Dagblaðið - 24.09.1981, Síða 28
Séð yftr hinn ftölmenna fund I sal Þinghólsskóla I gœrkvöldi. Að auki stóðu menn og
sátu I hliðargangi. Á innfelldu myndinni má sjá Ölaf Jens Pétursson í ræðustóli og
Guðna Jónsson fundarstjóra.
DB-mynd: Einar Ólason.
Stutt íað „video-hringvegurinn” lokist:
FRAMKVÆMDIR HAFN-
AR EÐA FYRIRHUGAÐAR
UM GERVALLT LANMD
—tengja má FM- og telexkerf i við videokerfin ef vil ji er fyrir hendi
„Það hefur orðið gifurleg hreyfing
á þessum málum núna síðustu vik-
urnar og ég hef nú hjá mér fyrir-
spurnir alls staðar að af Iandinu,”
sagði Örlygur Jónatansson hjá
Heimilistækjum við DB í gær.
„Segja má að nýjungar af einhverju
tagi komi fram svo að segja
mánaðarlega þannig að þróunin er
geysilega ör.”
í dag hefst lagning kapals um 70
íbúða hverfi í Ólafsvík og innan
skamms verður hafist handa við 40—
50 íbúða hverfi í Borgarnesi. Þá er
Akureyri með 550 ibúa hverfi á
listanum hjá Heimilistækjum. Þegar
hefur verið gengið frá lagningu
kapals í 40 íbúða hverfi í Stykkis-
hólmi og álíka stórt á Hvolsvelli.
Ennfremur hefur verið lagt í lítið
einbýlishúsahverfi í Vestmanna-
eyjum. Eyjamenn eru stórtækir og
hyggjast nú skipta bænum í ákveðin
svæði og ganga þannig frá hnútunum
að tengja megi öll svæðin saman með
einu handtaki ef þess þarf með.
Auk áðurnefndra staða hafa
komið fyrirspurnir frá Akranesi, ísa-
firði, Bolungarvík, Siglufirði, Eski-
firði, Neskaupstað og Hornafirði
þannig að óðum styttist í að „video-
hringvegurinn” lokist.
Að sögn Örlygs er hægt að nota
þessi kerfi til annars en sjónvarps-
sendinga eingöngu. Auðvelt er að
koma við FM-sendingum og þá er
einnig hægt að tengja svonefnt telex-
kerfi við tækin, en það ryður sér
óðum til rúms. Má einna helzt líkja
því við símaskrá þannig að viðkom-
andi getur, með því að ýta á einn
takka, kallað fram upplýsingar um
óliklegustu hluti.
Af framangreindu má glöggt ráða
að landsmenn eru komnir á kaf í
videó-bylgjuna og ef marka má hina
öru framþróun mála hérlendis
undanfarið verður þess varla langt að
bíða að íslendingar verði komnir í
fremstu röð á þessu sviði.
-SSv.
Fjölmennur fundur um skólamálin í Kópavogi:
Bæjarfulltrúar missa nið■
ur um sig biðilsbuxumar
— leyfi þeir sér slík skálkabrögð að selja Þinghólsskóla, sagði einn f undarmanna
fgærkvöld
„Þessu þarf að mótmæla svo hraust-
lega að enginn bæjarfulltrúi leyfi sér
slík skálkabrögð að selja Þinghólsskóla
og sá bæjarfulltrúi sem leyfir sér að
biðla til okkar í komandi bæjar-
stjórnarkosningum í vor mun hreinlega
missa niðrum sig biðilsbuxurnar,”
sagði Jón Sigurðsson bankamaður á
fjölmennum fundi, sem haldinn var í
Þinghólsskóla I Kópavogi i gærkvöldi.
Gizkað er á að um 300 manns hafi sótt
fundinn og var setið i sal skólans og
staðið í hliðargöngum.
