Veðráttan

Årgang

Veðráttan - 01.06.1931, Side 1

Veðráttan - 01.06.1931, Side 1
VEÐRATTAN 1931 MÁNAÐARVFIRLIT SAMIÐ Á VEÐURSTOFUNNI Júní. Tíðarfarið var lengst af kalt og þurt. Spretta með afbrigðum slærn, einkum á túnum, aðeins á raklendum engjum var hún sæmileg. Fjárhöld víðast góð. Austanlands var óstilltur sjór og lítill afli, annarstaðar yfirleitt góðar gæftir og afli. Þ. 1.—11. Loftvægi óvenjulega hátt á Grænlandi og íslandi. Norðan og austan átt yfirgnæfandi en oftast hægviðri. Kuldasamt á Norður- og Austur- landi en úrkoma lítil eða engin, nema helzt á Austurlandi. Lægðir fara aust- ur fyrir sunnan Island og stormasamt á hafinu suður undan. Þ. 8. og 10. var víða allhvasst á norðaustan. Þ. 12.—16. Lægð skammt fyrir sunnan landið olli hvassri austan átt við suðurströndina og nokkru regni sunnanlands og austan. Þ. 17.—18. Norðan eða norðaustan átt, með dálítilli þokusúld á Aust- fjörðum og Norðurlandi, en bjartviðri og hlýindum suðvestanlands. Þ. 19.—21. Komu lægðir vestan yfir Grænland og fóru austur yfir Is- land. Varð fyrst sunnan átt en síðan tvíátta, ýmist vestan eða norðan. Nokkur rigning og oft kalt nyrðra. Þ. 21.—22. Norðan átt, allhvasst á Austurlandi. Góðviðri sunnanlands. Þ. 23. Loftvægishæð yfir Islandi. Góðviðri. Þ. 24.-27. Lægðir yfir Grænlandshafi og Islandi. Oftast sunnan eða suðvestan átt. Þykkviðri og rigning einkum vestanlands. Þ. 28.—30. Lægð fyrir austan Island en hæð yfir Grænlandi. Allhvasst á norðan aðfaranótt þ. 28. en lygndi brátt. Hélzt svo breytileg átt og hæg- viðri síðustu daga mánaðarins. Loftvægið á öllu landinu var 2.2 mm yfir meðallag, frá 3 0 mm á Isaf. til 1.7 mm í Grvk. Hæst stóð loftvog 776.3 mm á Rfh. þ. 4. kl. 8, en lægst 745.9 mm í Grvk. þ. 21. kl. 9. Hitinn var 0.9 undir meðallagi að meðaltali. Hlýjast eftir hætti var á Vest- urlandi og vestan til á Norðurlandi, 0.4 yfir meðallag á Lmbv. og Koll., en kaldast á Norðurlandi, einkum í innsveitum, 3 0 fyrir neðan meðallag á Grst. Hitinn var lengst af í tæpu meðallagi, aðeins þann 23.—26. og 29. var dá- lííið hlýrra en venjulega. Þ. 9.—10., 15. og 20.—21. var kalt, hitinn 2 undir meðallagi, en 3 fyrir neðan þ. 21., Hæstur varð hitinn 20.3 á Eið og Tgh. þ. 25., en lægstur —5.2 á Eið. þ. 5. Sjávarhitinn var 1.1 yfir meðallag vestanlands og norðan (Rvk.— Rfh.) en 0.4 undir meðallagi við Suðaustur- og Suðurland (Pap.— Grvk.). Úrkoman var 86 °/o á öllu landinu. Mest eftir hætti var hún á Hrn., 69 °/o umfram meðallag eða 1 2/3 sinnum meðalúrkoman. A Suðausturlandi var hún einnig meiri en venjulega, en annarstaðar yfirleitt lítil, og minnst á Ak. 8.5 mm, þ. e. 38 °/o eða aðeins rúmlega !/3 úr meðalúrkomu. Urkomudagar voru víðast færri en venjulega, að meðaltali 2 færri. Aðeins sumstaðar á (21)

x

Veðráttan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veðráttan
https://timarit.is/publication/278

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.