Dagblaðið - 24.09.1981, Side 15
GYLMIR • G&H
óttir
iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Eþróttir
TÖGCUR HF.
SAABUMBOÐH>
BILDSHÖFÐA 16.
SÍMI 81530
NOTAÐIR
BILAR
Seljum
í dag
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR24. SEPTEMBER 1981.
SAAB 900 GLE '80,
SAAB 900 GL '80,
SAAB 99 GL '80,
SAAB 99 GL '78,
SAAB 99 GL '77,
SAAB 99 GL '76,
SAAB99L75,
SAAB 99 L '74,
5 dyra, rauður, ekinn 9 þús. km.
3ja dyra, blár, ekinn 13 þús. km.
4ra dyra, grœnn, ekinn 10 þús. km.
3ja dyra, Combi, grænn, ekinn 46 þús. km
4ra dyra, grænn, ekinn 64 þús. km.
4ra dyra, gulur, ekinn 74 þús. km.
2ja dyra, blár, ekinn 86 þús. km.
2ja dyra, rauður, ekinn 124 þús. km.
„Menn að mínu
„Þetta eru menn að mínu skapi,”
sagði Guðni Kjartansson landsliðs-
þjálfari um islenzku leikmennina eftir
leikinn við Tékka í gærkvöldi. „Tékkar
eru með létt leikandi lið en okkar liðs-
heild var mjög sterk og þeir komust
ekkert áleiðis í sóknaraðgerðum sínum.
Með sama krafti og i kvöld ættum við
að geta staðið í Walesbúum. Liðið var
mjög jafnt og erfitt að gera upp á milli
leikmanna en Guðmundur Baldursson
átti frábæran leik i markinu.”
„Þetta var ekki eins erfitt og ég átti
von á,” sagði Pétur Ormslev. „Þetta
var fyrst og fremst „taktískur” leikur,
við vörðumst vel og ég held að við
höfum uppfyllt vonir Guðna landsliðs-
þjálfara.”
„Ég er mjög ánægður með leikinn,”
sagði Marteinn Geirsson, fyrirliði
íslands. „Jöfnunarmark Tékkanna lá
alltaf i loftinu en hins vegar áttum við
nokkur færi á að bæta öðru marki við.
Það var mikil barátta i liðinu hjá okkur
og vörnin var sterk. Leikurinn gegn
Wales verður mikið erfiðari, það er
alltaf verra að eiga við brezku liðin en
meginlandsþjóðirnar vegna þess hve
þau leika hratt og fast.”
Janus Guðlaugsson sagði Tékkana
leika mun hægari knattspyrnu en hann
á að venjast frá Vestur-Þýzkalandi.
skapi”
„Þcir léku mjög vel i fyrri hálfleik
með NehoQa (nr. 11) sem sterkasta
mann en voru slakari í þeim síðari.”
„Ég er ánægður með úrslitin en það
hafði þó verið gaman að sigra þá,”
sagði Arnór Guðjohnsen, sem oft gerði
usla i vörn Tékkanna í leiknum.
„Tékkar eru mjög tekniskir” og fljótir
en þá vantaði herzlumuninn til að nýta
færin sem þeir fengu. Mér tókst að ná
knettinum nokkrum sinnum af varnar-
mönnum þeirra í síðari hálfleik og við
það unnum við dýrmætan tima. Það
var þó erfitt, ég var einn frammi lengst
af.”
-VS.
rnu Ásgeirs. Seman sló knöttinn beint til Péturs Ormslev, sem sendi knöttinn i netið. DB-mynd
| & Bjarnleifur.
p heima i sumar
slá knöttinn frá í keppni við Arnór. Knött-
urinn fór beint til Péturs Ormslev, sem kom
á fullri ferð inn í vítateiginn. Skoraði með
hnitmiðuðu skoti neðst í markið. Vel að
verki staðið. ísland hélt vel sínum hlut allan
fyrri hálfleikinn. Lék oft prýðilega knatt-
spyrnu þar sem knötturinn gekk leikmanna á
milli. Atli var tvívegis óheppinn innan víta-
teigs Tékka, Ásgeir átti skot, sem Seman
varði, eftir fallega rispu Arnórs. Þá átti
Arnór fast skot í hliðarnetið. Undir lok hálf-
leiksins fóru Tékkar að sækja í sig veðrið.
Guðmundur varði tvívegis mjög vel en
Kozák fór illa með bezta tækifæri leiksins á
39. mín. Spyrnti framhjá fyrir miðju marki,
dauðafrír innan markteigs.
