Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans

Tölublað
Aðalrit:

Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans - 26.01.1964, Blaðsíða 10

Sunnudagur  fylgirit Þjóðviljans - 26.01.1964, Blaðsíða 10
Rætt við Erling grasalæknir Framhald af bls. 16. urgómsstór, undir miðjan koppinn. Eg stakk gat á hana, og þá var liolt innúr í háls- inn. Svo bjó ég mér til blý- stil og kannaði inn í hálsinn. Eg gat kannað niður hálsinn og aftur á miðjan háls fram á móts við höku og 4 tommur beint inn í hálsinn — á því má sjá hve bólgan var mikil. Eg áleit að holið væri orðið það mikið, að það næði inn undir úf og aðeins tímaspurs- mál hvenær það opnaðist inn 1 munninn. TJr þessu kom ekkert nema dautt blóð, eins og svartasta blek á litinn. Svo fór ég að eprauta inn í það legi sem ég bý til úr grösum. Bólgan fór að smáminnka, og þegar ég sá hver áhrif þetta hafði notaði ég sömu aðferð við æxlin í kinninni. Þetta var auðvitað átumein — hver sem orsökin hefur verið, því það var aðeins fúið hold sem kom út úr sárinu. Þetta var um sumarið, en um haustið var maðurinn farinn að vinna á togurum og mun hafa verið hraustur siðan. Hann mun eiga heima vestur á Mýrum og hafa ver- ið vörður við Haffjarðará fyrir Thórsara. — Hefur þú trú á því að hægt sé að lækna alla sjúk- dóma með islenzkum jurtum? — Erlingur þegir fyrst við þessari spurningu, en segir svo: — Eg hef trú á þvi, að ef menn hafa aðeins nóga þekk- ingu og leggja sig nóg eftir því, þá sé hægt að lækna flesta sjúkdóma með ísl. jurt- um. — Veiztu til að fleiri grasa- læknar en þú séu nú í land- inu? — Nei, en það getur verið þótt ég viti það ekki. — Veiztu til að lækninga- máttur ísl. jurta hafi verið rannsakaður vísindalega ? — Það getur verið, og þá væri það náttúrlega við Há- skólann, en ég hef ekki haft spurnir af því. — Hafa læknar nokkuð reynt að kynnast lyfjum þín- um og áhrifum þeirra? — Nei, en einn þeirra hef- ur sagt við mig að ég þyrfti að skilja einhverja vitneskju eftir þegar ég færi, svo það væi’i hægt að rannsaka það — þá. — Byggir þú ekki fyrst og fremst á reynslu liðinna kyn- slóða í landinu? — Auðvitað er reynsla kynslóffanna undirstaðan að 22 — SUNNUDAGUR lækningum með jurtum, en þegar menn fara að stunda þetta hljóta þeir sjálfir að finna hvað við á í hverju tilfelli, því eigin reynsla er styrkasta stoðin. — Hefur þú þá sjálfur komizt að niðurstöðum sem þú vissir ekki um áður af reynslu annarra eða bókum? — Já, það er ýmislegt sem ég hef fundið sjálfur við reynsluna. við blöndun jurta og áhrif þeirra. — Nú eru það efnin í jurt- unum sem valda lækninga- mætti þeiira — er þá eklci blanda úr sömu efnum jafn- góð? — Eg álít einhæfara að taka eina jurt heldur en sjóða margar saman sem hafa sama gildi. En sundurliðun efn- anna í jurtinni — að vinna hin einstöku efni hennar ein sér og nota þau ein sér, álít ég að væri til stórskaða. Hver jurt er samsett úr mörgum efnum, hún þarf mörg efni til að byggjast upp, og þau efni geymir hún í sér, og þau má ekki skilja, þess vegna álít ég jurtaseyði betra en blöndu af efnum sem unnin væru úr jurtinni ein sér og notað máski eitthvað en öðru sleppt. — Við höfum enn raunar vart minnzt á sjómennsku þína og búskap, smíðar og kennslu og gætum því haldið áfram án enda. En hvað segir þú svo um tilveruna — eftir 90 ára dvöl í henni? — Eg hef eikkert nema gott um tilveruna að segja. Eg hef átt marga góða vini um ævina. Og þegar ég fer býst ég við að gera það sátt- ur við allt og alla. — Þú verður nú 100 ára! — Þá segi ég eins og Páll gamli Erlingsson, þegar ein- hver sagði í þessa átt við hann, þá svaraði Páll: Segðu sæll! Þetta er sagt í gamni, en mér væri sama hvort ég færi í kvöld eða á morgun, eða hvenær sem væri, ég kvíði ekkert fyrir því. — Þú ert ánægður með ævina ? — Já, ég er ánægður með að hafa lifað svo langan dag. — Hvað hefur þér þótt skemmtilegast ? — Skemmtilegust vinna held ég mér hafi þótt að liggja fyrir hákarli. Það er „spennandi" þegar maður er kominn með hann dálítið upp í sjó, þá glampar á hann niðri í sjónum, og svo er þetta svo stór skepna og gaman að glima við hann. Annars er hann ósköp geð- góður. þegar hann er kominn upp og veltir sér í sífellu, önnur eru