Dagblaðið - 24.09.1981, Side 10
10 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1981.
\
Ráöstefnan Friður á jörðu, kristni og pólitík í Skálholti:
„Málefnið svo ógnarlegt að
flokkakrytur verður fáránlegur,”
—segír Bemharður Guðmundsson f réttaf ulltrúi kirkjunnar um viðræður guðf ræðinga og
stjómmálamanna um síðustu helgi
„Markmið þessarar ráðstefnu var
að fá stjórnmálamenn og guðfræð-
inga til að koma saman og ræða frið-
ar-, afvopnunar- og vígbúnaðarmál.
Umræða um þessi mál hefur verið
mikil í nágrannalöndum okkar, en
því miður hefur hún ekki hafizt hér
að marki,” sagði Bernharður Guð-
mundsson fréttafulltrúi kirkjunnar í
samtali við DB um ráðstefnu þá sem
haldin var í Skálholti um síðustu
helgi og bar nafnið Friður á jörðu,
kristni og pólitík. Þetta var þriðja
ráðstefnan af þessu tagi sem Kirkju-
ritið hefur efnt til. Áður hafa bók-
menntafræðingar og guðfræðingar
og myndlistarmenn og guðfræðingar
borið saman bækur sínar í Skálholti.
Ráðstefna þessi hófst á föstu-
dagskvöld en þátt í henni tóku full-
trúar frá þremur stjórnmálaflokkum
auk fulltrúa kirkjunnar. Fyrir hönd
Sjálfstæðisflokksins sátu ráðstefn-
una Björn Bjarnason, Halldór
Blöndal og Hannes H. Gissurarson.
Ólafur Ragnar Grimsson, Guðrún
Helgadóttir og Einar Karl Haralds-
son sátu ráðstefnuna fyrir hönd
Alþýðubandalagsins og þau Guð-
mundur G. Þórarinsson, Haraldur
Ólafsson og Sigrún Sturludóttir fyrir
Framsóknarflokkinn. Vegna kjör-
dæmaþinga Alþýðuflokksins gat
enginn úr þeirra röðum tekið þátt í
ráðstefnunni. Fyrir prestafélagið sat
séra Karl Sigurbjörnsson sóknar-
prestur við Hallgrímskirkju ráðstefn-
una og dr. Þórir Kr. Þórðarson var
fulltrúi guðfræðideildar Háskóla ís-
lands. Þá sat séra Heimir Steinsson,
Síðasti dagur ráðstefnunnar var
svo sunnudagur en umræður voru
þann dag milli kl. 9 og 12.
Að sögn Bernharðs Guðmundsson-
ar voru ráðstefnugestir ánægðir með
ráðstefnuna. Voru þeir allir sammála
um að einhliða afvopnun væri engin
lausn á því ástandi sem orðið hefur
I heiminum vegna vígbúnaðarkapp-
hlaups stórveldanna, Bandaríkjanna
og Sovétríkjanna. Hins vegar gætu
smáþjóðirnar myndað mótvægi við
þessu ógnarjafnvægi með því að
standa saman og mynda þannig
þriðja pólinn. Bernharður sagði að
Gunnar Gunnarsson, stjórnmála-
fræðingur sem sæti á í öryggismála-
nefnd Alþingis hefði komið á ráð-
stefnuna og rætt um vígbúnaðar-
kapphlaup stórveldanna. Kom m.a.
fram í máli hans að það tekur stór-
veldin aðeins 5—6 mínútur að senda
kjarnorkueldflaugar á landsvæði
hvortannars.
Að sögn Bernharðs einkenndust
umræðurnar fyrst í stað nokkuð af
því að stjórnmálamennirnir hefðu
varið sinn málstað og stefnu flokks
síns. Eftir þvi sem á ráðstefnuna leið
varð samtalið betra og menn hlust-
uðu vel á rök hver annars, ,,enda er
málefnið svo ógnarlegt að flokka-
krytur verður næsta fáránlegur þegar
það gildir framtíð mannkynsins,”
sagði Bernharður Guðmundsson,
fréttafulltrúi kirkjunnar.
Þess má að lokum geta að ráð-
stefnugestir munu rita greinar um
þessi mál í jólahefti Kirkjuritsins.
-SA.
