Veðráttan

Volume

Veðráttan - 01.07.1925, Page 1

Veðráttan - 01.07.1925, Page 1
YEÐRATTAN 1925 MÁNAÐARYFIRLIT SAMIÐ Á VEÐURSTOFUNNl Júlí: Alment yfirlit: Þ. 1.—5. suðaustan átt og úrkoma oft á Suðurlandi, en þurviðri á Norðurlandi. Þ. 6.—8. hæg norðan átt. Þ. 9.—23. sunnan átt oftast, en hæg samt frá 16,—18. Rigningar og þokur tíðar á Suðurlandi, en þurviðrasamt og hlýtt á Norðurlandi. Þ. 24.—29. hæg norðlæg og norðaustlæg átt og óvíða úr- koma. Þ. 30.—31. austan átt og stinnings vindur á Suðurlandi. Loftvœgið i þessum mánuði er 2.2 mm. fyrir neðan meðal- lag. Hæst stóð loftvog aðfaranótt þ. 3. á Austurlandi (Seyðis- fjörður 765.4 mm), en lægst þ. 12. á Norðurlandi (Akureyri 740.0 mm). Hitinn: Á Norður- og Norðausturlandi er tiltölulega heit- ast í þessum mánuði, þar er hitinn 1°—2° yfir meðallag, en á Suðurlandi og Vesturlandi var hann um og fyrir neðan meðal- lag. Á öllu landinu í heild er hitinn 0,7° yflr meðallag. Mesti hiti, sem mældur var í þessum mánuði, var 23.1° á Grímsstöðum þ. II. og 23.0° á Lækjamóti þ. 26. Víðast verð- ur hitinn lægstur dagana 23.—29., á Lækjamóti 2.1° þ. 24. og 25., á Eiðum 0.6° þ. 29. Urkoman í þessum mánuði er 30% yfir meðallag. Úrkom- an er langmest i Vík í Mýrdal, en þar sem þetta er ný stöð, verður ekki sagt, hve mikið hún er fyrir ofan meðallag; ann- ars er úrkoman mest að tiltölu á Vesturlandi, í Stykkishólmi 113°/0 yfir meðallag,f minst á Möðruvöllum, rúmur helmingur þess, sem vant er. Á Austurlandi og sumstaðar áNorðurlandi rigndi mest urn þ. 6., 31.0 mm á Teigarhorni, 32.7 mm í Vík í Mýrdal þ. 5. Dagana á undan hafði líka rignt mikið á Suður- landi. Um miðjan mánuðinn, l'rá 10.—16., var töluverð úrkoma á Suður- og Vesturlandi. Þ. 21. rigndi mikið um alt land, nema síst á Austurlandi, þá mældist úrkoman á Pagurhólsmýri 40,5 mm eftir sólarhringinn, 13,9 mm á Lækjamóti. Á Suður- og Vesturlandi eru úrkomudagar venju fremur margir, á Eyrarbakka 10 yfir meðallag. A Lækjamóti eru þeir hlutfallslega flestir, 11 yfir meðallag. Annarsstaðar á Norður- og Austurlandi er úrkomudagafjöldi neðan við meðallag, nema í Papey. Þ. 6. fjell skriða úr Ingólfsfjalli og gerði þjóðveginn ófær- an á 40 m svæði. Þ. 15. tók stórfióð í Kotá í Norðurárdal í Skagafirði brúna af ánni. Álitið er, að áin hafi fyrst stíflast af skriðum. Hvassviðri voru mjög sjaldan í þessum mánuði. Þ. 12.—13. og þ. 20. var allhvast á sunnan og suðvestan, einkum á Suður- (25)

x

Veðráttan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veðráttan
https://timarit.is/publication/278

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.