Veðráttan - 01.11.1925, Blaðsíða 1
YEÐRÁTTAN 1925
MÁNAÐARYFIRLIT SAMIÐ Á VEÐURSTOFUNNI
Nóvember:
Alment yfirlit: I þessum mánuði var besta tíð, þó eink-
anlega fyrir íandbúnað.
Þ. 1.—6. austlæg átt, hvöss á Suðurlandi þ. 1. Hlýtt fyrsta
daginn um alt land, og rigningar alstaðar nema á Vestbrlandi,
en kólnar síðustu 2 dagana og snjóar þá á Austurlandi.
Þ. 7. breytileg vindstaða.
Þ. 8. norðlæg átt.
Þ. 9.—10. breytileg vindstaða. Síðari hluta þ. 10. fór loft-
vog að falla á Vesturlandi, og um leið gekk hann í suðrið.
Þ. 11.—19. Þessa daga. komu 5 loftvægislægðir að land-
inu, hver á fætur annari, og gengu til norðausturs. Fóru þær
allar norðvestan við landið, nema sú önnur, sem gekk þvert
yfir landið til norðausturs þ. 12. A Norðurlandi var norðan átt
og snjókoma þann dag, en annarstaðar var hann fyrst á sunn-
an, en snjerist síðan í suðvestrið og vestrið og varð hvass
sumstaðar. A Suðurlandi rigndi mikið. Hina dagana var oftast
suðvestlæg og suðlæg átt, allhvöss þ. 17. og 18.
Þ. 11. var mjög hlýtt um alt land og einnig þ. 12. á Aust-
urlandi. Þ. 16.—19. var aftur hlýtt, sjerstaklega tvo fyrstu
dagana.
Þ. 20.—27. breytileg vindstaða og oftast hægviðri.
Þ. 28.—29. gekk loftvægislægð í suðaustur fyrir norðan
og austan land.
Þ. 29. var allhvöss norðlæg átt með snjókomu á Norður-
og Austurlandi.
Þ. 30. hjelst norðan áttin á Suðurlandi, en annarstaðar
var breytileg vindstaða.
Loftvog: Loftvog stóð yfirleitt hátt í þessum mánuði, 5.3
mm yflr meðallag. Hæst stóð hún á Norðvesturlandi aðfara-
nótt þ. 30., 776.0 mm á Isafirði, en lægst þ. 12. á Norðurlandi,
726.8 mm á Raufarhöfn.
Hiti: Mánuðurinn er fremur hlýr, 1.7° yfir meðallag. Á Suð-
vestur- og Suðurlandi er hitinu mestur þ. 1., 12.5° á Eyrar-
bakka, annarstaðar víðast mestur þ. 11., 9.5° á Suðureyri, og
þ. 17. 8.9° á Kollsá. A Lækjamóti eru þó 11.0° þ. 1.
A Suðurlandi er kaldast þ. 10., -8.2° á Stóranúpi. Á Norð-
ur- og Austurlandi nær kuldinn hámarki sínu síðustu daga
mánaðarins, frá 25.—30. Þ. 26. -13.7° á Nefbjarnarstöðum, þ.
25. -11.0° á Teigarhorni.
Urkoma á öllu landinu er 29°/0 yfir rneðallag. I Stykkis-
hólmi er hún 79°/0 yhr meðallag, en 58% yfir meðallag á Fag-
urhólsmýri.
Mest var úrkoman þ. 11.—12. og þ. 16. Þ. 12. rigndi
(41)