Dagblaðið - 24.09.1981, Síða 13
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1981.
r
13
Margrét Pála
Ólafsdóttir
FRJALSHYGGJA
FÉLAGSHYGGJA
hún öll tormerki á að slíkt gæti orðið.
Þó hafði hún samband við Hörð
Lárusson, deildarstjóra skólarann-
sóknardeildar, og síðar samadagbar
Elín mér þau svör deildarstjóra, aþ.
ekki væri hægt að leyfa mér að sjá
umrætt plagg. Helstu ástæðurnar, er
fyrir þvi voru færðar, að enn hefði
aðeins fámennur hópur tillögurnar til
umræðu og teldust þær enn á
vinnslustigi. Þegar álit væri fengið og
búið að taka afstöðu til tillagnanna,
yrðu þær fyrst opinberar, — og ekki
fyrr.
En ýmsu er við að bæta; hér var
ekki verið að hnýsast í hluti, sem
verið er að vinna að, heldur aðeins
spurt um tillögur nefndar, er lokið
hefur störfum og að meina almenn-
ingi að sjá slík plögg, er vart verjandi
af opinberri stofnun. Þótt fámennur
hópur umsagnaraðila eigi eftir að
skila áliti um niðurstöður nefndar-
innar, hlýtur það álit að teljast annar
hluti af umræddu máli. Aftur á móti
mætti spyrja, á hvaða hátt þessir
umsagnaraðilar séu valdir.
Þegar þetta er ritað, 21. september,
hefur stjórn Fóstrufélags íslands ekki
borist eintak af nefndartillögunum
og því greinilegt, að álits þess félags
er ekki óskað af hálfu skólarann-
sóknardeildarinnar. Er forréttinda-
hópurinn, sem fengið hefur að berja
augum þetta leyndardómsfulla
nefndarálit, ekki að verða nokkuð
þröngur, þegar fagfélag allra þeirra,
er menntun hafa til uppeldisstarfa á
dagvistarheimilum, er skilið eftir úti í
kuldanum og ekki talið umræðuhæft
um skipan uppeldisnáms??? Eins
mætti velta fyrir sér, hvaða afstöðu
lyklapétur skólarannsóknardeildar
ætlar að taka til margumræddra til-
lagna, áður en dyrum verður upp
lokið fyrir áhugafólki, sem auðsjáan-
lega kemur mál þetta lítið við. Verður
það ef til vill endanleg afstaða, sem
ekki verður kunngerð fyrr en allt er
klappað og klárt?
Persónuleg innan-
sveitarkrónika?
Því ríkir leynd yfir niðurstöðum
opinberlega skipaðrar nefndar í
lýðræðisríki, þar sem allt er svo
dæmalaust opið og frjálst og réttur
einstaklingsins heilagur? Hvað er að
finna í umræddum tillögum, er eigi
má vera lýðum ljóst, en er eingöngu
prívat og persónuleg innansveitar-
krónika skólarannsóknardeildar?
Leiða má getum að því, að tillög-
urnar feli í sér námsskipan, er þegar
hefur verið lýst andstöðu við og vitað
er, að verður harðlega gagnrýnd. Er
ef til vill gengið í berhögg við þá
afstöðu til framhaldsskólafrum-
varpsins, er skólar og fagfélög
mótuðu strax árið 1977 og kom opin-
berlega fram með frumvarpinu 1978.
Hafa fleiri nefndir skilað tillögum
um tilhögun náms á öðrum sviðum
framhaldsskólans og eru þær tillögur
einnig læstar í eldtraustri ríkis-
leyndarkistu?
Ætla má, að framhaldsskólafrum-
varpið verði að lögum svo fljótt sem
gengið hefur verið frá fjármálahlið
þess, þ.e. skiptingu kostnaðar milli
ríkis og sveitarfélaga. Frumvarpið
gerir ráð fyrir 5 ára aðlögunartíma til
að móta starf t.d. sérskólanna og að
ganga frá námsskrám og reglu-
gerðum fyrir hin ýmsu svið. Nú er
engu líkara en ráöuneytið ætli að
hafa alla þá skipan ákveðna, þegar
frumvarpið verður að lögum, en ein-
hvers staðar þætti þetta ekki gott
lýðræði.
Margrét Pála Ólafsdóttir,
fóstra.
