Veðráttan - 01.03.1926, Qupperneq 1
YEÐRÁTTAN 1926
MÁNAÐARYFIRLIT SAMIÐ Á VEÐURSTOFUNNI
M a ps:
Ahnent yfirlit: Fremur stirð tíð fyrri hlutann, snjóasamt á
Norður- og Austurlandi. Seinni hlutinn mjög hagstæður til lands
og sjávar, nema síðustu dagarnir,
1.—13. Ostöðug veðrátta. Skiftir mjög oft um átt og verður
stundum hvass. Flesta dagana snjókoma um alt land, mest á
Suður- og Suðvesturlandi þ. 5. Þ. 4.—5. er fremur kalt, eink-
um á Norður- og Austurlandi þ. 5., en aðra daga er hitinn oft-
ast um meðallag. Seinni hluta þ. 13. hlýnar um alt land.
Þ. 14. Breytileg vindstaða. Þoka framan af við Suður- og
Austurland. Hlýtt um iand alt.
Þ. 15.—16. Loftvog lág fyrir norðan og vestan land. Kyrt
á Austurlandi, sunnan átt annarstaðar. Rigning á Suðvestur-
landi þ. 15. Þoka þ. 16. við Suðurland. Hlýtt.
Þ. 17.—26. Loftvægishæð fyrir norðan og austan land.
Suðaustan og sunnan átt á Suðvesturlandi, oftast kyrt annar-
staðar. Þurt veður og bjart á Norður- og Austurlandi, skúrir
á Suður- og Suðvesturlandi og stundum þoka við Suðurland.
Þoka Norðausturlandi þ. 18. Hlýtt um alt land, einkum þ.
17. á Norðurlandi.
Þ. 27.—30. Djúp loftvægislægð kom að Suðausturlandi og
fór þaðan austur yfir Færeyjar til Noregs. Seinni hluta þ. 27.
•og nóttina eftir hvesti mjög á Norður- og Vesturlandi og kóln-
aði um leið. Daginn eftir var komið norðan rok um alt land,
og hjelst það fram á þ. 30. A Norður- og Austurlandi snjóaði
mikið þ. 28.—30.
Þ. 31. var orðið kyrt á Norður- og Austurlandi. A Suður-
og Suðvesturlandi hafði vindurinn snúist í austrið fyrir nýrri
loftvægishegð, sem var að nálgast landið að sunnan, jafnframt
var hitinn kominn upp í meðallag.
Loftvœgi er 0.3 ram yfir meðallag. Hæst stóð loftvog á
Seyðisfirði þ. 20., 777.6 mm, en lægst á Isafirði þ. 7., 726.4 mm.
Hiti mánaðarins er 1.3° yfir meðallag. Mestur kuldi mæld-
ist á Hvanneyri þ. 9., -18.3°, en víðast varð kaldast þ. 4.—6.
Frá 13.—27. var hlýtt um alt land. Um og eftir miðjan mán-
uðinn var hitinn kringum 9°, 10.1° á Hvanneyri þ. 16., og þ.
24. voru 10.9° á Kollsá.
Urkoma er töluvert meiri en meðallag á Suðvesturlandi,
76°/0 yfir meðallag á Eyrarbakka. Annarstaðar á landinu er
hún minni en vant er, en nálægt meðallagi á öllu landinu í
heild. Urkomudagar eru og flestir á Suðvesturlandi, en kring-
um meðallag annarsstaðar.
A Suður- og Vesturlandí var mest úrkoma dagana 13.—17.,
38.4 mm í Vík í Mýrdal þ. 13. A Norður- og Austurlandi snjó-
(9)