Dagblaðið - 24.09.1981, Síða 16
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1981.
16
r
Hótel Borg—Minning
Utangarðsmenn við hljómleikahald á Hótel Borg. DB-mynd: ARH.
Eins og flestum er kunnugt standa
nú yfir breytingar á starfsemi Hótel
Borgar.
Ákveðið hefur verið að leggja
niður þann ágæta sið að leigja hljóm-
sveitum salinn og ennfremur hefur
rokkótekinu verið gefið nýtt nafn,
eða eins og auglýst var síðastliðinn
fimmtudag, diskó og rokk í bland.
Sem sagt, nýbylgjunni hefur verið
úthýst á snyrtilegan hátt.
Eins og alþjóð veit hefur undan-
farið ár sprottið upp fjöldinn allur af
hljómsveitum. Utangarðsmenn voru
fyrsta rokkhljómsveitin sem hélt
hljómleika á Borginni og síðan hafa
allar hinar getað fengið salinn til að
koma tónlist sinni á framfæri. Yfir-
Ieitt hefur verið margt um manninn á
fimmtudagskvöldum og stundum brá
því við að föstudags og laugardags-
kvöld voru líka tekin undir hljóm-
leikahald. En nú skal þetta burt.
Ferðamenn
í vor tóku menn eftir því að
hljómleikum fór ört fækkandi og fór
þá margan að gruna í hvaða átt
stefndi, Einhvern veginn komst sú
saga á kreik að ferðamönnum sem
gistu hótelið þætti hávaðinn sem
fylgir hljómleikahaldi illþolanlegur.
Eflaust er þetta rétt, og flestir sættu
sig við þessi málalok.
En nú þegar málið er komið á
hreint eru margir farnir að hugsa með
söknuði um stemmninguna sem oft
ríkti á Borginni. Það var stundum
meiriháttar stuð, sérstaklega þegar
fleiri en ein hljómsveit léku sama
kvöldið, og svo gat líka verið alveg
grautfúlt. Hljómburðurinn var
kannski ekki alltaf eins og bezt
verður á kosið enda salurinn ekki
byggður fyrir nútímarokk.Þein sem
lögðu leið sína á Borgina 9. og 10.
sept. síðastliðinn, þegar brezka
hljómsveitin The Fall ásamt fleirum
léku, ætti að vera í fersku minni
hljómburðurinn sem óneitanlega setti
leiðinlegan svip á.
Hópurinn
Það var viss hópur sem lagði leið
sina á Borgina, flestir þekkjast enda
um sama áhugamál að ræða. Þessi
hópur kom til að hlusta og sjá og
auðvitað skemmta sér. En eitthvað
virðist þetta fólk fara í taugarnar á
ráðamönnum Borgarinnar því nú
gengur sú saga um að það sé ekki
lengur velkomið frekar en hljóm-
sveitinar. Sagt er að menn þessir séu
óánægðir með framkomu þessa
fólks, það sé illa klætt og að slagsmál
hafi verið með meira móti, en eftir
því sem ég bezt veit var það ekki ■
meira en gengur og gerist á öðrum
skemmtistöðum hér í bæ. Við skulum
bara vona að nýju gestirnir hagi sér
vel.
NEFS
En ekki er öll von úti enn. Nýstofn-
aður klúbbur NEFS ætlar að sjá um
að lifandi tónlist leggist ekki i dá,
enda væri slikt afleitt. Hófst þessi
starfsemi fyrir tæplega þremur vikum
og virðist hafa tekizt vel. Og Borgin
sem einu sinni var kölluð „Musteri'
pönkaranna” verður nú eitt af hinum
OddrúnVala
Jónsdóttir
fjölmörgu diskótekum bæjarins.
Gangi það vel.
-OVJ-
AC/DC sendir að öllu forfalla-
lausu frá sér nýja LP plötu fyrir
jólin. Hljómsveitin hefur verið
önnum kafin við upptökur í stúdíói I
Parfs en gengur víst ekki of vel.
Varla að þeir séu búnir að taka upp
grunnana að þeim lögum sem þeir
œtla að bjóða æstum aðdáendum
uppá áður en árið er liðið í aldanna
skaut...
Jimmy Page gitarleikari Led
Zeppelin œtlar að spreyta sig á að
semja kvikmyndatónlist að nýju.
Fyrir nokkru samdi hann nokkrar
melódíur við myndina Lucrfer Ris-
ing og þótti takast illa. Nœsta mynd
verður Death Wish II. Þar fer
Charles Bronson með aðalhlut-
verkið.
The Clash eru síður en svo búnir að
geispa golunni þó að þeir hafi lítt
verið I fréttum undanfarna mánuði.
Þeir fara i nœsta mánuði í sína fyrstu
hljómleikaferð um Bretland. Meira
en ár er liðið slðan Clash lék. á
heimavelli síðast. Meðal annars
leikur hljómsveitin I heila viku í
hljómleikasalnum Lyceum I London.
— Hljómleikahald þetta er ekkifor-
boði eða í kjölfar nýrrar plötu. Um-
boðsmaður Clash vildi hvorkijáta né
neita þvl að plata vœri á leiðinni
þegar gengið var á hann um upplýs-
ingar.
John Foxx stofnandi Ultravox
sendir frá sér aðra sólóplötu sína I
þessari viku. Hún ber nafnið The
Garden. Foxx hefur undanfarið
verið önnum kafinn við að skrifa bók
sem hann nefnir The Quiet Man.
Hún kemur fljótlega á markaðinn að
öllu forfallalausu.