Kjallarinn
Frjálshyggja
— einkaframtak
Ef til vill er það að bera í bakka-
fullan lækinn og hreinn bjánaskapur,
þegar ég ómenntaður púls- og slor-
karlinn, tek mig til og sting niður
penna, og skrifa um það sem mennta-
menn hafa haft ofarlega á baugi um
skeið. Ég vil festa á blað hugrenning-
ar mínar og skilning á þeim tveim
orðum eða hugtökum, sem er yfir-
skrift þessarar greinar, séð frá
mínum bæjardyrum, og skilið af
minni lífsreynslu. En kannski finnst
mörgum þetta bull eða rugl, sem ég
mun festa á blaðið, en ég tel það
réttar hugsanir og réttan skilning, þar
til einhver sannfærir mig um annað,
og þá skal ég fúslega viðurkenna villu
mína( því ég hef I heiðri orð Ara
fróða — hafa skal það sem sannara
reynist.
Frjálshyggja er orð, sem mjög er
notað um þessar mundir, aðallega og
sérstaklega siðan Friedmann lét í sér
heyra. Frjálshyggja er orð, sem lítur
afar menntalega út, og ekki er víst að
öllu ómenntuðu verkafólki sé fyllil-
lega ljóst, hvað á bakvið orðið getur
falist.
Heiðursmenn
innan um
Upphaflega var það ætlun mín að
sýna framá, hvernig sumir fylgjendur
einkaframtaksins eða einkafyrir-
tækja hafa notfært sér aðstöðuna til
að hafa af þeim fé, sem minna mega
sín og hafa bara hendurnar til sinnar
framfærslu, og miða ég þá við mína
lífsreynslu, því ég hef nokkrum
sinnum verið illa leikinn. En það eru
takmörk fyrir hvað ein blaðagrein má
vera löng.
Vissulega eru margir atvinnurek-
endur heiðursmenn, en allir eiga þeir
eitt sameiginlegt, bæði vondir og
góðir, það er að halda kaupi lág-
launamannsins eins langt niðri eins
og mögulegt er með öllum tiltækum
ráðum, það er eitt af stefnumörkum
frjálshygggjunnar.
Frjálshyggjumenn að
tryggja sínum manni
stöðu?
æxlast svo, að þangað hafa skipast
menn með litla þekkingu á útgerð og
fiskiðnaði, og stundum virðast ann-
arleg sjónarmið ráða. Því ætti starfs-
fólkið að hafa trú á fasteignasölum,
forstjórum einkafyrirtækja eða bók-
sölum burtséð frá pólitiskum
skoðunum þeirra? Ég sagði starfs-
fólkið, því að fyrirtæki sem rekið er á
ábyrgð sveitarfélagsins með þeirri
röksemd að atvinnuöryggi starfs-
fólksins krefjist þess, á auðvitað að
lúta stjórn starfsfólksins, ekki
mönnum sem eru í kafi i einkarekstri.
Sofus Berthelsen
Nú hefur verið auglýst eftir fram-
kvæmdastjóra fyrir útgerð og fisk-
iðnað sveitarfélagsins, hvað kemur
Fyrir fimmtíu árum stofnuðu félagshyggjumenn í sveitarfélagi greinarhöfundar útgerðarfyrirtæki. Á þeim árum hefur á ýmsu
gengið með reksturinn og virðist ganga enn.
DB-mynd.
Frjálshyggja getur verið það frelsi
til að framkvæma hvaðeina sem
hugurinn girnist án afskipta annarra,
og þróast þá stundum tilhneiging til
að fara bakvið lög og reglur, eða
setja lög og reglur sér í hag, oft á
kostnað þeirra sem minna mega sín.
Stundum hefur einkaframtak verið
tengt orðinu frjálshyggja. Frá
mínum sjónarhóli séð er einkafram-
tak tvenns konar. Annarsvegar detta
mér i hug persónuleikar, sem rífa sig
áfram til vegs og virðingar vegna
eigin verðleika, dugnaðar og út-
sjónarsemi, og með eigin höndum, án
þess að þurfa kaupa annarra vinnu-
kraft, fyrir þeim persónuleikum ber
ég virðingu, hvort sem þeir eru karlar
eða konur. Hins vegar eru persónu-
leikar sem tileinka sér gróðavonina,
og kannski helgar þá tilgangurinn
meðulin, til að ná settu marki,
notandi aðstöðuna og auðinn, sem
þeir hafa ekki alltaf öðlast af eigin
verðleikum, heldur hafa fæðst með
silfurskeið í munni. Oftast er auður-
inn sem hafður er til ráðstöfunar,
ekki þeirra eigin, heldur sóttur í sjóði
þjóðarinnar.
