Veðráttan

Árgangur

Veðráttan - 01.01.1928, Blaðsíða 1

Veðráttan - 01.01.1928, Blaðsíða 1
YEÐRATTAN 1928 MÁNAÐARYFIRLIT SAMIÐ Á VEÐURSTOFUNNI Janúar Alment yfirlit: Tíðarfarið í þessum mánuði má yfirleitt teljast ó- liag'stætt. Það er umhleypingasamt, allmikill snjór á jörðu og slæmir hagar. Þ. 1.—6. Þ. 1. er loftvægislægð fyrir norðvestan land og suð- vestan átt, þ. 2. lægð fyrir austan land og hæg norðanátt, þ. 3. kemur lægð vestan að landinu og gengur norður fyrir. Fyrst er sunnan og suðvestan átt en snýst síðan í vestrið og er vestlæg átt til þ. 6. Þessa daga er úrkomusamt á Suðvestur- og Yesturlandi. Þ. 7.—15. ganga lægðir austur fyrir sunnan land, austan, norð- austan og norðanátt, oft hvasst. Allmiklar snjókomur eru þessa daga á Norðausturl. og víða um land 3—4 fyrstu dagana, Þ. 16—25. ganga lægðir norðaustur eftir Grænlandshafi eða yfir ísland. Oftast suðaustlæg, suðvestlæg og vestlæg átt. Úrkomu- samt er sunnanlands og vestan. Þ. 26.—31. ganga lægðir austur fýrir sunnan land, aðallega norð- an og austan átt og úrkoma víða. Loftvægið er mjög lágt í þessum mán., 10.0 mm. fyrir neðan meðallag, frá 8.6 mm. á ísaf. til 10.6 á Rfh. Hæst stóð loftvog þ. 17., á Tgh. 762.4 mm. en lægst þ. 20. á vestanverðu landinu, í Grvk. 699.5 mm. kl. 10 og Rvk. 699.6 mm kl. 10.30; en senni- lega hefir hún orðið allra lægst á ísaf. kl. 15 699.0 mm. eða lægra, en síritandi loftvogin þar var þannig stilt, að hún gat ekki skrifað lægstu stöðuna. Loftvægið fer hjer sjaldan niður fyrir 700 mm., þó hefir það orðið 699.3 mm. 27. des. 1914 og 699.2 mm. 24. febr. 1903 í Ym. á athugunartímum en sennilega eitthvað lægra á öðrum tím- um dagsins. Ilitinn er 0.7° fyrir ofan meðallag á öllu landinu. Hann er lægstur eftir hætti á Grst. 0.4° fyrir neðan meðallag, en hæstur á Grnh. 2.0° fyrir ofan. Illýjast er þ. 17.—20. og þ. 23., en kaldast þ. 8. og 30. Hæstur hefir hitinn orðið á Tgh. 6.8° þ. 20., en lægstur á Grst. —21.9° þ. 31. Sjávarhitinn umhverfis landið er 0.7° fyrir ofan meðallag, frá 0.1° við Grvk. til 1.5° við Rfh. Úrkoman er fremur lítil í þessum mánuði, 17°/0 fyrir neðan meðallag á öllu landinu. Úrkoman er mest eftir hætti í Rvk. 29°/0 fyrir ofan meðallag, en minst á Gr. 89°/0 fyrir neðan meðallag. Úrlcomudagar eru 3 færri en venjulega á Norðvestur- og Norðurl., annafstaðar 3 fleiri. Minsta úrkoma yfir mánuðinn er í Gr. 1.8 mm (1)

x

Veðráttan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veðráttan
https://timarit.is/publication/278

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.