Veðráttan - 01.12.1931, Blaðsíða 1
VEÐRATTAN 19 31
MÁNAÐARYFIRLIT SAMIÐ Á VEÐURSTOFUNNI
Desember.
Tíðarfarið var óstöðugt en lengst af frostvægt. Á Suðvestur- og Vestur-
landi var stormasamt mjög og óhagstætt og haginn frekar slæmur, en annar-
staðar er tíðin talin góð til landsins lengst af. Gæftir mjög stopular.
Þ. 1. Lægð fyrir austan ísland. Norðan veðrátta og hríðarveður á Norð-
austurlandi.
Þ. 2.-6. Lægð á hreyfingu suðvesjan úr hafi og norðaustur um Fær-
eyjar, en háþrýstisvæði um Grænland og ísland. Hæg norðaustan átt og bjart-
viðri hér á Iandi í fyrstu, en hvessti síðan af norðaustri með snjókomu annað
slagið á Austur- og Norðurlandi.
Þ. 7.-8. Lægð suðvestur af Reykjanesi olli suðaustan roki og snjókomu
um allt land. Síðan færðist lægðin norðaustur yfir landið, og brá til suðvestan
áttar og umhleypinga á Vesturlandi, en norðaustanlands var veður allgott.
Þ. 9.—10. Sunnan veðrátta og hlákuveður um allt land. Lægð yfir
Grænlandshafi.
Þ. 11.—12. Vestan átt með snörpu éljaveðri vestanlands en bjartviðri
eystra. Lægðin komin frá Grænlandshafi og norður fyrir ísland.
Þ. 13.—14. Ný lægð suður af Reykjanesi og færðist síðan austur fyrir
landið. Fyrst suðausian átt og snjókoma, en gekk svo í norðaustan átt með
hríðarveður nyrðra og eystra en bjartviðri suðvestanlands.
Þ. 15.—18. Háþrýstisvæði yfir ísland en víðáttumikil lægð yfir vestan-
verðu Atlantshafi. Góðviðri norðanlands og austan en allhvasst af suðaustri
og úrkoma suðvestanlands. Þokaðist lægðarsvæðið norður eftir Grænlandi og
veitti hlýjum, suðrænum loftstraumi yfir landið. Varð sunnan hvassviðri að
kveldi hins 17.
Þ. 19. Djúp lægð norður af Vestfjörðum. Suðvestan hvassviðri um allt
land. Skúra- og éljaveður vestanlands.
Þ. 20.-23. Hlý sunnan veðrátta á ný. Víðáttumikil lægð fyrir vestan
landið. Urkomusamt mjög og stundum slydduél vestanlands.
Þ. 24.-25. Færðist lægðin alveg norður fyrir landið og olli kaldri
vestan átt með miklum snjóéljum um vesturhluta landsins.
Þ. 26.-29. Kom ný lægð veslan að og hreyfðist með miklum hraða
austur yfir landið. Varð þá norðanhríðargarður um land alt.
Þ. 30.—31. Ný lægð fyrir sunnan land. Austan og norðaustan veðrátta.
Stormur á Suðurlandi. Víða snjókoma.
Loftvægið var 2.7 mm fyrir ofan meðallag á öllu landinu, frá 1.2 mm
á Rfh. til 3.8 mm á Hól. Hæst stóð loftvog á Sf. þ. 15. kl. 6 — 12, 772,1 mm,
en lægst í Grvk. þ. 8. kl. 5, 729.9 mm.
tiitinn var 1.5° yfir meðallag á öllu landinu. Vestanlands og vestantil á
Norðurlandi var hann um 1° yfir meðallag, en í hinum landshlutunum var
tiltölulega hlýrra, hitinn var þar víðast 1.5°—2° fyrir ofan meðallag (mest 2.4°
á Hvk.). Þ. 2.-6. og 27.—31. var kalt, kaldast var þ. 27., hitinn 5° undir
meðallagi. Þ. 14.—15. og 24.-26. var hitinn í tæpu meðallagi. Annars var
tiltölulega hlýtt. Hlýjast var þ. 17. og 20.—21. (hitinn 8—9° yfir meðallag).
Hæstur varð hitinn 15.0° á Hrn. þ. 21. en lægstur —20.2° á Grst. þ. 5.
Sjávarhitinn var 0.3° yfir meðallag við Vestfirði og Norðurland (Sðr.—
Rfh.) en 1.6° fyrir ofan það frá Pap. —Sth.
Úrkoman var 33 °/o fyrir ofan meðallag eða 1 ty3 sinnum meðalúrkoma á
öllu landinu. Mest eftir hætti var hún á Vesturlandi (á Sth. 127 °/o umfram
(45)