Veðráttan

Ukioqatigiit

Veðráttan - 01.09.1930, Qupperneq 4

Veðráttan - 01.09.1930, Qupperneq 4
September Veðráttan 1930 Mesta sólarhringsúrkoman, 56.4 mm, var á Fghm. þ. 6. í Hveradölum var mánaðarúrkoman 226.8 mm, mest á dag 37.9 mm þ. 12. Þoka var tíðust á Norður- og Austurlandi. Helztu þokudagar þar voru ' þ. 9., 10., 11. (aðeins austanlands), 14., 21. og 22. Vestanlands var þoka þ. 1. og 8. Sunnanlands var þoka fátíð og aðeins á stöku stað í einu. Vindar I þessum mánuði var austlæg átt lang tíðust. Vindar úr öðrum áttum voru fremur fátíðir, einkum var lítið um norðan átt. Logn var tiltölulega oft, og til jafnaðar var veðurhæðin um V2 stigi undir meðallagi. A vindhraða- mælinum í Reykjavík varð meðalhraði vindsins 3.0 m á sek. Mestur meðal- vindhraði á dag var 6.8 m á sek. þ. 16., en minnstur 0.6 m. á sek. þ. 2. Stormar voru heldur fátíðir eftir venju. Þ. 6. var hvasst á austan, 2 stöðvar telja storm. Þ. 12. var austan stormur í Vm. Þ. 15. var ESE hvassviðri sunnanlands og stormur í Vm.; þann dag hvolfdi bát með 2 mönnum þar á höfninni, annar þeirra drukknaði. Þ. 16. var víða E eða SE hvassviðri og stormur á 3 stöðvum. Þ. 17. var austan stormur í Fgdl. og þ. 18, í Vm. Þ. 23. sökk vélbátur, hlaðinn heyi, á Kolsstaðavík við Seyðisfjörð. Á honum var maður með 3 ungum dætrum sínum, og 3 unglingspiltum, allt drukknaði. Þ. 24. var norðan hvassviðri á Suðausturlandi, Pap. telur storm. Þ. 26.-28. voru vestan og suðvestan hvassviðri á Vesturlandi, 2 stöðvar telja storm þ. 26. (Sðr. W. 10) og 3. þ. 27. (Grnh. rok í byljunum). í þessum mánuði strandaði danskt fiskiskip »Albatros« nálægt Skálum á Langanesi, var þá þokuslæðingur. Menn björguðust, en skipið ónýtt. Snjólag. Hvk. telur flekkótt fjöll í 600 m. hæð allan mánuðinn, 25°/o hvítt. Annarstaðar eru fjöllin talin alauð þangað til þ. 24., þá snjóaði í fjöll á Austurlandi, og varð hvítt nokkra daga. Þ. 9. gránaði í háfjöll hjá Tgh. og Pap. Þ. 5. var krapi á Þst., og þ. 24. snjóaði í Höfn og á Nbst., en snjóinn festi ekki í byggð. Sólshinið var 72.2 stundir í Rvk. 18.5°/o af því sólskini, sem gæti verið, en meðaltal 7 undanfarinna ára er 136.1 st. Mest sólskin var 11.7 st. þ. 25. 9 daga var sólskinslaust. Á Akureyri var sólskinið 83.1 stund, eða 21.2°/o, mest 11.2 st. þ. 3., 12 daga var sólskinslaust. Dynkir heyrðust á Tgh. þ. 26. kl 11 — 15 í SW., og þ. 27., síðari hluta dags var þar mikið öskumistur í lofti. Landskjálfti. Þ. 10 kl. 1430 fannst lítill jarðskjálftakippur í Hveradölum. Kartöflugras byrjar að sölna þ. 8. ág. í Vm., annarstaðar frá 6. til 25. sept. Meðaltal 8 stöðva er 14., sept. 9 dögum eftir meðaltal 5 undanfarinna ára. Kartöflur teknar upp frá 22. ág. (Vm.) til 30. sept. (Fgdl.), að meðaltali 22. sept. (12 stöðvar), 2 dögum eftir meðtal 5 undanfarinna ára. Sláttur hættir frá 13. sept. (Lmbv.) til 25. sept. (Fghm.), að meðaltali 19. sept. (6 stöðvar), 2 dögum eftir meðaltal 5 undanfarinna ára. Hirt síðast af engjum frá 17. (Lmbv.) til 30. sept. (Pap.), að meðaltali 24. sept. (9 stöðvar), sama dag og meðaltal 5 undanfarinna ára. (36) Gutenberg.

x

Veðráttan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veðráttan
https://timarit.is/publication/278

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.