Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans - 23.07.1939, Page 8
8
SUNNÖDAGUR
Smælkí.
Mimnmœlin spyja:
Ef borin er út sæng hjóna á
sunnudagsmorgni, til að viðra hana,
]>á verður hjónaskilnaður.
Ef reiðhestur ier járnaður á
sunnudegi, þá heltist hann.
Ef maður gefur heitmey sinni
fyrst hníf eða skæri eða ©álar
eða nokkurt það járn, sem hefur
egg eða odd, verður ást þeirra
endaslepp, því að hún stingst þá
út. Sama er að segja um kunnings-
skap.
Ef bóndinn ferðast eitthvað, má
konan ekki búa um rúm hans hið
fyrsta kvöld, sem hann er að heim-
an, því að þá koma þau aldrei
framar í eina sæng.
Ef maður kveður' í rúmi sínu, þá
tekur maður framhjá.
Ef ólétt kona borðar rjúpuegg,
verður barnið freknótt.
***
Tvær stúlkur gátu sér mikinn
orðstír í London fyrir hve líkar*
þær voru og fyrir hve vel þær
sungu og dönsuðu. Vitaskuld aug-
lýstu þær, að þær væru tvíbura-
systur og hylli „tvíburanna“ fór
daglega vaxandi. En svo kom það
allt? í einu upp úr kafinu, að stúlk-
ur þessar voru allsendis óskyldar.
önnur þeirra trúlofaðist ungum
manni, sem hin vildi lika ná í, og
þá var vináttan óðar úti.
Kappreiðar á mótorhjólum eru miki ð iðkaðar erlendis og þykir spienn-
andi íþrótt. — Myndirnar eru frá mótorhjólakappreiðum á Jótlandi.
••
Jón litli er nýkominn heim úr
skólanum og lætur mikið yfir kunn-
áttu sinni. j
—Getur þú svarað öllum spurn-
ingmn kennarans?
— Já.
— Og hvernig geðjast kennaran-
um að úrlausnum þínum.
— Jú, hann er því miður oft ann-
arrar skoðunar en ég.
**
Nýgift kona á Skotlandi kom inn
í regnhlífarbúð og vildi hafa skipti
á regnhlíf sem hún hafði fengið
í brúðargjöf og annarri regnhlíf.
— Nei, við getum ekki skipt á
henni. Regnhlífin hefur ekki ver-
ið keypt hér.
— Það er samt yðar verzlunar-
merki á henni.
— Nei, við látum þetta rnerki á
liluti, sem koma hingað til við-
gerðar.
***
Á sjúkrahúsi einu í New York
var í vetur drengur nokkur til rann-
sóknar, sem var hið mesta undra-
barn á sína vísu. Drengurinn er 3.
ára að aldri og 160 cm. á hæð. En
pilturinn er ekki aðeins stór og
stæðilegur, heldur einnig hinn
mesti gáfumaður. Telja barnasál-
fræðingar að pilturinn hafi engu
minni andlegan þroska en v.enja
er til um 12 ára barn. Hann er bæði
læs og skrjfandi og gerir hvort-
tveggja mjög vel.
***
I Svíþjóð eru ennþá til ýmsar
fornar timburkirkjur, sem þykja
hinar merkilegustu. Eru rnenn í
vandræðum með hvernig þær verði
varðveittar gegn eldsvoðum og er
mikið um það ræjtt í Svíþjóð um
þessar mundir. Orsök þess að þessi
mál eru svo mjög á dagskrá, er sú,
að ein slík kirkja forkunnarfögur
brann nýlega. Helzt er rætt um að
setja sjálfvirka brunaboða í kirkj-
urnar, sem hringja strax og eldur
kviknar, því það hefur oft komið
fyrir að menn hafa ekki orðið elds-
ins varir fyrr en allt var orðið um
seinan.
Ábyrgðarmenn:
Ritstj. Þjóðviljans og Nýs lands
Víkingsprent h.f.