Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans

Tölublað
Aðalrit:

Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans - 15.11.1964, Blaðsíða 2

Sunnudagur  fylgirit Þjóðviljans - 15.11.1964, Blaðsíða 2
DREKAHOFÐINGINN KÍNVERSKT ÆVINTÝRI AÖeins nokkrum stundum síðar ]kom sendiboði frá konungi himins. Drekahöföinginn klæddist sínum fegursta skrúða og tók á móti hon- um. En þegar hann las bréfið frá konungi himins fölnaði hann. í bréfinu stóð: — Það hefur ekki rignt nógu mikið í Changan upp á síðkastið. Gjörðu svo vel og l'áttu rigna á morgun frá stundarfjórðungi yfir níu þangað til klukkan þrjú. Þegar sendiboðinn var farinn sagði drekahöfðinginn við ráðgjafa sinn: — Hvað á ég að gera? — Nú, sagði ráðgjafinn, ég sé ekki að þetta sé erfitt viðureignar. Himinninn vill að það rigni. En þú getur látið rigna örlítið fyrr eða seinna, og ef þeir taka eftir því þá held ég ekki að þeir muni neitt skipta sér af því. Svo að drekahöfðinginn lét rigna jfrá dögun til klukkan níu. Síðan fór hann aftur til spámannsins. — Þú hafðir rangt fyrir þér, sagði hann, nú mun enginn trúa þér oftar. En spámaðurinn leit á hann hrygg- ur í bragði. — Ég hafði ekki rangt fyrir mér, sagði hann, þú heimski, heimski dreki. Þú hefur óhlýðnast konungi himins. Hann skipaði svo fyrir að rigna ætti nákvæmlega eins og ég spáði og þú lézt rigna fyrr og á röngum stað. Ég er hræddur um að þú hafir enga von. — Enga von, hrópaði drekinn. Hversvegna, hvað mun koma fyrir? — Refsingin fyrir að óhlýðnast konungi himins er dauði, og him- inninn hefur dæmt þig til dauða. Klukkan tólf í nótt mun aðalráð- gjafi keisarans í Kína verða kallað- ur upp til himna og honum skipað að hálshöggva þig þegar 1 stað. HEILABROT Hvaða tvær flugvélar af þessum fimm eru eins? Z — OSKASTUNDIN Hve mikið eru tíu í tvo? EOver fær fimm. Gáta: Nokkrar þeirra fara inn í herbergið, en aldrei út, en aðrar fara alltaf út úr herberginu, en aldrei inn. — Hverjar eru það? — Hurðirnar. Kóngur nokkur átti tvíburasyni, sem báðir áttu að erfa krónu hans. Hvaö gerði kóngurinn? Gaf hvorum fyrir sig fimmtíu aura. Hvað er þaö sem gíraffar fá, en engin dýr önnur. Gíraffaunga. Getið þið hjálpað Óla litla til þess að raða tölunum frá 1—9, þannig að lagt við 5, hvort sem lesið er á ská, beint, eða niður verði niðurstaðan 15?

x

Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans
https://timarit.is/publication/261

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.