu þar í landi.
Hversu sjúkur er forsetinn? spyrja
menn. Verður hann fær um að gegna
starfi sínu á nýjan leik? Margir
stjórnmálamenn í Finnlandi eru
þegar teknir að búa sig undir forseta-
kosningar og eru sterkar líkur taldar
á að þær verði þegar í vetur.
í tilkynningum læknanna er annast
Kekkonen segir að líðan forsetans sé
óbreytt. En 15. september kom það í
fyrsta sinn fram, að hinn 81 árs gamli
forseti þjáist af stíflu í blóðrennsli til
heilans. Þetta veldur því að forsetinn
tapar minni af og til. Kekkonen fer
daglega í stuttar gönguferðir en er að
öðru leyti rúmfastur.
Stjórnarkreppan
afleiðing átaka
bak við tjöldin
Enn er ekki rætt opinberlega í
Finnlandi hvað muni henda þegar
Kekkonen er allur. Hér í Svíþjóð eru
fjölmiðlar hins vegar ófeimnir við að
velta því fyrir sér. Hér sýnist mönn-
um augljóst, að atburðarásin í Finn-
landi að undanförnu hafi orðið til að
styrkja stöðu Mauno Koivisto for-
sætisráðherra, sem fer með völd
forsetans á meðan Kekkonen er
veikur. Svipuð staða kom síðast upp í
Finnlandi skömmu eftir stríð, þegar
J. K. Paasikivi forsætisráðherra
gegndi störfum forsetans um hríð er
Mannerheim marskálkur veiktist.
Sú stjórnarkreppa sem var í Finn-
landi þar til Kekkonen veiktist er
beinlinis talin hafa átt rætur sínar að
rekja til þeirrar baráttu, sem háð er
bak við tjöldin um forsetaembættið.
Samsæri
Miðflokksins
Miðflokkurinn, með flokksfor-
manninn og utanríkisráðherrann
Paavo Váyrynen í broddi fylkingar,
reyndi að bola Koivisto frá völdum í
þeim tilgangi að koma einhverjum úr
borgaraflokkunum (helzt Miðflokkn-
Upphaf erfiðleikanna? Kekkonen Finnlandsforseti á Reykjavíkurflugvelli i fyrra
mánuði þegar hann kom i sína árlegu veiðiferð. Hér heilsar hann Ólafi Jóhannes-
syni utanríkisráðherra. Mynd: Arnarflug
forsetans. Hefði Koivisto verið
þvingaður til að segja af sér, hefði
landið verið án „forseta”. Vayrynen
var því tilneyddur að gefa sig og fjár-
lagafrumvarpið var lagt fram.
Koivisto skyldi
aftur íbankann
Hörð barátta á stjórnmálasviðinu í
Finnlandi er ekkert nýtt. Hins vegar
hefur Váyrynen þótt hafa teflt óvenju
djarft og opinskátt valdatafl að þessu
sinni.
Ætlun hans var að bola hinum vin-
sæla Koivisto forsætisráðherra frá
völdum og koma honum úr sviðs-
ljósinu. Koivisto átti, ef áætlun
Váyrynens hefði heppnazt, að verða
aðalbankastjóri Finnlandsbanka á
nýjan leik. Miðflokkurinn ætlaði sér
að komast yfir forsætisráðherra-
embættið, annað hvort með aðstoð
stjórnarandstöðunnar eða með
nýjum kosningum; þannig reyndi
flokkurinn á ýmsan hátt að auka vin-
sældir sínar meðal kjósenda á
kostnað hinna stjórnarflokkanna.
Samsæri flokksins gegn Koivisto
þykir hins vegar líklegra til þess að
draga úr vinsældum flokksins fremur
en hitt.
Drykkfelldur
ökumaður
frambjóðandi
Miðflokksins
Kekkonen á göngu 1 nágrenni forsetabústaðarins 1 fylgd með tveimur Ilfvörðum.
—
Það háir Miðflokknum líka í for-
setaslagnum, að flokkurinn hefur
ekki yfir að ráða neinum öruggum
forsetaframbjóðanda. I sumar hefur
helzt verið rætt um gömlu kempuna
Ahti Karjalainen, sem nú gegnir fyrra
starfi Koivistos i Finnlandsbanka.
Hann hefur þó aldrei notið mjög
almennra vinsælda og á við persónu-
leg vandamál að stríða. Þannig hefur
hann margsinnis verið dæmdur fyrir I
ölvun við akstur. Váyrynen þykir of
ungur og óreyndur til að koma til
greina þótt fullvíst sé talið að ekki
vanti hann metnaðinn.
Sigurvegarinn í stríðinu um fjár-
lagafrumvarpið er án alls efa Koi-
visto forsætisráðherra. Hann hefur
tvívegis á hálfu ári sýnt og sannað, að
menn bola honum ekki af stjórn-
málasviðinu þegar þeim sýnist. Hann
hefur þótt sýna mikla stjórnvizku og
hógvær framkoma hans hefur aukið
á vinsældir hans. Myndir í fjölmiðl-
um hafa sýnt hann á skyrtunni með
hönd undir kinn, þar sem hann
hlustar þolinmóður á samráðherra
sína rífast. En þegar fréttist af veik-
indum forsetans (10. september)
reyndist Koivisto hafa til að bera
næga festu til að knýja fram fjárlaga-
frumvarpið.
