Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1977, Qupperneq 1
Bœndur athugib!
Eins og fram kemur í aðalfundargerð Rf. Nl. árið 1977 hér í
ritinu, var samþykkt tillaga þess efnis að félaginu er heimilt
að panta ýmis konar smávörur, sem henta til notkunar í
landbúnaði. Svo að kynning á þessum vörum geti orðið sem
víðtækust án óhóflegrar fyrirhafnar og kostnaðar viljum við
vekja athygli á þessu hér, og bjóða bændum þær til kaups.
Eins og nærri má geta eru engin tök á að nefna nema örfáa
hluti hér af þeim aragrúa sem á boðstólum eru, en auk þess
sem vöruskrá og verðlisti liggur fyrir hjá Rf. Nl. og hjá bún-
aðarsamböndunum er í ráði að útbúa sæmilegan útdrátt úr
skránni og senda hana sem flestum bændum á svæðinu.
A næstu síðu eru nefndir nokkrir hlutir, sem flestir hafa
þegar verið pantaðir og eru í fórum Ræktunarfélagsins þeg-
ar þetta er ritað. Til hægðarauka þeim sem pöntun vilja
gera fylgir pöntunarseðill hér neðan við.
Verðið er áætlað og gæti því breyst eitthvað fram að næstu
sendingu ef af verður.
PÖNTUNARSEÐILL Ræktunarfélag Norðurlands
Pósthólf 309, 602, Akureyri
Vara nr.
Vöruheiti
Stykk jaf jöldi
Nafn:
Heimilisfang: