Auglýsarinn - 21.09.1902, Blaðsíða 2

Auglýsarinn - 21.09.1902, Blaðsíða 2
134 AUGLÝSARINN. [21. sept.br. 1902. (r bæiuini og grendiimi. „Vesta“ kom 19. þ. m. Frá Höfn komu: Páll Halldórsson stýrimannaskólastjóri, Mattías S. Þórðarson stud. mag., og Björn Magnússon stúd. Frá Ameríku komu Hreggviður Þorsteinsson frá Meiðastöðum í ’ Garði og móðir hans, hún alkomin til landsins, en sagt að Hreggviður fari aftur vest- ur. Sagt var að bólan vœri nú að eins í sjúkrahúsinu í Þórshöfn og allir ú batavegi, er höfðu feng- ið hana, en eigi tók „Vesta“ þar póst og engum var hleypt upp á skipið. — Ennfremur kom séra Magnús Jónsson í Vallanesi, frá Seyðisfirði með 2 dætur sínar og frk. Guðrún Blöndal og fjöldi af kaupafólki. Guðlaugr Guðmundsson sýslumann hefir Vilhjálmur Þýska- landskeisari sæmt krossi af arnar- orðunni rauðu 3. flokki. Dannebrogsmenn eru orðnir Olafur Ólafsson bæjarfulltrúi (fyr í Lækjarkoti). Jón Jónsson hreppst. í Bygðarholti í Austur-Skaftafells- sýslu og Páll Olafsson bóndi á Akri í Húnavatnssýslu. Útgefanda „Auglýsarans“ hefir borizt svolátandi bréf frá einum lesanda blaðsins: „Herra ritstjóri! Þér hafið í nokkrum tölublöðum „Auglýsarans“ ílutt greinar eftir Flammarion „úrheimi sálarinnar“, sem hafa á ser einkennilegan blæ og eru skemmtandi og vekjandi íyrir lesarann. Allir slíkir við- burðir hafa mjög mikla þýðingu óg virðast vera verðir athugunar. Eg þori að fullyrða að slíkir við- burðir eiga sér stað hér á landi, og ef vel væri leitað, mundi margt slíkt finnast hér, sem væri eins eftirtektarvert. Eg held að það sé jafnvert at- hugunar, sem við ber í heimi sál- arinnar hjá íslenzku þjóðinni sem hjá öðrum þjóðum. Væri ekki vert að gera tilraun til þess að fá lesendur „Auglýs- arans“ til að segja frá viðburðum, sem ganga í líka átt og Flamm- arion flytur? Nöfn heimildarmanna, fyrir slíkum viðburðum þyrftu ekki að birtast. S.“ Utgefandi er algerlega á sama máli og höfundur bréfs þessa og álitur það æskilegt ef hægt væri að fá íslenzkar sögur, sem gerð- ust á sama svæði og sögur þær hinar útlendu, sem blaðið hefir nú um hríð flutt og nefnast: ,„Úr heimi sálarinnar“. Vildum vér því beina máli voru til lesenda „Auglýsarans“ og leyfa oss að skora á þá að senda oss slíkar sögur. Vér hyggjum að nóg muni vera af þeim mönnuin hér á landi, er slíkar sögur kunna og að slíkir sálarlegir viðburðir eigi sér ekki síður stað á íslandi en annarsstaðar. Vér vonum að menn sinni þessu og mun nöfn- unum verða leynt ef menn óska þess, þótt þá sé að vísu eigi eins na:g trygging fengin fyrir áreiðan- leika sagnanna, sem nauðsyhleg er þó, ef rannsaka ætti slíka við- hurði með mælikvarða visindanna. Frásagan um viðureign Heklunga og götudrengjanna í síðasta blaði „Auglýsarans“, sem höfð var eftir tveimur sjónarvott- um (sjómönnum), hefir re)rnzt of- hermd. Sannleikurinn var, að Heklumenn voru að æfa sig í skilmingu fyrir vestan Landakot og þyrftust að þeim strákar, er létu mjög illa og fleygðu í þá smásteinum. Voru strákarnir svo nærgöngulir, að einn hruflaðist örlítið. Einn drengurinn hafði borið danska flaggmerkið í jakka horninu og hafði þá einn liðsmað- urinn sagt eitthvað í þá átt, að hann hefði ekki leyfi til að bera það merki þar sem hann léti svo illa. Annars ekki viðhaft nein ó- viðurkvæmileg orð. „SkálhoIt“ kom í gærmorg- un með fjölda manns. Sagt var að farþegar hefðu verið hátt á fjórða hundrað manns. Þar á meðal Þorleifur kennari Bjarna- son, séra Helgi Arnason í Ólafs- vík. Flest af íarþegunum kaupafólk og námsfólk og starfsmenn hvaðan æfa að norðan og vestan Stýrimannaskólinn. Forstöðumaður hans, lierra Páll Halldórsson kapt., kom um dag- inn með Vestu. Hefir leyst af hendi í sumar erlendis vélmeist- arapróf m. m. Úr heinii sálarinnar. [Framh.] XVIII. Vér höfum nú um hríð sagt mik- inn fjölda sagna og svo má virðast, sem þær sé í rauninni allar endur_ teking hvor á annari, þótt þær sé verulega ólikar í sjálfu sér. Vér viljum enn þá tilfæra nokkrar, sem eru roeð talsverðum öðrum blæ, en engn síður skemmtilegar aflestrar og merkilegar til rannsókna. Vér lítum svo á, að hver sá, sem les þær, geti eins og stig af stigi orðið lærðari í þessari vísindagrein, því að sögunum er þannig niðurraðað. Frú Adams í Parísarborg skrifaði eftirfarandi bréf 29. nóv. 1898 til herra Gastons Méry. Var það svar upp á spurning, er hanu hafði sent henni um „yfirnáttúrlega hluti“. „Eg var uppalin hjá ömmu minni, sem mér þótti óvenjulega vænt um. Þótt hún gengi með hættulegan sjúkdóm, var eg dulin þess af því að eg hafði lika nýlega alið barn og monti álitu, að eg myndi eigi þola ueina geðshræring. Eitt kvöld um kl. 10 var eg til rekkju gengin og lét týra á nátt- lampa. Eg hafði bluudað dálítið, en vaknaði svo við grát litlu dóttur minnar og í sama bili sá eg ömmu mína standa við fótagaflinn á rúm- inu míuu. Eg kallaði upp: „Nei, amma mín, en hvað það er gainan að sjá þig!“ Hún anzaði mér ekki, en strauk hendinni upp um augun. Eg sá tvœr galtómar augríatóftir! Eg stökk í hálfgerðu ofboði ofan úr rúminu og ætlaði að faðma ömmu mína að mér og gá að hvort mér missýndist ekki, en þá hvarf sýnin i sama bili.

x

Auglýsarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Auglýsarinn
https://timarit.is/publication/272

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.