Veðráttan

Árgangur

Veðráttan - 01.01.1926, Blaðsíða 4

Veðráttan - 01.01.1926, Blaðsíða 4
Janúar Veðráttan 1926 Aðfaranótt þ. 25. brotnuðu nokkrir símastaurar í nánd við Fagradal í suðaustan stormi. Snjólag: A Suður- og Vesturlandi, frá Papey til Vestfjarða, er víðast alautt meiri hluta mánaðarins. Þ. 1.—4. er alhvítt um alt land, nema sumstaðar á Suðuriandi. Aðeins ein stöð (Isafjörður) telur alhvítt allan mánuðinn. Mest snjódýpt mæld- ist 100 cm á Hraunum í Fljótum þ. 1,—4. Þ. 12. fjell aur- og snjóskriða fram af höfðanum á Akureyri og gerði allmiklar skemdir á húsi, sem fyrir henni varð. Hagi er mjög góður í þessum mánuði, að meðaltali á öllu landinu 76% (í fyrra 54%). Lægst er Grænavatn rneð 22°/0, en 3 stöðvar telja hagann 100°/0. Gœftir á vjelbáta eru 15% (Suðureyri) —42% (Keflavík), að meðaltali 25% (5 stöðvar). A róðrarbata minst 6% á Gjögri við Reykjarfjörð, mest 37% á Sandi, að meðaltali 20% (5 stöðvar). SóUkin í Reykjavík er 10.0 stundir eða 6.0% (í fyrra 5.4 stundir eða 2.8%). Mest sólskin var þ. 18., 2% klukkustund, en mælirinn sýni'r sólskin aðeins 9 daga. Sjávarhiti: Við Vesturland er töluvert kaldara í sjónum en meðallag. Við Norðausturland er sjávarhitinn lítið fyrir ofan meðallag, neðan við meðallag við Suðausturland, en jafn meðal- lagi við Suðurland. Þrumur: Þ. 10. kl. 18.15 varð vart við þrumu og eldingu í Reykjavík. Morguninn eftir kl. 5—5.30 heyrðist þruma í Vest mannaeyjum og sömu nótt einnig á Teigarhorni. Þar heyrðust líka þrumur seinnihluta dags þ. 24. og aðfaranótt þ. 27. Fagur- hólsmýri getur um þrumu þ. 27. Rosaljós eru einnig alltíð. Á Fagurhólsmýri sáust rosaljós þ. 11., 25. og 27., í Vík í Mýrdal þ. 6., 10.—11. og 25—26. I Reykjavík sást og rosaljós þ. 25. kl. tæplega 19. Logastólpi sást frá Þorvaldsstöðum við Bakkafjörð í suð- vesturátt þ. 1. kl. 20. (4) PRENTSM. ACTA H.P.

x

Veðráttan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veðráttan
https://timarit.is/publication/278

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.