Takmark - Fréttabréf Krabbameinsfélags Reykjavíkur - 01.12.1993, Qupperneq 1

Takmark - Fréttabréf Krabbameinsfélags Reykjavíkur - 01.12.1993, Qupperneq 1
Fréttabréf Krabbameinsfélags Reykjavíkur Útgefandi: Krabbameinsfélag Reykjavíkur, Skógar- hlíð 8, Reykjavík. Abyrgðarmaður: Jóhannes Tómasson 1. tbl. 12. árg. des. 1993 Fylgt úr hlaði Stjórn Krabbameinsfélags Reykjavíkur hefur um skeið rætt nauðsyn þess að hafa meira samband við félagsmenn til að upplýsa þá betur um starfsemi félagsins og markmið. Því er farið af stað aftur með útgáfu blaðsins Takmarks og nú í formi félagsfrétta. Takmark á rætur að rekja allt til ársins 1976. Það var gefið út um tíu ára skeið og helgað baráttunni gegn reykingum sérstaklega og einkum dreift til bama og unglinga í skólum landsins. Ekki er ætlunin að gefa út glæsitímarit oft á ári heldur senda ykkur stuttar fréttir á einfaldan og ódýran hátt. Starfsmenn og stjóm sjá um útgáfuna og koma á framfæri því sem þurfa þykir. Hugmyndin er einnig að nota fréttabréfið sem kynningu á félaginu í því skyni aðfá fleiri til að gerast félagar. ábendingarfráfélagsmönnum. Hringið í starfsmenn eða skrifið okkur línu! Og munið að nýir félagar eru ávallt velkomnir. Stjórnin Eftir aðalfund Krabbameinsfélags Reykjavíkur 29. mars sl. er stjómin þannig skipuð: Formaður er Sigríður Lister hjúkrunarforstjóri, varaformaðurÞórarinn Sveinsson yfirlæknir, gjaldkeri Ólafur Haraidsson aðstoðarsparisjóðsstjóri og ritari er María Sólveig Héðinsdóttir skólastjóri. Meðstjórnendur eru Erla Einarsdóttir gjaldkeri, Katrín Fjeldsted læknir og S veinn Magnússon héraðslæknir. Varamenn eru Gyða Baldursdóttir hjúkrunarfræðingur, Guðjón Vilbergsson læknir og Jóhannes Tómasson blaðamaður. í fræðslunefnd félagsins em þau María Sólveig sem er formaður, Gyða, Þórarinn og Jóhannes svo og Reynir Tómas Geirsson læknir. Auk þess að birta fréttir af starfseminni verður blaðið opið fyrir stutta pistla og

x

Takmark - Fréttabréf Krabbameinsfélags Reykjavíkur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Takmark - Fréttabréf Krabbameinsfélags Reykjavíkur
https://timarit.is/publication/277

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.