ísland hóf s.h. með fallegri sókn. Fékk
aukaspyrnu. Ásgeir gaf á Atla, sem skallaði
til Sævars. Seman varði fastan skalla Sævars
með tilþrifum. En siðan fóru sóknarloturnar
að dynja á vörn íslands. Furðulegt þó hve
Tékkar léku þröngt, nýttu illa kantana.
Ætluðu sér beinlínis að leika „inn í markið.
Fengu oftast til þess lítinn frið. Þeir fengu þó
færi. Masný, sá heimsfrægi leikmaður,
komst frír inn í markteigshornið og spyrnti.
Knötturinn fór út af við hliðarlínu.
Furðulegt. Janus sendi knöttinn í mark
Tékka á 67. mín. en áður hafði Atli brotið á
varnarmanni. Þungi sóknar Tékka var
mikill. Guðmundur varði hvað eftir annað af
snilld en mark lá í loftinu. Loks á 76. mín.
tókst Tékkum að rjúfa varnarmúrinn alveg.
Kozák skoraði með föstu jarðarskoti, sem
Guðmundur átti ekki möguleika að verja.
Licka meiddist og varð að yfírgefa völlinn og
þar sem Tékkar höfðu notað báða varamenn
sína léku þeir einum færri síðustu tíu
mínúturnar. Sættu sig þá við jafntefli. Litlu
munaði þó á lokamínútunni. Kozák spyrnti
yfir í góðu færi og rétt á eftir blés dómarinn,
Keith Hope, til leiksloka. Hann var einn
albezti maður leiksins. -hsím.
Standard vann
Standard Liege frá Belgiu sigraði Floriana
á Möltu, 3—1, í Evrópukeppni bikarhafa í
gærkvöldi. Öll mörkin voru skoruð í fyrri
hálfleik. Mörk Standard skoruðu Meeuws,
Voordeckers og Van Der Missen. Aquilina
svaraði fyrir Floriana. Þetta var fyrri ieikur
liðanna og er Standard nánast öruggt með að
komast í 2. umferð.
„Jafntefli sanngjöm úrslit”
„Þetta var ágætur ieikur. íslenzka
liðið lék mjög vel með nr. 9, Arnór
Guðjohnsen, sem bezta mann. Hann
lét Tékkana aldrei í friði, truflaði þá
svo þeim urðu á mistök. Leikinn piltur.
island átti jafnteflið fyliilega skilið og
allir leikmenn liðsins stóðu sig vel í
sinum hlutverkum. Leikur liðsheildar-
innar.
Það kom mér ekki á óvart, þegar
Tékkar jöfnuðu. Þeir voru farnir að
sækja mjög og það hlaut að koma að
þvi að íslenzka vörnin gæfi sig. Þetta
var ágætur leikur,” sagði hinn snjalli
dómari leiksins, Skotinn Keith Hope,
sem dæmdi leikinn frábærlega vel. Að
margra áliti bezti maðurinn á vellinum.
Hann hefur dæmt hér áður.
„Þetta var léttur leikur fyrir mig —
allt fór fram í bróðerni,” sagði Norð-
maðurinn Nic Johansen, sem var eftir-
litsmaður FIFA á leiknum. „Jafntefli í
leiknum voru sanngjörn úrslit og
íslenzka liðið lék mun betur en ég hafði
búizt við af því. Nr. 7, Janus Guðlaugs-
son, var bezti maður islenzka liðsins að
mínu mati. Ég var hissa á því hvað það
tók Tékkana langan tima að ná sér á
strik í leiknum. Þeir fengu fá færin í
fyrri hálfleiknum. Stemmning meðal
áhorfenda var mjög góð og það hafði
góð áhrif á baráttuvilja íslenzku leik-
mannanna. Stemmningin var hátt í
það, sem var i Osló á dögunum, þegar
við Norðmenn sigruðum England í
HM-keppninni,” sagði Johansen enn-
fremur.
„Ég er himinlifandi með þessi úrslit,
jafnteflið var árangur liðsheildarinnar.
Baráttan var aðall íslenzka liðsins,
vinnsla miðjumannanna gifurleg. Þeir
keyrðu sig allir út”, sagði Ellert
Schram, formaður KSÍ, eftir leikinn.
„Ég er mjög ánægður með úrslitin.
Tel þau sanngjörn, þó ég hafi um tima
verið farinn að búast við sigri.
En það var óraunhæft að reikna með
sigri gegn einu bezta landsliði Evrópu.
Þessi úrslit sýna hvað við getum gert ef
við fengjum nægan tíma til undirbún-
ings fyrir þessa stórleiki, ekki 2—3
daga eins og nú. Allir leikmenn
íslenzka liðsins stóðu vel fyrir sínu,
árangurinn, sem vekja mun heims-
athygli, þeim öllum að þakka”, sagði
Helgi Daníelsson, formaður landsliðs-
nefndar.
