Veðráttan - 01.04.1925, Qupperneq 1
V E B I? A T T A X 1925
MÁNAÐARYFIRLIT SAMIÐ Á VEÐURSTOFUNNI
Apríl:
Alment yflrlit: Þ. 1.—5. oftast norðan og norðaustan átt
og frost. Þ. 3. gekk liann þó í austrið á Suðvesturlandi og
varð allhvass. Snjókoma mest þ. 1. og 4.
Þ. 6. og 7. kyrt veður og hjer um bil frostlaust á Suður-
og Vesturlandi.
Þ. 8. gekk hann i suðrið, og hjelst úr því sunnan átt og
hlýindi fram á þ. 14. Rigningar voru þá alloft á Suður- og
Vesturlandi.
Þ. 15.—17. norðlæg átt og þó hæg og hitinn venjulega um
eða ofan við 0°. Þ. 16. og 17. snjóaði og rigndi töluvert á
Norður- og Austurlandi. Þ. 18.—‘22. suðvestlæg átt og fremur
rosasöm tíð á Suður- og Vesturlandi, en góðviðri á Norður- og
Austurlandi.
Þ. 23.—25. norðan átt og nokkur snjókoma og rigning á
Norður- og Austurlandi.
Þ. 26. suðaustan átt, en næsta dag, þ. 27., hæg norðan átt
og úr því hægviðri til mánaðamóta.
Loftvœgib: Loftvog í apríl var 3.9 mm hærri en meðallag
og að tiltölu hæst á Vesturlandi. Hæst stóð hún á Norðurlandi
aðfaranótt þ. 28. (Akureyri og Grímsey 773.9 mm), en lægst á
Suðvesturlandi þ. 21. (Rafmagnsstöðin 731.5 mm).
Hitinn: Meðalhiti þessa mánaðar var á öllu landinu í heild
lítið eitt (0,3°) yfir meðallag.
A Suðvesturlandi var kaldara en í meðallagi en annars-
staðar hlýrra og tiltölulega hlýjast á Norðvesturlandi.
Pyrstu dagar mánaðarins voru kaldir um land alt, og þá
nær kuldinn alstaðar hámarki sínu, rúmlega 16° frost á Lækja-
móti þ. 3. og á Möðruvöllum þ. 6. Eftir það var alstaðar frem-
ur lilýtt. Víðanær hitinn hámarki þ. 10., en suinstaðar þ. 19.,
og á Suðvesturlandi undir mánaðarlokin. Hæsti hiti verður
9—12°.
Urkoma var meiri en meðallag á Suður- og Vesturlandi,
mest á Suðvesturlandi (Reykjavik 122°/0 yfir meðallag). Ann-
arsstaðar á landinu var hún töluvert minni, á Möðruvöllum
vantaði 61°/0 á meðallag. Yfirleitt var hún dálítið meira en
meðallag. Mest var úrfellið dagana 9.—11. og í kring um þ.
20. Að morgni þ. 12. mældist úrkoman á Rafmagnsstöðinni
við Rvík 25.5 mm eftir sólarhringinn, í Reykjavík 20.0 mm.
Urkomudagar voru tiltölulega fæstir á Möðruvölium, aðeins 4,
en meðallag þar er 12.7. I Stykkishólmi og Grírnsey voru þeir
einnig neðan við meðallag, en annarsstaðar fyrir ofan, mest
5 á Kollsá.
Hvassvibri: Stormdagar voru rnjög fáir í þessum mánuði,
og hvergi er getið um skemdir af völdum storms eða brima.
(13)