Veðráttan - 01.09.1931, Page 4
September.
Veöráttan
1931
Þoka var tíð eftir hætti á Suðurlandi. Þar er getið um þoku þ. 13. —16.,
21,—25. og 27.-28. í hinum landshlutunum var sjaldan þoka. Þ. 14.- 15.,
25. og 28. var þoka sumstaðar á Suðausturlandi, þ. 15. og 16. vestanlands og
þ. 5. á stöku stað norðanlands.
Windar. Suðvestan átt var tíðust í þessum mánuði en norðan og austan
átt sjaldgæfust. Logn var venju fremur oft. Veðurhæð í tæpu meðallagi.
Stormdagar töldust 7. Þ. 13. telur Hlíð austan storm. Þ. 15. telja 2 stöðvar
storm, (Rfh. W 9-10, Eið. SW 9). Á Rfh. misstu bátar línur, en annarra
skemmda er ekki getið. Þ. 17.—18. var hvöss suðvestan og vestan átt um allt
land. Þ. 17. telja 14 stöðvar veðurhæð 9 eða meira (Sðr., Hest., Grnh. og
Koll. telja veðurhæð 10 og Hrn. 11). Þ. 18. telja 6 stöðvar storm og 3 stöðv-
ar rok (Rfh., Gr. og Hrn., á Hrn. varð veðurhæð 11). Þ. 19. telur Hrn. SW
9 — 10. í þessu veðri urðu víða skemmdir. Á Ak. fauk bifreiðaskúr og þak af
húsi. Á Hrn. fauk þak af hlöðu. Hey fuku og víða. Vélbátur slitnaði upp á
Mýrnavík. Þ. 22. telur Fgdl. SW storm. Nóttina áður sökk vélbáturinn »Dóra«
frá Færeyjum skammt fyrir vestan Grímsey. Skipshöfnin drukknaði (17 manns).
Loks telur Grnv. sunnan storm þ. 25. Þ. 9. sökk vélbáturinn »Frægur« við
árekstur á höfninni í Hnífsdal. Einn maður drukknaði. Þ. 26. strandaði þýzk-
ur togari á Þistilfirði. Veður var gott, og menn björguðust. Þ. 27. strandaði
togarinn »Volesus« frá Grimsby á Grenjanesboða hjá Þórshöfn í þokusúld.
Ægir náði honum út.
Snjólag. Þ. 17. eða 18. snjóaði norðantil á Vestfjörðum og á 2 stöðvum
norðaustanlands. Þst. og Sðr, telja alhvíta jörð að morgni þ. 18. Þ. 2.-3. og
8. er getið um snjókomu til fjalla á Austurlandi. Þ. 10. snjóaði í fjöll á
Vestfjörðum og Norðurlandi, og þ. 11. á Norður- og Austurlandi. Annars voru
fjöll alauð í 600 m. hæð nema austantil á Norðurlandi og norðaustanlands.
Þar voru miklar fannir, svo að fjöll eru sumstaðar talin um 25°/o hvít.
Sólskinið í Reykjavík var 122.7 stundir, 31.4°/o af því sólskini, sem gæti
verið. Meðaltal 8 undanfarinna ára er 128.1 st. Mest sólskin var þ. 3., 14.0
st.; 7 daga var sólskinslaust. Á Ak. var sólskinið 127.5 st. eða 32.5°/o, mest
12.2 st. þ. 1.; 2 daga var sólskinslaust.
Þrumur voru í vestri frá Grímsey þ. 28.
Landskjálftar. Mælarnir í Reykjavík sýndu landskjálfta þ. 6. kl. 7 °5, upp-
tök í Atlantshafi um 1400 km. frá Reykjavík, og aftur þ. 25. kl. 5 29, upptök
sunnan við eyna Sumatra. Á Reykjanesi varð vart við kipp þ. 17. kl. 3 45. Fyrri
hluta mánaðarins tóku menn við og vjð eftir hverahræringum í Ölfusinu.
Kartöflugras byrjar að sölna 'frá 1.—4. sept., að meðaltali 2. sept. sam-
kvæmt skýrslum frá 5 stöðvum á Vestur- og Austurlandi. En nokkrar stöðvar
sunnanlands og ein vestanlands geta þess, að kartöfiugrösin stóðu alveg ósölnuð
til uppskeru, 15.— 30. sept.
Kartöflur teknar upp frá 15. sept. til 4. okt., að meðaltali 26. sept. (14
stöðvar). 5 ára meðaltal sömu stöðva er 21. sept.
Sláttur hættir frá 5. sept. til 1. okt., að meðaltali 19. sept. (10 stöðvar).
5 ára meðaltal sömu stöðva er 17. sept.
Hirt síðast af engjum frá 12. sept. til 5. okt., að meðaltali 24. sept. (11
stöðvar). 3 stöðvar sunnanlands geta þess, að hey voru ekki alhirt fyr en um 20. okt.
(36)
Cutenberg