Á fundinum var mótmælt harðlega
afhendingu Þinghólsskóla undir
Menntaskóla Kópavogs, þar sem slíkt
skerði stórlega starfsaðstöðu grunn-
skólans og framtíðarþróun. í öðru lagi
styður fundurinn framkomna tillögu í
skólanefnd um að bæjarstjórn hlutist
til um að stofnaður verði fjölbrauta-
skóli í Kópavogi. Einnig að bæjar-
stjórn taki upp viðræður við mennta-
málaráðuneyti um að MK verði hluti
af Fjölbrautaskólanum í Kópavogi
ásamt framhaldsdeildum Víghólaskóla
og Þinghólsskóla. f þriðja lagi leggur
fundurinn áherzlu á að nú þegar verði
leitað eftir húsnæði undir verknáms-
brautir fjölbrautaskóla. Loks að þegar
verði hafizt handa um að byggja yfir
umræddan fjölbrautaskóla.
Umræður á fundinum voru mjög
fjörugar í gærkvöldi Og stóð fundurinn
fram undir miðnætti. Flestir bæjar-
stjórnarmenn voru mættir sem
áheyrnarfulltrúar og komust að and-
stöðu fundarmanna við tillögur um að
leggja niður Þinghólsskóla.
Inn I umræðuna um stöðu grunn-
skólans í Kópavogi blönduðust málefni
Menntaskólans I Kópavogi og hin
slæma starfsaðstaða hans. Greinilegur
vilji var fyrir því að þróa hann sem fjöl-
brautaskóla og þá í nýju húsnæði. jh.
i
frjólst, úháð dagblað
FIMMTUDAGUR 24. SEP'1.1981.
Ölvaðurá
ofsa-
keyrslu
Mikill eltingarleikur hófst milli
ölvaðs ökumanns á fólksbíl og lögregl-
unnar á Seltjarnarnesi um kl. 24 i gær-
kvöldi. Lögreglan veitti athygli bíl á
Skólabraut sem mikill hávaði stafaði
af. Hugðist hún stöðva hann en öku-
maðurinn gaf bensínið í botn og ók á
■yfir 100 km hraða í átt til Reykjavíkur.
Eltingarleikurinn barst um Ægisíðu en
á gatnamótum þeirrar götu og Starhaga
ók bíllinn út af og náði lögreglumaður
ökumanninum. Var hann áberandi
ölvaður að sögn lögreglunnar og mesta
mildi að ekki hlauzt slys af ofsakeyrslu
hans. -ELA.
(TT TT tr
VIN Q NIN a m
IVIKU HVERRI
I DAG
ER SPURNINGIN:
í hvaða dálki, á hvaða blaðsíðu er
þessi smáauglýsing i blaðinu i dag?
í hvaða dálki, á hvaða blaðsiðu er
þessi smáauglýsing i blaðinu I dag?
Opið allan sóiarhringinn. Ath.
verðiö. Leigjum sendibila 12 og 9
manna meö eða án sæta. Lada
Sport, Mazda 323 statl'on og
fólksbfla. Daihatsu Charmani
station og fólksbila. Við sendum
bílinn. Sfmi 37688. Bilaleigan Vfk
sf., Grensásvegi 11, Rvk.
Hver er auglýsingasfmi Dagblaðs-
ins?
SJÁ NÁNAR Á BAKSÍÐU
BLAÐSINS Á FÖSTUDAG
Vinningur vikunnar:
Crown-sett
f rá Radíó-
búðinni
Vinningur I þessari viku er
Crown-sett frá Radióbúðinni,
Skipholti 19 Reykjavik.
t dag er birt á þessum stað I
blaðinu spuming, tengd smáaug-
lýsingum blaðsins, og nafh heppins
áskrifanda dregið át og birt í smá-
auglýsingadálkum á morgun.
Fylgizt vel með, áskrifendur, fyrir
næstu helgi verður einn ykkar
glæsilegu Crown-settiríkari.
hressir betur.