Veðráttan - 01.11.1927, Síða 1
V EÐ !í ATTAX 1927
MÁNAÐARYFIRLIT SAMIÐ Á YEÐURSTOFUNNI
Nóvember
Alment yfirlit: Tíðarfarið í þessum mánuði má teljast frem-
ur hagstætt; það er milt en úrkomusamt og fremur óstöðugt.
Þ. 1.—3. gengur loftvægislægð sunnan úr hafi norðaustur
milli Færeyja og Islands. Fyrst gerir austan hvassviðri, en
snýstsíðan í norðrið; allmikil snjókoma er norðanlands; hitinn
er fyrir neðan meðallag.
Þ. 4—8. Lægð kemur norðvestan úr hafi þ. 4. og gengur
síðan austur yfir landið. Hann er víðast sunnan og suðvestan
þ. 4. en gerir svo norðanveður, er helst til þ. 8. Tvo fyrstu
dagana er víða úrkoma, víða bjartviðri þ. 7. og 8.; hitinn er
fyrir neðan meðallag.
Þ. 9.—22. eru lægðir fyrir suðvestan, vestan og norðvestan
land. Þ. 9. er hann enn á norðan á Austurl. og úrkomulaust,
að öðru leyti er þenna tíma suðlæg átt með mikilli úrkomu sunnan-
lands og vestan; 2 fyrstu dagana er fremur kalt, annars hlýindi.
Þ. 23.—28. ganga lægðir austur og noiðaustur yfir landið.
Vindstaða er breytileg, þó er hann víðast á norðan þ. 24. og
28. Urkomusamt er þessa daga. Hitinn er fyrir ofan meðallag
þ. 23., 26. og 27., hina dagana fyrir neðan.
Þ. 29.—30. er lægð fyrir vestan og norðvestan land, hvöss
sunnan og suðvestan átt og víða úrkoma, einkum á Suður- og
Vesturlandi og sjerlega hlýtt.
Loftvœgið í þessum mánuði er í meðallagi á öllu landinu,
hæst eftir hætti á Isaf. 0.8 mm. fyrir ofan meðallag, en lægst
á Rfh. 0.8. mm. fyrir neðan. Hæst stóð loftvog þ. 6., á ísaf.
776.7. mm., eii lægst þ. 26. í Grvk. 723.0 mm. kl. 12.
Hitinn er alstaðar fyrir ofan meðallag, 1.4° á öllu landinu,
mest á Grnh. og Ak. 2.3°, minst á Lækm. 0.2°. Hlýjast er þ. 12.—
23., 26.—27. og 29.—30., en kaldast þ. 1., 6.—7. og 24. Hæstur
heíir hitinn orðið 10.8° á Hvn. þ. 18., Þvst. þ. 29. og Eið. þ. 30.,
en lægstur- —18.8° á Grnv. þ. 11.
Sjávarhitinn við landið er 0.3° fyrir ofan meðallag; mestur
er hann eftir hætti við Suðausturland 1.2° fyrir ofan meðallag
á Tgh., en minstur við Norðvesturl., 0.8° fyrir neðan meðallag
á Grnh.
Urkoman er mikil í þessum mánuði, 42°/0 fyrir ofan meðal-
lag. Mest eftir hætti er úrkoman á Vesturl. í Sth. meira en
tvöföld, 127% yfir meðallag; en minst er hún á Þvst. 31%
fyrir neðan meðallag. Úrkomudagar eru 2 færri en venjulega
á Norðausturl., annarstaðar 3 fleiri. Minst úrkoma yfir mánuðinn
er á Þvst. 27.7 mm. en mest á Tgh. 213.4 mm. Mest sólarhrings-
úrkoma er á Hvn. 53.6 mm. Mánaðarúrkoman í Sth. 161.5 mm.
er mesta úrkoma þar í nóvembermán. í 72 ár, eða síðan byrjað
var að mæla úrkomuna. Úrkoman, sem mæld var að morgni
þ. 18. í Rvk. 41.4 mm., var mesta sólarhrings-úrkoma síðan
(41)