Takmark - Fréttabréf Krabbameinsfélags Reykjavíkur - 01.03.2005, Side 1
Fréttabréf Krabbameinsfélags Reykjavíkur
Útgefandi:
Krabbameinsfélag
Reykjavíkur, Skógar-
hlíð 8, Reykjavík.
Abyrgðarmaður:
Jóhannes Tómasson
1. tbl. 24. árg. mars 2005
Póstkort til foreldra:
Fermingarbörn eiga ekki að fara í Ijós
Foreldrum og forráðamönnum tæp-
lega 4000 fermingarbarna hefur verið
sent póstkort þar sem bent er á
hætturnar sem fylgja því að ungt fólk
fari í Ijósabekki.
Skilaboðin á kortinu eru frá Geisla-
vömum ríkisins, Landlæknisembættinu,
Krabbameinsfélaginu og Félagi ís-
lenskra húðlækna, en þetta er annað árið
sem þessir aðilar standa saman að
fræðsluherferð undir slagorðinu „Hættan
er ljós”. A póstkortinu er vakin athygli
á því að böm og unglingar séu næmari
en aðrir fyrir skaðlegum áhrifúm geisl-
unar frá ljósabekkjum og sól og að
brúnn húðlitur eftir sólböð geti verið
merki um skemmdir í húðinni sem geta
leitt til ótímabærrar öldmnar húðarinnar
og jafnvel til húðkrabbameins. Tekið er
undir tilmæli Alþjóða heilbrigðismála-
stofnunarinnar um að þeir sem em yngri
en 18 ára eigi ekki að fara í ljósabekki
og era foreldrar og forráðamenn ferm-
ingarbama eindregið hvattir til að hafa
þetta í huga. I samvinnu við Biskupsstofú
hefur verið leitað til presta landsins um
að leggja málefninu lið.
Hliðstæð herferð á síðasta ári vakti mikla
athygli og í framhaldi af henni tóku
nokkrar sveitarstjómir ákvörðun um að
hætta að bjóða upp á sólböð í ljósa-
bekkjum í íþróttamannvirkjum sínum,
m.a. Reykjavíkurborg.
Samkvæmt upplýsingum frá Krabba-
meinsskrá Krabbameinsfélagsins hefur
tíðni húðæxla í heild tvöfaldast á síðustu
tíu ámm.
Pósturinn sfyrkti útsendingu kortanna.