Meirihlutafylgi skv.
skoðanakönnunum
Koivisto öðlast nú reynslu af for-
setaenibættinu og þjóðin venst við
hann í hlutverki forsetans. Það kann
að reynast honum dýrmætt þegar
kemur að forsetakosningunum.
Skoðanakannanir sýna, að meiri-
hluti finnsku þjóðarinnar vill að Koi-
visto taki við af Kekkonen sem
forseti landsins.
Að lokum má geta þess, að það
hefur komið fram í fjölmiðlum hér,
að læknar muni hafa ráðið Kekkonen
frá því að fara í árlega veiðiferð sína
til íslands í síðasta mánuði. í kjölfar
þeirrar ferðar hafi forsetinn fengið
hita og öndunarerfiðleika. Þau
veikindi hafi síðan magnast svo, að
hann varð að taka sér frí frá störfum.
Þó Kekkonen sjálfur hafi ekki
kosið að Koivisto tæki við af
honum, þá virðist augljóst að
Kekkonen hafi nú með veikindum
sínum styrkt mjög stöðu Koivistos í
forsetaslagnum.
•GAJ, Lundi.
Eino Uusitalo, varaformaður Mið-
flokksins tók við ráðherraembætti
vegna sjúkleika Kekkonens.
um) í embætti forsætisráðherra fyrir
forsetakosningarnar.
Veikindi Uhro Kekkonens komu
nokkrum dögum of snemma fyrir
Miðflokkinn. Veikindi forsetans
urðu beinlínis til þess að Koivisto
tókst að knýja fram hið umdeilda
fjárlagafrumvarp og halda stjórninni
saman.
Þetta er í annað skiptið í ár, sem
Koivisto tekst naumlega að bjarga
stjórninni frá falli. Það var líka
Váyrynen utanríkisráðherra, sem
stóð bak við fyrra tilræðið við ríkis-
stjórnina sl. vor. Það var einnig talið
liður í slagnum um forsetaembættið.
Stjórnarflokkarnir höfðu hinn 3.
september í öllum aðalatriðum
komið sér saman um breytingar á
fjárlagafrumvarpi því, sem fjármála-
ráðherrann Ahti Pekkala (Mið-
flokknum) hafði lagt fram. En þá
kom Váyrynen, formaður Mið-
flokksins, heirn frá norrænum ráð-
herrafundi í Kaupmannahöfn. Hann
greip þegar fram fyrir hendurnar á
flokksbróður sínum, fjármálaráð-
herranum, og neitaði fyrir hönd
flokks síns að fallast á frumvarpið.
Stjórnarkreppa var skollin á.
Deilurnar um fjárlagafrumvarpið
þróuðust síðan út í mikið taugastríð á
milli Koivistos og Miðflokksins.
Váyrynen krafðist þess að Koivisto
segði af sér þar sem samstaða væri
ekki lengur fyrir hendi með stjórnar-
flokkunum.
.. hver hefur traust
þingsins... "
Koivisto hélt því á móti fram, að
fyrri ríkisstjórnir í Finnlandi hefðu
Mauno Koivisto, forsætisráðherra
Finnlands og „varaforseti” i veikind-
um Kekkonens, þykir hafa mesta
möguleika á að verða næsti forseti
landsins.
skrifarfrá Lundi
Svíþjóð
verið allt of bráðar á sér þegar um af-
sögn hefði verið að ræða. „Fyrst
verður að vera ljóst hver það er sem
ætlar að yfirgefa ríkisstjórnina og
síðan er að sjá hver hefur traust
þingsins,” sagði hann. Ljóst var, að
Koivisto naut trausts allra stjórnar-
flokkanna nema Miðflokksins (þ.e.
eigin flokks, sósíaldemókrata,
kommúnista og Sænska þjóðar-
flokksins, auk Rekola viðskiptaráð-
herra, sem er óflokksbundinn).
Koivisto vildi ekki leysa upp
stjórnina fyrr en þingið væri komið
úr sumarfríi (25. september). Hann
taldi að betra væri að leggja fram
fjárlagafrumvarp, sem ekki væri
samstaða um, heldur en að leggja
ekki fram neitt frumvarp. Til þess
þurfti hann þó stuðning fjármálaráð-
herrans, sem hafði látið undan vilja
flokksformanns síns, utanríkisráð-
herrans.
Þegar hér var komið sögu kom til-
kynningin um veikindi forsetans og
að hann hefði að læknisráði ákveðið
að taka sér frí frá störfum í einn
mánuð. Þegar þannig er ástatt á for-
sætisráðherrann að taka við störfum
Erlent
Erlent
Erfent
Erlent