Jerry Lee Lewis er sagður vera
að hressast eftir langa sjúkrahúss-
visí Hann veiktist alvarlega í maga
og var vart hugað líf. Jerry er nú
kominn heim og er að undirbúa
hljómleikahald. Sagt er að fyrstu
hljómleikar hans verði í byrjun októ-
ber. Talið er að hann muni koma
fram á hljómleikum með Rolling
Stones og einnig með gamla vinin-
um Johnny Cash.
Hljómsveitin The Vapors stendur
nú á timamótum. Dave Fenton
söngvari, lagasmiður og gítarleikari
er hœttur og leitar nú í óða önn að
nýjum mönnum til að hljóðrita plötu
með sér. Gömlu félagarnir œtla að
halda áfram baráttunni og endur-
skipuleggja hljómsveitina. The
Vapors sló í gegn snemma árs 1980
með rokkaranum Turning Japan-
ese. Síðan hafa þeir verið lltt áber-
andi í heimsljósunum.
Hver skyldi það vera sem blœs svo
hressilega í saxófón á nýju Stones-
plötunni Tattoo Vou? Nei, nei, ekki
hann heldur gamla jazzkempan
Sonny Rollins. Og I laginu Slave
(þessu með innihaldsrtka textanum)
er það Pete Townshend sem þenur
gitar og syngur bakraddir.
Rolling Stones leggja upp i
hljómleikaferð nú í enda vikunnar.
Gömlu mennirnir ætla að koma víðar
við að þessu sinni og leika 121 borg i
Bandarlkjunum. Ferðinni lýkur 6.
desember og taka Rollingarnir sér þá
jólafrí. Með þeim verður í fórinni
gamall vinur og sálufélagi, hljóm-
borðsleikarinn lan StewarL
Madness sendu um miðjan mán-
uðinn frá sér litla plötu. Á A-hliðinni
er lagið Shut Up eftir Suggs og
Chrissy Boy og sá slðarnefndi á B-
lagið A Town With No Name. Kvik-
mynd Madness sem nefnist Take It
Or Leave It er nú nær tilbúin til sýn-
inga. — Hljómsveitin sendi fyrir
nokkru frá sér yfirlýsingu þar sem
hún neitar staðfastlega afskiptum af
neinu tagi, sér I lagi nasisma.
Rokkhljómleikar í sérflokki
NEFS í Félagsstofnun stúdenta var
þéttskipaður á laugardagskvöldið.
Þursarnir fóru rólega af stað en hertu
róðurinn þegar á lejð. í lokin var
rokkiðorðið alls raðandi og stemmn-
ingin komin upp úr öllu valdi.
Hljómsveitin var tvívegis klöppuð
upp. f fyrra skiptið lék hún You Are
So Beautiful í eftirminnilegri útsetn-
ingu og fór úr því lagi yfir í Jón var
kræfur. í seinna uppklappi þrusuðu
Þursar út Bíólagi Stuðmanna.
Þursaflokkurtnn hefur ekkt látið nýbylgjuna alveg fram hjá sér fara og leikur Tómas Tómasson nú orðið jöfnum höndum á
synthesizer og bassa. DB-mynd: Ragnar Th.
Kveður við kuldatón
Eftirtektarvert var á hljómleikun-
um að Þursafiokkurinn hefur ekki
látið nýju bylgjuna alveg fram hjá sér
fara. Tómas Tómasson leikur orðið
jöfnum höndum á synthesizer og
bassa. Synthesizerinn gefur tónlist-
inni futuriskan blæ og kuldalegan
eins og svo mjög tíðkast í rokk- og
diskótónlist í dag. Það leika því fleiri
kuldarokk hér á landi um þessar
mundir en Bara flokkurinn og er það
vel.
Lögin á prógrammi Þursanna voru
flest hver ný af nálinni. Einnig léku
þeir nokkur lög úr söngleiknum
Gretti. Tónlistin var kraftmikil og
skemmtileg áheyrnar. Þursarnir voru
allir I sínu bezta formi (og beztu
fötum) svo að áheyrendur fengu ríku-
legan skammt af rokki fyrir fimmtíu-
kallinn sinn í þetta skiptið.
Það eina sem mér þótti að konsert-
inum voru langar ræður Egils Ólafs-
sonar. Maðurinn er með þeim ein-
dæmum málglaður að hann ætti allt
eins heima í stjórnmálaflokki og
rokkflokki. En sungið getur Egill
flestum stéttarbræðrum sínum betur.
Hins vegar verður hann að vara sig á
að drepa ekki niður keyrslu pró-
grammsins með löngum ræðum milli
laga. Það ætti að vera auðvelt að
laga.
Nýefldir Þursar slógu rækilega í
gegn í Nýefldri Félagsstofnun stúd-
enta. Það er kannski hálf þversagnar-
kennt að tala um að jafn rótgróin
hljómsveit sem Þursaflokkurinn slái í
gegn en ég segi það nú samt. Á annað
ár er síðan hljómsveitin lék síðast
opinberlega í Reykjavík og síðan þá
hefur prógrammið verið stokkað
rækilega upp.
Þursarnir luku fyrir nokkru hring-
ferð um landið. Það er virðingarvert
og til fyrirmyndar að gallhörð
Reykjavíkurhljómsveit skuli leika úti
á landi áður en hún treður upp á
heimaslóðum. Landsbyggðin er svo
afskipt að flestu leyti (sic) að íbúar
þar eiga fyllilega skilið að heyra í
gæðarokkhljómsveit af mölinni á
undan hinum.
Jæja, nóg með það. Klúbbur
— Þursaflokkurinn ÍNEFS