Dagblaðið - 24.09.1981, Page 20
20
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1981.
Nýkomin heim eftir sex mánaða hjálparstarf í Kenya:
Sumir höföu aldrei
séö hvíta manneskju
og börnin veinuöu fyrst er þau sáu mig, segir Kristín Ingólfsdóttir
hjúkrunarfrœðingur
„Jú, því er ekki að neita að ég var
oft smeyk og einmanakenndin kom
mörgum sinnum yfir mig. Dvöiin var
hins vegar mjög þroskandi og lær->
dómsrík, enda var ég þarna í gjör-
ólíku þjóðfélagi þar sem lífsviðhorfin
voru allt önnur. Annars verð ég að
viðurkenna að mér leið vel og var
heppin að losna við alla þá sjúkdóma
sem þarna herjuðu,” sagði Kristín
Ingólfsdóttir 28 ára hjúkrunarfræð-
ingur sem nýlega er komin heim eftir
hálfs árs hjálparstarf í norðvestur-
hluta Kenya.
Fólk-síðan átti viðtal við Kristínu
áður en hún hélt utan og þá sagði hún
meðal annars, að hún kviði vissulega
fyrir að fara á svo frumstæðar slóðir.
En hvernig varð henni við þegar á
"'aðinn • ::r komið? „Ástandið var
v;ei ist sagt ömurlegt.Mikil hungurs-
. .ö níi hunl a. Ihuainir höfðu þó
fengið einhverjar óljósar fregnir að
von væri, á hjálp. Fólkið er afar
frumstætt og margt þeirra hafði
aldrei fyrr séð hvítan mann. Sum
börnin ráku upp vein þegar þau sáu
mig,” segir Kristín.
— Hvernig gekk ykkur að gera
það skiljanlegt sem þið voruð að
gera?
„Þarna voru örfáir sem gátu gert
sig skiljanlega á ensku og við notuð-
um þá sem túlka. Annars var ég allt-
af að læra einstök orð i þeirra
máli,” svarar Kristín. „Siðvenjur
þessa fólks voru með ólíkindum. Ef
það drap eitthvert dýr, drakk það
blóðið úr sárinu. Vegna þess var Iítið
um eggjahvítusjúkdóma þar sem
fólkið fékk prótein úr blóðinu og
fiskinum sem það fékk. Annað var
einnig einkennilegt, þegar sjúkdómar
gerðu vart við sig þá brenndu þeir ör
á þann stað sem þeir fundu til í,
þangað til fór að blæða. Með því
voru þeir að reka burt illa anda. Eins
og við var að búast gagnaði þessi
aðferð lítt sem lækning,” segir
Kristín ennfremur.
Hrærðu blóð yfir eldi
„Þá var það algeng sjón að sjá
börnin hræra í blóðinu yfir eldi til að
fá það til að storkna. Þegar það hafði
tekizt var blóðið borðað. En þrátt
Úrhellisrigning
í þrjár vikur
Kristín upplifði þá mestu rigningu
sem hún hefur getíð ímyndað sér að
væri til. „Það kom rigning og það
engin smárigning, þrumur og elding-
ar í heilar þrjár vikur. Ég hef bara
aldrei séð annað eins,” segir hún,
„enda hafði ekki rignt þarna í þrjú
ár. Það flæddi um allt, yfir alla vegi
og vatnspípan fór úr sambandi
þannig að rigningin setti mikið strik í
okkar starf. Allt tafðist út af henni.
Við þurftum að keyra í tiu klukku-
stundir til næsta þorps þar sem hægt
var að kaupa mat og áhöld,” segir
Kristín.
— Er ekki sex mánuðir langur tími
á slíkum stað?
„ Jú,” svarar hún. „Fyrst þegar ég
kom út og sá hvað mikið þurfti að
gera fannst mér langur tími framund-
an. Þegar starfið var komið í gang
breyttist þetta og ég held ég hefði
ekki viljað fara eftir þrjá mánuði.
Einungis vegna þess að það var svo
gaman að sjá hvernig fólkinu vegn-
aði. Að öðru leyti held ég að fjórir
mánuðir séu heppilegur tími. Þegar
við fórum í ágústlok var dásamlegt
að sjá framfarirnar og við vorum öll
mjög ánægð með störf okkar. Þetta
land sem við vorum á var áður mikið
landbúnaðarland og nú var búið að
planta miklu niður. Nokkrir sjálf-
boðaliðar frá Efnahagsbandalagi
Evrópu verða þarna núna og gefa
mat einu sinni á dag og aðaláherzla er
lögð á að gera fólkið sjálfbjarga,”
segir Kristín.
Um mánaðamótin tekur hún við
fyrra starfi sínu sem svæfingarhjúkr-
unarfræðingur á Borgarspítalanum
en dvölina á Thailandi og í Kenya
„ÞaO sem okkur fannst svo mikils virði var hve starf okkar bar mikinn
órangur, þannig aö viO gótum sóO þaO meO eigin augum. Einnig vil óg
taka fram aO viO fengum nægan mat handa fóikinu. ViO þurftum aOeins
aO ióta v'rta hverju við þyrftum á að haida," segir Kristín Ingóffsdóttír
hjúkrunarfræðingur sem dvalizt hefur um sex mónaða skeið í Kenya.
DB-mynd Sig. Þorri.
segir hún meiri reynslu en hún hafði
kynnzt i starfi sínu hér á landi. En ef
hún ætti þess kost að fara aftur hvað
þá? ,, Jú, eftir nokkra mánuði væri ég
til í að fara aftur en ég vildi þá breyta
til og fara eitthvað annað,” sagði
Kristín Ingólfsdóttir hjúkrunarfræð-
ingur. -ELA.
