Dagblaðið - 24.09.1981, Síða 9
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1981.
I
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
D
Rauðsokkur
í Londort:
í heilögu
stríði við
sokka-
buxna-
fram-
leiðendur
Rauðsokkur í London hafa nú sagt
neðanjarðarlestum borgarinnar og hin-
um rauðu, tveggja hæða strætisvögn-
um heilagt stríð á hendur. Ástæðan er
auglýsing sem er á vögnunum og á bið-
stöðum neðanjarðarlestarinnar, og er
fyrir ákveðna tegund sokkabuxna.
Rauðsokkurnar segja auglýsinguna
niðurlægjandi fyrir konu og sýni einu
sinni enn karlpungshátt sterkara kyns-
ins.
Rauðsokkurnar hafa áður mótmælt
auglýsingu fyrir kvikmynd sem þær
sögðu niðurlægja konur. Að mati
þeirra á ekki að líðast að sams konar
auglýsingar séu á strætisvögnum og á
biðstöðum lestanna. Því hafa þær snú-
ið sér til sokkabuxnaframleiðandans og
krafizt þess að hann hætti að auglýsa
vöru sína á þennan hátt. Einkanlega
mun rauðsokkunum vera uppsigað við
auglýsingu þar sem sjást fagrir fótleggir
í sokkabuxunum og við hliðina segir
„Þær eru allar yndislegar innst inni.”
Framleiðandinn segir hins vegar að
hér sé um nýja vöru að ræða og því
þurfi að kynna hugsanlegum kaupend-
um kosti hennar og gæði.
Gianna Rolandi hefur sett stefnuna á toppinn:
Verður hún bezta sópran-
söngkona Bandaríkjanna
eftir nokkur ár?
Eftir að Beverly Sills hætti að syngja
með New York City óperunni hafa
gagnrýnendur og aðrir áhugamenn leit-
að með logandi ljósi að líklegum eftir-
manni hennar. Sú sem nú er talin lík-
legust til að erfa sæmdarheitið, bezta
sópran-söngkona Bandaríkjanna,
eftir Sills, er hin 29 ára gamla Gianna
Rolandi. Rolandi syngur einnig við
New York City óperuna og hún hefur
fengið lofsamlega dóma fyrir frammi-
stöðu sína. í New York Times sagði að
rödd hennar væri „ótrúlega blæbrigða-
rik”, og Sills hefur einnig hælt henni
mjög.
Gianna Rolandi er ekki sú fyrsta í
fjölskyldu sinni sem fengizt hefur við
óperusöng. Móðir hennar, Jane Fraz-
ier, sem ólst upp í North Carolina fylki,
söng við ítalskar óperur. Nafni sínu
breytti hún lítillega við þau tækifæri og
kallaði sig Giovanna Frazieri. Faðir
Giönnu lézt í bUslysi er hún var þriggja
ára og þá fluttu þær mæðgurnar frá
New York til South-Carolina. Þar
kenndi Jane raddbeitingu við skóla í
Gianna Rotandi fékk afbragðs-
dóma fyrir söng sinn í Ariadne auf
Naxos, en alls hefur hún leikið um
30 hlutverk viö New York City
óperuna.
Spartanburg.
Sex ára að aldri byrjaði Gianna að
læra á fiðlu en auk þess hlustaði hún
mikið á klassíska tónlist, einkanlega
óperur. „Þegar enginn var heima setti
ég Madame Butterfly og Tosca á fón-
inn og skrúfaði allt í botn. Síðan söng
ég sjálf méð,” segir Gianna.
Óperusöngkona með tagl ó þeysireið é hjóii um Central Park i New York.
Hún söng fyrst opinberlega með New
York City óperunni árið 1975. Þá
veiktist söngvari sá sem fór með hlut-
verk Olympiu í Tales of Hoffmann.
Fjórum árum síðar söng hún með
Metropolitan óperunni í Der Rosen-
kavalier. Það hlutverk fékk hún viku
eftir að hafa nærri því hjólað niður
stjórnandann Eric Leinsdorf. „Honum
fannst atvikið alveg ótrúlega fyndið.
Óperusöngkona með tagl á fleygiferð á
reiðhjóli rétt svo búin að hjóla hann
niður,” segir Gianna.
Anna
Bretaprins-
essa og
dóttirin
í öllu tilstandinu i kringum hið kon-
unglega brúðkaup í Englandi, þegar
Karl Bretaprins og lafði Díana gengu í
það heilaga, gleymdist alveg að Anna
systir Karls eignaðist dóttur í maí. Nán-
ar tiltekið 15. maí.
Meðfylgjandi mynd af önnu og dótt-
urinni tók Lichfield jarl, sem er af
dönskum ættum, af mæðgunum, en
Lichfield er hirðljósmyndari brezku
konungsfjölskyldunnar. Þar keppir
hann við Snowdon lávarð, sem ennþá
smellir af myndum, þótt hann hafi
skilið við Margréti prinsessu fyrir
mörgum árum.
En Lichfield hafði mjög góða
ástæðu til að taka þessa mynd af önnu
og dótturinni, en myndin var sú fyrsta
sem birtist opinberlega af mæðgunum.
Lichfteld er giftur lafði Leonoru, sem
er guðmóðir dóttur önnu. Svona rétt í
lokin má nefna það að hvítvoðungur-
inn var skírður Zara Anne Elizabeth.
Ringo skipti um
útgáfujyrirtœki
Bítillinn fyrrverandi, Ringo Starr,
skipti nýlega um plötuútgáfufyrirtæki,
fór frá Portrait/CBS yfir til Boardwalk
Entertainment Company sem Neil Bo-
gart veitir forstöðu. Fyrsta plata
Ringos hjá hinu nýja fyrirtæki kemur
svo út i næsta mánuði og heitir hún
Stopp and Smell the Roses. Meðal
þeirra sem leika á plötunni eru Paul
McCartney, George Harrison og Ron
Wood úr Rolling Stones.
Þegar Ringo var að undirrita samn-
ing sinn við Bogart spurði hann, hvar á
ég að skrifa nafn mitt? Bogart svaraði
að bragði, hvar sem þú vilt. Ringo lét
ekki segja sér það tvisvar og krotaði
nafn sitt stórum stöfum, beint á skall-
ann á Bogart.
Annette
skaut körl-
unumref
fyrir rass
— og sigraði í meisL
arakeppni Danmerkur
í líkamsrækt
Annette Boel heitir stúlkan hér á
myndinni en hún vann hið frækilega
afrek fyrir stuttu að sigra í meistara-
keppni Danmerkur í líkamsrækt. Hún
varð þar með fyrst kvenna til að sigra í
þessari keppni og víst var hin 32 ára
dama ánægð með að hafa skotið karl-
mönnunum myndarlegu ref fyrir rass.
Hún tók titilinn af Lisser Frost Lar-
sen, sem er 28 ára, en hann varð Dan-
merkurmeistari á sjóskiðum fyrir ára-
tug.
Keppni þessi fór fram í Falkoner
Centret i Kaupmannahöfn og vöktu
stúlkurnar, sem þátt í henni tóku,
gífurlega lukku meðal áhorfenda. Að
vísu þóttu vöðvar þeirra ekki alveg
jafnstórir og karlanna, en þær bættu
það upp með góðum og réttum líkams-
vexti. Þess má geta að sá hinn frægi
Arnold Schwarzenegger var gestur á
mótinu, en hann er nú hættur að keppa
í líkamsrækt og lifir góðu lífi sem leik-
ari í Kaliforníu.