-hsím.
Auðvelt hjá Sovét
Sovétmenn kafsigldu Tyrki i byrjun
er þeir skoruðu þrjú mörk á fyrstu 26
mínútunum í leik liðanna í undan-
keppni HM i gærkvöldi en leikið var í
Moskvu. Alexander Chivadze, „sweep-
erinn” sterki frá Dynamo Tiblisi,
skoraði strax á 4. mín„ Anatoly
Demyanenko frá Dynamo Kiev bætti
öðru við á 20. min. og félagi hans, Oleg
Blokhin jók forystuna í 3—0 sex
mínútum síðar. Ramaz Shengelia,
Tiblisi-leikmaðurinn sem fór svo illa
með Liverpool um árið, skoraði fjórða
markið á 49. min. Sovétmenn standa
nú mjög vel að vigi í 3. riðli en staðan
er þessi:
Tékkóslóvakia 6 4 11 14—3 9
Wales 6 4 11 10—2 9
Sovétríkin 4 3 10 11—1 7
ísland 7 2 1 4 8—19 5
Tyrkland 7 0 0 7 1—19 0
-VS.
Allt á floti í Lyon og
leiknum við Laval hætt
„Það varð að hætta leiknum i Lyon vegna
gifurlegrar rigningar. Það var allt komið á
flot og dómarínn sá ekki annað ráð en að
hætta leiknum. Þá hafði verið leikið í 50
min. og hvorugt liðið skorað,” sagði Karl
Þórðarson, þegar DB ræddi við hann í gær.
Heil umferð átti að vera i 1. deildinni
frönsku á þriðjudag. Hætt í tveimur. Laval,
liðið sem Karl leikur með, er nú í 7.—9. sæti
með 11 stig en Lens, sem Teitur Þórðarson
leikur með, neðst og tapaði á þriðjudag.
Úrsliturðu þá þessi.
Nice—Metz 3—1
Lyon—Laval frestað
Bordeaux—Tours 2—1
Montpellier—Bastia 3—2
Lille—St. Etienne 3—4
Brest—Lens 2—0
Auxerre—Paris SG 1—0
Nantes—Sochaux 1 — 1
Nancy—Strasbourg frestað
Valenciennes—Monaco 0—0
„Þetta hefur gengið miklu betur hjá Laval
en nokkur þorði að vona fyrir keppnistíma-
bilið. Ég hef leikið alla leikina níu með
Laval. Er á vinstri kantinum og gengið vel —
já prýðilega. Þetta er jafnt og gott lið. Engar
stórstjörnur. Einn leikmanna Laval hefur þó
leikið þrjá leiki með franska landsliðinu.
Þjóðverjinn Krause, sem er markahæsti leik-
maður liðsins, hefur ekki leikið með að
undanförnu. Brákaðist á hendi og er í gipsi. í
11. umferðinni leikum við á heimavelli gegn
efsta liðinu Bordeaux. Það er mjög sterkt lið
eins og íslendingar sáu eflaust í UEFA-leikn-
um við Víking,” sagði Karl Þórðarson.
Hann hefur ekkert frétt af Teiti síðustu vik-
urnar, Teitur hefur enn ekki fengið síma.
Staðan eftir umferðina á þriðjudag er
þannig.
Bordeaux 10 5 5 0 20- -12 15
Sochaux 10 5 4 1 13- -9 14
St. Etienne 9 5 2 2 19- -9 12
Lille 10 5 2 3 22- -15 12
Monaco 10 5 2 3 20—13 12
Brest 9 3 5 1 13- -11 11
Laval 9 4 3 2 13- -11 11
Nancy 9 4 3 2 13- -11 11
Nantes 10 3 4 3 12- -11 10
Bastia 10 3 4 3 19- -20 10
Strasbourg 9 4 1 4 12- -10 9
Tours 10 4 1 5 11- -12 9
Paris SG 10 3 3 4 9- -11 9
Valenciennes 10 3 2 5 11- -13 8
Montpellier 10 2 3 5 10—17 7
Auxerre 10 2 3 5 8- -18 7
Metz 10 0 6 4 6- -12 6
Nice 10 2 2 6 9- -16 6
Lens 10 1 1 8 6- -17 3
-hsím.
n
og þjálfari
tnum, HM-
kinn snertu
léldu flestir
nglos, æddi
úkmönnum
estir náfölir
akeppninni
:la
lt i morgun
Dússeldorf
im tíma hjá
ika með um
st atvinnu-