Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans

Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans - 12.07.1964, Qupperneq 3

Sunnudagur  fylgirit Þjóðviljans - 12.07.1964, Qupperneq 3
Rósa og Snati Dag nokkurn sag'öi mamma við Rósu litlu: „Hvaða gestir heldur þú að komi í heimsókn til okkar í dag?“ Rósa hugsaði sig um og sagði síðan: „Afi og amma." „Það er alveg rétt,“ sagði mamma hennar, og nú skulum við gefa afa og ömmu eitthvað gott að drekka." „Hvað eigum við að gefa þeim að drekka?“ spurði Rósa. „Því mátt þú ráða“, sagði mamma. „Þá hitum við kakó handa þeim,“ sagði Rósa strax, „ertu ekki sam- mála, Snati?“ Snati veitti samþykki sitt með því að gelta. Snata og Rósu þótti kakó mjög gott. Mamma setti pottinn á eldavél- ina og hitaði kakóið, síðan setti hún pottiiín út i garð þil a« kgelft diyKkmn. Þegar mamma vár farin inn gægðist Rósa ofan í pottinn. En hvað þetta var nú mikið, pott- urinn var næstum því fullur. Ég hlýt að mega bragða aðeins á þessu, hugsaði Rósa með sér, afi og amma geta ekki drukkið þetta allt sam- an. Hún fór inn og náði í skeið og áöur en langt um leið var hún langt komin með allt kakóiö sem átti að vera handa afa og ömmu. En hún hafði ekki drukkiö það allt, kjóllinn hennar var nefnilega allur Hellnarístur Árið 1878 fundust hellnaristur í hinum fræga Altmirahelli á Norð- ur-Spáni. Þessar myndir eru álitn- ar vera 25.000 ára gamlar, en þegar finnandi á sínum tíma benti sagn- fræðingum á fundinn, vildi enginn trúa því, að þær væru svo gamlar. Meira að segja álitu flestir, að finn- andinn hefði teiknað þær sjálfur. Og það var ekki fyrr en árið 1895, þegar menn fundu myndir af sömu gerð í öðrum helli við la Mouthe, að viðurkennt var, að finnandinn hefði haft rétt fyrir sér. En þá var vesalings maðurinn orðinn sturlað- ur, vegna þess, aö enginn hafði vilj- að trúa honum. i . ■ , útataður í kakói. Snati vildi líka fá að bragða á drykknum. Hann stökk á pottinn og þá fór illa. Pott- urinn valt um koll og það sem eft- ir var af kakóinu slettist yfir Rósu og Snata. Þá kallaði mamma á Rósu og sagði henni að koma inn, því nú færu afi og amma að koma. Hermi brá illa þegar hún sá útganginn á Rósu, og aumingja Rósa var svo hrædd um að mamma yrði vond að hún fór að hágráta. En mamma varð ekki vond, hún fór að skelli- hlæja þegar hún sá Rósu og Snata. Svo fór hún með þau inn og þvoði þeim hátt og lágt. Rósa og Snati voru bæði tandurhrein og fín þeg- ar amma og afi komu. Og auðvit- að varð mamma að búa til nýtt kakó. — Rakel Jónsdóttir 12 ára, ■***>•--. > - —J - rn rjjjftTTn-jglgr- Þessa skemmtilegu mynd tók Ijós- myndari blaðsins einn góðviðrisdag í sumar. Litli snáðinn var að Iéika sér í garðinum hjá Laufásborg. I>ví aniður vitum við ekki hvað hann heitir, en við vonum að hann verði ánægður með inyivdina af sér í úskastundinni. Þessar myndir teiknaði Ragnar Lár- usson, Þinghólsbraut 2, Kópavogi. Ragnar skrifaði skemmtilegt bréf með myndinni og segir þar m. a. að hann sé bara 6 ára, en verði 7 ára í febrúar. Okkur finnst Ragnar mjög duglegur að teikna og skrifa og okkur þætti vænt um að fá meira efni frá honum til birt- ingar. Myndin er af Nonna úr Mos- fellssveitinni og Blesa. Nonni er frændi Ragnars. Kannski Nonni sjái þessa iuýna af sér í babinú og sendi okkur línu. Það væri gaman áð fá að heyra eitthvað um Blesa. Mussafar Framhaíd af 1. síðu. perlur. Furstinn hoppaöi upp og kallaöi: „Bindiö þjófinn. Þessar 4 perlur eru þær, sem stoliö var úr fjárhirzlum mínum.“ En áður en varðmennirnir gátu gripið Mussafar sagði hann: „Hvað- an haldið þér, yðar hágöfgi, að þessar séu komnar.?“ Og þvínæst stráði hann handfylli af perlum á marmaragólfiö. Skelfingu lostinn leitaði furstinn ráða hjá ráðgjafan- um. Þrællinn hafði sýnt fram á að furstinn var lygari fyrir framan alla hirðina, þessvegna skyldi honum verða kastað í hina dýpstu dýflissu. En ráðgjafinn sagði með mikilli varkárni: „Þessi þræll er fær um aö finna leiðina, sem liggur til Sólar- og Tunglvatnsins. Á strönd þess eru sjaldgæfustu dýrgripir jarðar. Hann getur náð þeim fyrir þig.“ Enn á ný vaknaði ágirnd furst- ans. Hann skipaöi Mussafar að leggja af stað og í. þetta sinni lét hann hann hafa meðferðis úlfaida, og hann krafðist, að Mussafar kæmi meö hann aftur klyfjaðan af gulli og gimsteinum. Fx-amhald í næsta blaöi. ÓSKASTUND (3

x

Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans
https://timarit.is/publication/261

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.