Hér langar mig að vitna í neðan-
málsgrein i Vísi 11. sept. eftir Finn
Torfa Stefánsson, hann segir: „Fyrir-
tækin eru í einkaeign, eigendurnir
stjórna rekstrinum og mæla sér
sjálfir kjör, en skattborgararnir bera
hinsvegar ábyrgðina. Sú ábyrgð
kemur oftast fram í því formi að
tapið er þjóðnýtt. Hagnaðurinn, ef
einhver er, rennur hinsvegar til
eigenda. — ”
Ég vona að Finnur Torfi fyrirgefi
mér þjófnaðinn, en þessi orð hans
eru mér gulls ígildi og falla svo ljóm-
andi vel að minni hugsun, og hann
heldur áfram — „Menn furða sig
stundum á því hvernig fjármagnseig-
endum hefur tekist að koma sér upp
svo vel lukkaðri svikamyllu.” — Já,
Finnur Torfi, en hér hefði ég heldur
sagt fjármagnshafendur, í staðinn
fyrir fjármagnseigendur.
Af mínu litla viti álít ég mann-
skepnuna félagsveru frá náttúrunnar
hendi. Fáir geta án annars verið.
Þess vegna er mannskepnunni hollast
að standa saman í framkvæmdum og
vinnu og njóta í sameiningu góðs af í
frelsi, jafnrétti og bræðralagi, þar er
félagshyggjan mannskepnunni holl-
ust, annað er óeðli og skaðlegt fram-
þróuninni.
í anda félagshyggjunnar hafa
nokkur sveitarfélög stofnað til
atvinnureksturs til að forða atvinnu-
leysi, og I anda félagshyggjunnar
hafa samvinnufélög verið stofnuð.
Athyglisvert er að atvinnurekstur
sveitarfélaga hefur oft átt erfitt upp-
dráttar, vegna afskipta einka-
rekstursmanna, kannski hafa þeir
ekki sætt sig við samkeppnina,
kannski hefur frjálshyggja þeirra
verið skert.
Loka þegar þeim
hentar
Fyrir 50 árum voru félagshyggju-
menn í meirihluta í mínu sveitar-
félagi, og með framsýni og dugnaði
stofnuðu þeir til útgerðar á vegum
sveitarfélagsins til að forða atvinnu-
leysi, sem var gífurlegt. Á þessum 50
árum eru ótaldar þær þúsundir af
verkafólki, sem notið hafa góðs af at-
vinnurekstri sveitarfélagsins, kyn-
slóðir hafa komið og kynslóðir farið,
á sama tíma hafa einkarekstursmenn
lokað sínum fyrirtækjum þegar þeim
hefur hentað, hvað annað, þetta var
þeirra einkarekstur, ekki verka-
fólksins, því kom reksturinn ekki við.
Á ýmsu hefur gengið með útgerð
sveitarfélagsins, stundum vel og
stundum ver, allt eftir árferði eða
stjórnun fyrirtækisins, því menn eru
misjafnlega gefnir til stjórnunar, og
þó komið hafi fram færir forstjórar,
hafa þeir ekki notið sín vegna ofríkis
einstaka sveitarstjórnarmanna, og
þannig er það um þessar mundir.
Hinir pólitísku flokkar skipa í út-
gerðarráð mönnum eftir styrkleika
flokkanna, og stundum hefur það
til? Ekki hefur starfsfólkið heyrt, að
núverandi forstjóri hafi sagt upp
störfum, en hann er sérstaklega vel
liðinn af starfsfólkinu, og varla hefur
það sakað að fyrirtækið hefur frekar
sýnt hagnað heldur en hitt síðan hann
tók við rekstrinum. Starfsfólkið
getur ekki séð annað með framferði
sveitarstjórnarmanna, þeirra sem
frjálshyggjunni fylgja, en í fyrsta lagi
þurfi þeir að tryggja sínum manni
forstjórastöðu, í öðru lagi hafa fram-
ámenn frystihúsa tilkynnt stóran
hallarekstur, þess vegna er ófært að
eitt frystihús sé hallalaust, og því
nauðsynlegt að bola forstjóranum
frá, kannski þetta hvort tveggja sé.
En starfsfólkið vill hafa þennan
forstjóra, og kannski er rétt að geta
þess I leiðinni, að starfsfólkið vill
hafa þessa verkstjóra alla, því þeir
eru framúrskarandi i framkomu sinni
og færir á sínu sviði. Það er ríkjandi
góður vinnufriður og vonandi verður
engin breyting þar á. En stjórn-
endum mins sveitarfélags er það
kannski enn I fersku minni, þegar
starfsfólk útgerðarinnar lét þá standa
frammi fyrir alþjóð eins og viðundur.
Þá var samstaða starfsfólksins frá-
bær, kannski er sú samstaða ennþá
fyrir hendi.
Sofus Berthelsen
£ „Athyglisvert er aö atvinnurekstur
sveitarfélaga hefur oft átt erfitt upp-
dráttar vegna afskipta einkarekstursmanna.
Kannski hafa þeir ekki sætt sig við samkeppn-
ina, kannski hefur frjálshyggja þeirra verið
skert.”
✓