Dr. Þórir Kr. Þóröarson útskýrði m.a. á ráðstefnunni hugtakið Shalom i gamla testamentinu en i þvi felst m.a. friður, vel-
gengni i liflnu og jafnvægi manna á millum. Dr. Þórir er næstlengst til hægri á myndinni en hægra megin við hann er dr.
Gunnar Kristjánsson. Lengst til vinstri er eiginkona dr. Gunnars, Anna Höskuldsdóttir og við hlið hennar þeir Haraldur
Ólafsson, lektor, og séra Heimir Steinsson, rcktor Skálholtsskóla.
lektor í Skálholti, ráðstefnuna og
loks þeir dr. Gunnar Kristjánsson á
Reynivöllum og Bernharður
Guðmundsson, fyrir Kirkjuritið.
Sem fyrr getur hófst ráðstefnan á
föstudagskvöld með yfirlitserindi dr.
Gunnars Kristjánssonar. Að morgni
laugardags hófst dagskráin með greg-
oríönskum morgunsöng, en morgun-
og kvöldsöngur var alla daga ráð-
stefnunnar. Lásu stjórnmálamenn úr
heilagri ritningu við morgunsönginn.
Umræður voru síðan þann dag allan,
að vísu með hádegisverðar- og kaffi-
hléum, en umræðum lauk klukkan
19.
Að kvöldi Iaugardags hófst síðan
friðarvaka. Þannig stóð á að kór
Menntaskólans við Hamrahlíð var í
Skálholti þessa helgi við æfingar fyrir
væntanlega hljómplötu og tóku kór-
félagar þátt í friðarvökunni. Söng
kórinn, en milli laga lásu ráðstefnu-
gestir ýmiss konar efni tengt friði á
jörðu, bæði frumsamið efni, úr ritn-
ingunni og úr bókmenntum.
Vi
✓
Ámeshreppur á Ströndum: ÍBIIAR VILDU r FÁAÐ
SJA UEKNINN Geir Viðar Guðjónsson læknir á og finnst hreppsbúum það í minnstí Hólmavík kemur í Árneshrepp einu lagi að sjá lækninn aðeins einu sinni sinni í mánuði allan ársins hring. mánuði. Þegar erfitt er yfirferðar á vetrum Geir hefur verið Iæknir á Hólma kemur læknirinn með flugvél. Áður vík í tæpt ár og verður annað ár ti fyrr var oft vitjað hálfsmánaðarlega viðbótar. Árneshreppsbúar eri OFTAR ánægðir að hafa hann áfram, því erfitt er að skipta oft um lækni. Sjúkraskýlið á Hólmavík tekur 13 sjúklinga og er oftast fullnýtt að sögn Geirs læknis. -Regina, Gjögri.
Vísismenn huga að framtíðarhúsnæði — gert ráð fyrir þvíað öll starfsemi blaðsins verðiað Réttarhálsi íReykjavík
,,Við fengum þessa lóð fyrir nokkr-
um árum og nú er verið að huga að
frumteikningum byggingar,” sagði
Hörður Einarsson einn af forráða-
mönnum útgáfufélagsins Reykja-
prensts hf. í gær. f fundargerð bygging-
arnefndar Reykjavíkur kemur fram að
Reykjaprent, útgáfufélag dagblaðsins
Vísis, hefur fengið jákvætt svar við
byggingarframkvæmdum við Réttar-
háls4íReykjavík.
,,Það tekur sinn tíma að byggja eins
og þiö á Dagblaðinu þekkið,” sagði
Hörður, ,,en tíminn er fljótur að líða.
Það er ekki hægt að segja um það nú
hvenær hafizt verður handa, hér er
interRent
car rerital
Bílaleiga Akureyrar
Akureyri: Tryggvabr. 14 - S 21715. 23515
Reykjavík: Skeifan 9 - S 31615, 86915
Mesta úrvalið, besta þjónustan
Við útvegum yður afslátt
á bílaleigubílum erlendis
verið að hugsa til framtiðar.”
Að sögn Harðar er fyrirhugað að
flytja alla starfsemi blaðsins á hinn
nýja stað. Visir er nú til húsa í Síðu-
múla og prentaður í Blaðaprenti eins og
Tíminn, Þjóðviljinn og Alþýðublaðið.
Sögur hafa gengið um það, að Tíminn
hygðist flytja sig úr Blaðaprenti í prent-
smiðjuna Eddu. DB spurði Hörð hvort
prentvél Blaðaprents væri úr sér geng-
in. Hann sagði það ekki vera, hún
þyrfti viðhald, enda mikið notuð. Með
eðlilegu viðhaldi gæti vélin enzt lengi.
