Auglýsarinn


Auglýsarinn - 20.07.1902, Qupperneq 2

Auglýsarinn - 20.07.1902, Qupperneq 2
98 AUOrLÝSARINN. [20. júlí 1902. Frá útlömlum England. Talið er nú víst að Játvarður konungur muni verða heill heilsu innan skamms. Kveða menn nú líklegt, að krýning hans muni geta fram farið í öndverð- um ágústmánuði næstkomandi. Vilja læknar hans nú að hann flytji sig frá Lundúnum um hríð meðan hann er að hressast til þess að geta notið betra lofts ut- anborgar, Er konungur orðinn allvel hx-ess eftir því sem von má telja, eftir svo hættulegan lækna- skurð. Halda menn að eigi muni verða eins mikið um dýrðir við krýninguna og til var stofnað í upphafi vegna þessara ónotalegu forfalla. Getið er þess að Salis- bury gamli muni nú segja af sér og muni þá annaðhvort Balfour eða Chamberlain komast í sess hans. Kitchener er nú kominn heim til Englands úr Bjarmalands- för sinni til Búa og átti að fagna honum vel að sögn. I Afríkustriðinu er sagt að Bretar hafi alls yfir misst 28,434 menn bæði foringja og liðsmenn 105 hafa „týnzt“, en 5,879 lifa við örkumsl. Danmörk. Danakonungur og Friðrik erfðaprins eru í ferðalög- um erlendis nú sem stendur, er Kristján prins Friðriksson því rík- isstjóri á meðan og býr í höll einni, er hann sjálfur á í Arósum. Dáinn er Oskar Madsen, rithöf- undur, ungur maður og efnilegur. Noregur. Þaðan er það helzt fréttnæmt, að stórkostlegur elds- voði geysaði í Lárvík 1. júlí. Tjónið metið á aðra milj, kr. 150 hús brunnu og 2000 manns urðu húsvilltir. Sviþjóð. Þar hefir nýtt ráða- neyti komizt til valda. Boström nefnist formaðurinn og hefir hann áður verið ráðgjafi og talinn spak- ur að viti o^ ágætur stjórnmmála- maður. Oskar konungur hefir sæmt valmennið Sven Hedin að- alsmannsnafnbót. Slys hafa frétzt frá ýmsum stöðum 10. þ. mán. fórst um 200 manns í kolanámu í Pennsylvaniu í Ameríku. Annað slys kom þar líka fyrir í þessum mánuði við Gloversville. Tveir rafmagnsvagn- ar ultu hver á eftir öðrum ofan fjallshlíð unz þeir fóru út af brautinni og fórust þar gersam- lega og allir, er á voru. Peleé- fjallið er sagt að sé enn þá að gjósa í Vestureyjum. Það hafði gosið 19. júní og eytt 22 hús í Basse Pointe. Sagt er að hræðileg kólera gangi í Sundaeyjum hinum meiri við Asíu og svarti dauði er að stinga sér niður í Miklagarði. Úr bæiium og greudinni. „LAURA“ kom að kvöldi 18. þ. m. með fjölda fólks. Fríherra H. K. Jaden með frú sína Astu frá Vínarborg. Einar Benedikts- son kom frá Englandi með sinni frú. Olafur bókavörður Jónsson frá Chicago og Benedikt frá Skál- holtskoti með konu og börn frá Ameriku, ásamt fleirum þaðan. Frá Höfn komu stúdentarnir Bjarni Hjaltested og Jón Hallsson Isleifs- son. Margir útlendingar höfðu og komið, farþegar alls um 70 á skipinu hingað. Til Þiiigvalla gengur luktur vagn á hverjum laugardegi, og oftar, ef nógu margir farþegar gefa sig fram. Nánari upplýsingar gefur hr. Páll Steingrímsson póstþjónn. E>orst. J. Davíðsson. Sveita- og sjávarmenn sem skulda mjer undir- rituðum eru hjer með vinsamlega beðnir að greiða mjer það í vor og í sumar, eða að öðr- um kosti semja við mig um það fyrir haustið, en sje það ekki gjört, neyðist jeg til að afhenda skuldirnar til innheimtu. Jóh. Jóhaimessoii, skósmiður. yið verzlun Sigf. Eymundssonar fást mjög vandaðar „möbler“. ! Alt illIÍIIK|IÍI ] tekjeg að mjer nú þegar. ,! Vilborg Jónsdóttir jj 3 LAUFÁSVEG 3. ] aaaiaiaaaiaiiiigiiisiaagiiaisiaiiaiiaim; \ FuntaiSt hefur úr á Bankastræti, neðarlega. Vitja má þess á Laugaveg 37. Ta,pa,st hefur herða- sjal, bleikt, frá Laugaveg 2 nið- ur að Thomsensbúð. Skilist á Laugaveg 37. Notifl pia veðrifl. Konum og körlum, gefst nú færi á að fara til GEYSIS, á góðum hestum, fyrir mjög sanngjarna borgun. Talið við Dan. Danielsson fyrir næstkomandi miðvikudag. Ullostuskur ætti helzt að senda til Egils Eyjólfs- sonar, Laugaveg 31, sem lætur vinna úr þeim vönduðust og ódýrust fataefni. X alfatnaS 3 áln. tviíor., adeins 4 pd. tusliTir og 1 X3C3L. TJLL. Stúrt úrval af sýnishornum. Lægst vinnulaun. Minnst af ull. jgjgy Gjörið svo vel að líta á sýnis- hornin og verðið. Fleiötoeizli með koparstöngum og leðurtaumum tapaðist fyrra sunnudag á Kolla- fjarðareyrum. Finnandi er beð- inn að skila mót fundarlaunum til P. Pjeturssonar Smiðjustig. TcJdPftSTfc hefur nýsilf- urbúin svipa frá húsi Eiríks Bjarnasonar járnsmiðs að húsi Kristj. Þorgrímssonar. Skilist í búð Helga kaupm. Helgasonar. tekur að sjer allskonar fata og Ijerefta saum. Vönduð vinna mjög ódýr. Anna Benidiktsdóttir. 27 Laugaveg 27.

x

Auglýsarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Auglýsarinn
https://timarit.is/publication/272

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.