Veðráttan - 01.01.1931, Qupperneq 4
Janúar
Veðráttan
1931
Þoka var þ. 9. víða á Suðurlandi. Þ. 10. var einnig þoka á stöku stað.
Þ. 13. var þoka á Suður- og Vesturlandi og þ. 20. og 21. á Norður- og
Norðausturlandi. Þ. 28.—29. var þoka á stöku stað á Vestur- og Austurlandi.
Vindar. Sunnan og suðvestan átt var sjaldgæf en norðan átt víðast venju
fremur tíð. Veðurhæð var um V2 stigi undir meðallagi og logn tiltölulega oft.
Stormar voru fremur sjaldgæfir eftir hætti. Þ. 4. var suðaustan hvass-
viðri á Suðurlandi, Rkn. telur storm. Þ. 5. fór að hvessa á suðaustan á Vestur-
landi, Sðr. telur storm, og þ. 6. telja 5 stöðvar storm (Sðr. E 10, Hrn. SE
9—10). Þ. 12. var norðan stormur á Smst. Um kvöldið þ. 15. var hvasst á
W á Suðvesturlandi og stormur á 2 stöðvum (Vm. W 10). Þ. 16.—18. var
sumstaðar hvassviðri, Vm. telja SE rok þ. 18. Þ. 17. löskuðust 2 mótorbátar
í Keflavík, og þ. 18. strandaði vélb. »Svanur 11« milli Sandgerðis og Garð-
skaga, menn björguðust. Annar vélbátur, »Geir goði« slapp með naumindum
frá strandi, skrúfan brotnaði! Þ. 21.—23. voru norðaustan og norðan hvass-
viðri með mikilli snjókomu norðanlands. 5 stöðvar telja storm þ. 21. (Blds. og
Gr. NE 10), ein stöð þ. 22. og ein þ. 23. í þessu veðri fórst norska fiski-
tökuskipið »Ulv«, sennilega aðfaranótt þ. 22. á Þaralátursskerjum á Strönd-
um. Skipshöfnin, 17 menn, og 4 íslenzkir farþegar drukknuðu. Þ. 27. var
austan hvassviðri, 5 stöðvar telja storm (Vm. ESE 11, Smst. ElO). Þá strandaði
þýzkur togari norðan við Stórhöfðann í Vm. en losnaði aftur, lítið skemmdur.
Snjólagið var 74°/o á öllu landinu. 5 ára meðaltal 11 stöðva er 61 °/o, en
þessar stöðvar telja nú að meðaltali 71 °/o hvítt. Einkum norðanlands var mikill
snjór,, þar var oftast nær alhvítt, en á Suðurlandi var víðast alautt með köfl-
um. Á 20 stöðvum varð jörð aldrei alauð, en 4 stöðvar telja alhvítt allan
mánuðinn. Mest snjódýpt var mæld 80 cm. á Hrn. þ. 25.—27. Snjóflóð féllu
víða dagana 22.-25. og ollu miklum skemmdum, einkum á símalínum. Að-
faranótt þ. 22. tók snjóflóð 4 símastaura á Lágheiði milli Ólafsfjarðar og
Fljóta og sömu nótt tók snjóflóð 4 staura í Kálfsárdal upp úr Olafsfirði. Þ. 22.
féll snjóflóð í Sauradal milli Súðavíkur og Arnardals og tók 8 staura, og á
Snæfjallaströnd féllu 2 snjóflóð þann dag og tók 7 staura hvort. Sama dag
féll snjóflóð á Norðureyri og flutti í burtu 2 báta. Þ. 24. féll snjóflóð úr 111-
viðrahnjúk við Siglufjarðarskarð, tók 40 staura og sópaði burtu símunum á 2
kílómetra svæði. Sama dag féll snjóflóð í Hnífsdal og einnig þ. 25. og tók 6 staura.
Haginn var 50°/o á öllu landinu. Á þeim stöðvum, þar sem 5 ára meðal-
tal hefir verið reiknað, er það 770/o, en nú er að eins 67°/o hagi á þessum
stöðvum. Aðeins sumstaðar á Suðaustur- og Suðurlandi var haginn fremur
góður. Ein stöð, Tgh. telur fullan haga, 100°/o, en Eið. telja haglaust allan
mánuðinn.
Sólskinið var 16.4 st. í Rvk., 9.8°/o af því sólskini, sem gæti verið. Meðal-
tal 7, undanfarinna ára er 14.0 st. Sólskin var mælt 12 daga, mest 3.1 st. þ.
22. Á Ak. var sólskinið 4.0 st. eða 2.8°/o, mest 2.9 stundir þ. 26. Sólskin
var aðeins mælt 2 daga.
Vígahnettir. Þ. 7. kl. 19 sást vígahnöttur frá Tgh. Hann fór frá austri til
vesturs yfir norðurhimininn. Þ. 11. kl. 1935 sást vígahnöttur á Patreksfirði.
Hann kom úr vestri og hvarf fyrir fjöllin í austurátt. Hann var að sjá eins
stór og tungl í fyllingu eða þó öllu stærri. Eldrák myndaðist eftir hann og
sást í meira en 15 mín. Hann virtist vera mjög hátt í lofti.
Landskjálftar. Mælarnir sýndu 4 hræringar: Þ. 12. kl. 501 og 706, upp-
tök þessara landskjálfta í 35 km. fjarlægð. Þeirra varð vart í Grvk. og á Rkn.
Þ. 15. kl. I02, upptök við vesturströnd Mexico. Þ. 31. kl. 604, upptök í 38 km.
fjarðlægð, fannst í Hveradölum.
Þrumu og eldingar varð vart í Reykjavík þ. 7. kl. 21.
(4)
Gutenberg