-JH.
ATHUGASEMD
— frá vinum og kunningjum Hans Wiedbusch
Dagblaðinu hefur borizt eftirfar-
andi yfirlýsing frá vinum og kunn-
ingjum Þjóðverjans Hans Wied-
busch, sem myrtur var 17. september
sl. Undir yfirlýsinguna rita: Þóra Ás-
dis Arnfinnsdóttir, Guðrún Ág.
Janusdóttir, Monika Abendroth,
Páll Pampichler Pálsson, Hilke Jak-
ob-Magnússon, AAalmundur
Magnússon, Karin Hróbjartsson,,
Aðalheiður Pálsdóttir, Ingrid Hall-
dórsson og Marlles Slgurðsson.Yfir-
lýsingin er svohljóðandi:
„Við erum nokkrir vinir og kunn-
ingjar Þjóðverjans Hans Wiedbusch,
er myrtur var aðfaranótt fimmtudags
17. september sl., sem mótmælum
hér með harðlega málsmeðferð og
fréttatilkynningu rannsóknarlögreglu
ríkisins og skrifum siðdegisblaða um
þetta mál. Einnig viljum við koma á
framfæri vitnisburði fólks, sem
þekkti vel til Hans Wiedbusch.
Okkur var vel kunnugt um að Hans
var „homosexuel”, en það kom ekki
i veg fyrir að hann átti sér stóran hóp
vina, karla sem kvenna, fjölskyldna
sem einhleypra, sem kunnu að meta
manngildi hans. Hans var að okkar
dómi sérstakt ljúfmenni, heiðarlegur,
tilfinninganæmur og traustur vinur.
Þar sem hinn látni getur ekki varið
sig sjálfur krefjumst við þess í minn-
ingu hans að leiðrétt sé sú villandi
mynd, sem af honum hefur verið
gefin í fjölmiðlum.”
Homsteinn lagð-
ur að höf uð-
minnisvarðanum
—um 1100 ára byggð á íslandi
fimm árum, 1982—1986, ef auðið verði
Svo virðist sem allur þorri manna fagni
því að sjá eða vita þetta hús rísa, og ég
flyt hér þakkír þeim, hvar sem þeir eru
stadjdir, er hugsa hlýtt til bókhlöðunn-
ar.”
Siðan sagði Finnbogi landsbóka-
vörður: „Þessi nýja bygging, sem hér
er í smíðum, er ætluð sameinuðu
Lands- og háskólabókasafni, en Þjóð-
skjalasafn mun fá allt Safnahúsið við
Hverfisgötu til sinna nota þegar Lands-
bókasafn flytzt hingað vestur á Mel-
ana. Þjóðarbókhlaðan leysir því í raun,
og til verulegrar frambúðar, húsnæðis-
vanda þriggja höfuðsafna, en á það
verða menn að líta, þegar þeir meta
þessa miklu framkvæmd.”
Þjóðarbókhlöðunni er ætlað að
verða höfuðminnisvarði um 1100 ára
búsetu í landinu árið 1974.
-ÓV/DB-mynd: EÓ.
Þau skála hér fyrir nýrri Þjóðarbók-
hlöðu, Vigdís Finnbogadóttir forseti,
Guðmundur Magnússon háskólarektor
og Svavar Gestsson félagsmálaráð-
herra, eftir að Vigdís hafði lagt horn-
stein að byggingunni síðdegis í gær.
Vigdís heldur á dýrustu og fínustu múr-
skeið, sem notuð hefur verið á íslandi,
hún er úr silfri og var sérsmiðuð af
Bárði Jóhannessyni gullsmið.
Guðmundur rektor er í byggingar-
nefnd Þjóðarbókhlöðu ásamt þeim
Herði Bjarnasyni, fyrrverandi húsa-
meistara ríkisins, og Finnboga Guð-
mundssyni landsbókaverði, sem er for-
maður nefndarinnar.
Finnbogi flutti stutt ávarp við at-
höfnina í gær og sagði meðal annars:
„Byggingarnefnd vonar, að unnt
reynist að halda bókhlöðusmíðinni hik-
laust áfram og ljúka henni á skaplegum
tíma. Nefndin hefur í tillögum sínum
lagt til, að smíðinni verði lokið á næstu