Guörún Helgadóttir sendir frá sér nýja barnabók:
FæOisskýii þeirra hjálparmanna. Góð samvinna myndaðist meOal
innfæddra og hjólparfólksins.
Kristin meO börnunum. „ÞaO kom mór mest á óvart hve börnin voru fijót
að nó sór".
Þurftum að byggja
upp hjálparstarfið
„Við fórum fjögur, tvær brezkar
hjúkrunarkonur, ég og brezkur farar-
stjóri,” heldur Kristín áfram. „Og
við þurftum að byrja á því að byggja
upp hjálparstarfið. Það fólst í því að
skrásetja alla íbúana, reisa fæðisskýli
þar sem við tókum inn sjúklinga,
börn, gamalmenni og barnshafandi
konur. í fæðisskýlinu fékk fólkið
mat 4—5 sinnum á dag. Að öðru leyti
dreifðum við matnum til fjölskyldna
en hann var sólþurrkaður fiskur,
matarolía og mulinn maís. Þeir sem
voru í fæðisskýlinu fengu að auki
hafragraut og mjólk.
í byrjun reyndist okkur erfitt að fá
mæður til að láta börn sín af hendi til
okkar. Þegar við sýndum þeim fram-
farirnar á þeim eftir meðferð hjá
okkur fór þetta smámsaman að
breytast. Það sem mér kom kannski
einmitt mest á óvart, fyrir utan
menninguna, voru þær framfarir sem
við sáum á börnunum. Við tókum við
þeim nær dánum úr sulti en þau voru
ótrúlega fljót að ná sér.”
fyrir alla þessa hörmung þá dansaði
þetta fólk og söng er kvölda tók. Eitt
kvöldið læddist ég út til að sjá þenn-
an stríðsdans og ætlaðist ekki til að
nokkur mundi sjá mig. Var eiginlega
í vafa um hvort ég væri velkomin.
Þau komu auga á mig og ég var drifin
í dansinn, lét eiginlega eins og hálf-
gert fífl,” segir Kristín og brosir að
öllu saman.
Það eru varla margir sem vildu
hafa verið í sporum Kristínar í
næstum fimmtíu gráðu hita. Búandi í
steinhúsi, sem vissulega var fínt hús á
mælikvarða Kenyamannanna, en
sem hélt ekki vatni né eitruðum skor-
kvikindum. Þrjú þeirra hjálparmann-
anna fengu enda malaríu og niður-
gangssjúkdóm. „Ég skil það bara
ekki en ég slapp við allt svona. Fékk
að visu nokkur bit en ekkert alvar-
legt,” segir Kristin brosandi. Hún
hafði áður starfað við hjálparstörf
um þriggja mánaða skeið og þá í
Thailandi. „Þetta var allt öðruvísi en
þar,” segir hún. „Sem betur fer
þurfti ég ekki að hafa áhyggjur af
skotárásum þarna eins og í Thai-
landi.”
Ævintýri sem jjallar um
landið og ástina
— verður gefiö út á Norðurlandamálum og á ensku
„Jú, það er rétt að Iðunn er að
gefa út nýja barnabók eftir mig,”
sagði Guðrún Helgadóttir, rithöf-
undur og alþingismaður, er Fólk-
síðan sló á þráðinn til hennar. Við
höfðum heyrt af því að þessi bók
væri væntanleg á markaðinn hér
heima næstu daga og hún mun einnig
eiga að koma út á fleiri tungumálum.
Bókin er myndskreytt af Brian Pilk-
ington sem þekktur er fyrir mynd-
skreytingu plötuumslaga.
„Þetta er lítil bók eða öllu heldur
ævintýri. Hún er að því leyti frá-
brugðin íslenzkum barnabókum að
hún er unnin með finustu tækni.
Myndir Brians eru líka alveg einstak-
lega fallegar. Ég skal viðurkenna að
þegar hann Jóhann hjá Iðunni nefndi
Brian við mig sem myndskreytara
varð ég ekkert allt of hrifin. Mér
fannst ekki að útlendingur gæti gert
þessar landslagsmyndir. Þetta breytt-
ist þegar ég sá fyrstu myndina því
hún var afskaplega falleg,” sagði
Guðrún ennfremur.
„Ævintýrið nefnist Ástarsögur úr
fjöllunum og er með þjóðlegri hefð.
Þarna leik ég mér með náttúruna og
ástina. Bókin er byggð þannig upp að
önnur blaðsíðan er mynd og hin texti.
Hugmyndina? Ja, það má kannski
segja að ég hafi fengið hana í Húsa-
felli í fyrrasumar. Það er mjög fallegt
í Húsafelli og þegar ég horfði á
landið þar, þá held ég að þetta
ævintýri hafi orðið til,” segir
Guðrún.
Hún hefur þegar gert samning við
útgáfufyrirtæki í Svíþjóð og hin
Norðurlöndin munu einnig hafa
áhuga. Þá er búið að þýða söguna á
ensku en það gerði Christopher Sand-
er sem dvaldi hér á landi um nokk-
urra ára skeið. Bókin var á bókasýn-
ingu á ítaliu í vor og vakti hún þá
mikla athygli.
— En fyrir hvaða aldur er hún
helzt?
„Þessari spurningu á ég alltaf erfitt
með að svara,” sagði Guðrún. „Ég
vona bara að hún sé fyrir allt fólk.
Og von mín er sú, að hún geti orðið
til að börnin líti öðruvísi á landið sitt,
er þau horfa út um bilgluggann,”
sagði Guðrún Helgadóttir. -ELA.
GuOrún Helgadóttir hefur látiO tra ser tara margar skemmtilegar barna-
bækur, nú er það ævintýri sem fró henni kemur, fallega myndskreytt af
Bretanum Brian Pilkington. DB-mynd Sig. Þorri.