Takmark - Fréttabréf Krabbameinsfélags Reykjavíkur - 01.12.1993, Side 3
Öflugt fræðslustarf í
grunnskólunum
Senn eru liðin 18 ár frá því að K.R.
hóf í samráði við skóla- og
heilbrigðisyfirvöld skipulegt og sam-
fellt fræðslustarf í grunnskólum
landsins. Uppistaðan í þessu starfi
eru heimsóknir til nemenda í
kennslustundum til að fræða þá í
máli og rnyndum um skaðsemi
tóbaksneyslu og gildi heilbrigðra
lífshátta.
í vetur er þessi fræðsla með hefðbundnum
hætti, farið í alla 6. til 10. bekki á
höfuðborgarsvæðinu, á Suðumesjum og
þeim stöðum öðrum þar sem venja er að
koma árlega. Jafnan hefur verið
kappkostað að fara í sem flesta skóla
utan þessara svæða og verður svo enn,
endahafamargaróskirumþað boristfrá
landsbyggðinni.
í fyrra náðu heimsóknir félagsins til meira
en 14 þúsund grunnskólanema í 57
skólum. Krabbameinsfélag Akureyrar og
nágrennis, krabbameinsfélögin á
Austurlandi og Krabbameinsfélag
Ámessýslu héldu auk þess uppi sams
konar fræðslu á svæðum sínum með
aðstoð frá K.R. Mikilvægt er að þetta
starf krabbameinssamatakanna sé öflugt
ognái semvíðast. Þaðávafalaustmikinn
þátt í að stórlega dró úr reykingum bama
og unglinga hér á landi. Séu þær aftur að
aukast er það hvatning til enn meira
átaks. Happdrætti Krabbameinsfélagsins
leggur til bróðurpartinn af því fé sem
þarf til tóbaksvamastarfsins í skólunum.
Reyklausir vinnustaðir
Árið 1992 stóð Tóbaksvamanefnd
fyrir átaki sem nefndist: Hreint loft
í heila viku. Enn gætir áhrifa þess
og berast félaginu oft óskir um fúndi
til að ræða um reyklausa vinnu-
staði.Hafa um 30 vinnustaðafundir
verið haldnir á árinu. Mörg hundmð
vinnustaðir hafa þegar tilkynnt að
þeirséureyklausir. Flugleiðirhf.er
fjölmennasta fyrirtækið sem í hlut
á. Allar starfsstöðvar þess em reyk-
lausar. Nokkur bæjarfélög hafa
leitað ráðgjafar hjá Krabba-
meinsfélaginu um takmörkun á
reykingum.
Jólahappdrætti
Krabbameinsfélagsins
Seinna happdrætti Krabbameins-
félagsins var óvenju síðubúið í ár.
Miðar vom ekki póstlagðir fyrr en í
lok nóvember. Þetta var af ráðnum
huga gert til að stytta tímann frá
útsendingu til dráttar.
Fyrir bragðið þótti nafnið haust-
happdrætti ekki lengur við hæfi en
þess í stað er talað um jólahappdrætti
enda dregið 24. desember svo sem
verið hefur. Meðal vinninga em fjórir
bílar af Opel gerð. í jólahapppdrættinu
em það konumar sem fá miða senda
og satt að segja hafa þær jafnaðarlega
veitt happdrættinu enn ömggari
stuðning en karlamir.