ekki átökin við hann. Við komum honum í ró með því að um leið og hann rétti trjónuna uppúr sjónum sendum við honum skot úr byssunni og þá lá hann eins og staur við báts- hliðina — steindauður — en áður var voðabras hjá þeim við að drepa hann. Það er auðvitað álíka spennandi að taka línu seilaða af þorski eða draga hann óðan á hand- færi. En mér þófti gaman að allri vinnu hvort heldur var á sjó eða landi. Mesta lán mitt í lífinu hef- ur verið hvað ég eignaðist góða konu, bæði fjölhæfa til staifa og mikla húsmóður. Og einnig hvað ég hef verið heppinn með börnin mín, sem nú eru 9 á lifi. Þau vilja allt fyrir mig vinna svo mér líði sem bezt. Það er mikil ánægja og lán, að eiga svo mörg börn, öll vel gefin, bæði and- lega og líkamlega. Og síðast en ekki sízt: það er mjög skemmtilegt þegar mönnum sem þjást batnar og ánægjulegt að geta átt þátt í slíku. Og mér þykir mjög ánægjulegt að læknarnir, þéir sem ég hef kynnzt, taka mér eins og bróður, enda er það nú svo að hinir lærðu menn eru hættir að líta eins á sig frammi fyrir almúganum og þeir gerðu áður fyrr. Þannig voru heldur ekki allir áður, en það hefur kannski verið of mikið af slíku. Á æskuárum leit ég mjög upp til l,ækna og hefði helzt kosið &Ji verða lærður læknir. — En hvað viltu segja um Framhald af bls. 17. leita geisla sína á tjamslétt- an hafflötinn. Þá hljómaði úr öllum áttum til okkar hið seiðfagra lag sem ég heyrði nú aftur hér í viðtækinu minu í kvöld. Lagið var sent út frá ein- hverri útvarpsstöð í Portúgal en barst til okkar frá við- tækjum flestra eða allra hinna portúgölsku móður- skipa sem voru stödd hér á Grænlandsmiðum . fjarri heimalandi sínu. Þetta var fyrsta lagið hvert kvöld en síðan komu lögin eitt af öðru. Lög þrung- in af suðrænu fjöri. Trega- blandin lög. Lög mild og ang- urvær. Þannig leið þetta und- urfagra sumarkvöld í Davíðs- sundi. 1 austri sáust hin lágu skriðulausu klettaf jöll Vest- ur-Grænlands, en bak við þau, langt inn til landsins roðaði þjóðina og framtíð hennar? — Eg held, ef Islendingár verði einhverntíma svo heppn« ir að eiga góða ráðamenn fyr- ir þjóðina, þá séu framtíðar- horfurnar góðar hér á landi. Eg er nú búinn að lifa þetta lengi, 90 ár, og álít að upp- vaxandi kynslóð og þjóðin í heild sinni sé glæsilegri nú en hún hefur lengstaf verið um mína ævi. Möguleikarnir til bjargræðis hafa aldrei ver- ið meiri en nú. Æskan hefur aldrei átt kost á meiri fræðslu og menntun en nú. En menn eru látnir sitja yfir fræðum sem e.t.v. koma þeim aldrei að að gagni í lífinu, en það er ekki hugsað um að laða fram í hverri persónu það sem hún hefur mestan áhuga fyrii- óg vill vinna. Og allskonar for- heimskunaröfl hafa aldrei verið sterkari en nú. Það væri ömurlegt ef það tækist að gera þessa glæsilegustu æsku landsins að hópsál, sem lætur hugsa fyrir sig. Hugsunar- hátturinn: Náungi þinn er til þess að þú græðir á honum, leiðir aðeins til ófarnaðar og dauða. Enn er í fullu gildi boðorðið um að vinna saman og hjálpast að því að gera lífið betra og fullkomnara. Beri íslenzka þjóðin gæfu til að vinna saman að auk- inni menningu, þroska, vel- gengni og jafnrétti allra eru framtíðarhorfurnar góðar. Við þökkum Erlingi fyrir góð og fróðleg svör og ósk- um honum langra lífdaga, hreysti og lífsgleði. J. B. kvöldsólin hina miklu Græn- landsjökla. 1 vestri sást jaðra fyrir lágri strönd sennilega þess lands sem Islendingar hinir fornu kölluðu Markland. Það leið að miðnætti. Við vorum búnir í aðgerðinni og að hreinsa borð og dekk. Sól- in sást í norðri það var eins og hún rétt tyllti sér á sjó- inn því sumri var tekið áð halla, en fyrr í sumar ságt sólin hátt á lofti allan sólar- hringinn á þessum slóðum. , Ómar viðtækjanna þögnuðu og djúp kyrrð ríkti yfir öllu. Enn einn dagur var liðinn óg menn tóku á sig náðir, til- búnir að byrja á sömu störf- um daginn eftir. En þó — ekki voru allir sem fengu strax að njóta hvíldar þvi á skipum á hafi úti verða allt- af einhverjir að halda vöi'ð og þessa nótt var gott að eiga vöku. Skrifað í janúar 1964. ) Kvöld á Davíðssundi

x

Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans
https://timarit.is/publication/261

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.