Veðráttan

Árgangur

Veðráttan - 01.08.1932, Síða 4

Veðráttan - 01.08.1932, Síða 4
AgiSst. Veðráttan 1932 Jarðvegshitirm á Rafm. var 11.6° í 1 m dýpi en 8.6° í 2 m dýpi. Á Smst. var hann 8.9° í 1 m dýpt. Úrkoman var allmikil, 36 °/o umfram meðallag á öllu Iandinu. Vestan til á Norðurlandi var hún tiltölulega lítil, 68 o/o úr meðalúrkomu á Grnh. og 70 o/o á Hrn. Annarstaðar rigndi meira en venjulega í þessum mánuði. Eink- um var úrkoman mikil sunnanlands, — í Vm. 108 °/o um fram meðallag eða rúmlega tvöföld meðalúrkoma. Úrkomudagar voru í kringum meðal- lag norðanlands og austan frá Grnh. til Eið.,’ en frá Pap. sunnanlands og vestan til Sðr., voru þeir að meðallagi 9 fleiri en venjulega. Mest mánaðar- úrkoma var 352.2 mm í Hveradölum. Þar var einnig mest sólarhringsúr- koma 61.0 mm þ. 14. Síðustu daga mánaðarins voru víða miklar rigningar. Um þetta Ieyti hljóp skriða yfir veginn skammt frá Þýrli við Hválfjörð. Þoka var sjaldgæf vestanlands og vestan til á Norðurlandi, en á Norð- austur-, Austur- og Suðurlandi var hún víða fremur tíð. Þ. 3.-5. var þoka á Norður- og Austurlandi, þ. 6.—10. norðanlands og norðaustan, þ. 21,—24. á Suður- og sumstaðar á Vesturl., þ. 26. á Suður- og Suðausturl, og þ. 27.— 28. og 30. sumstaðar austanlands. Windar. SW- og S-átt var tíðust í þessum mánuði, en N-, NE- og E- átt sjaldgæf. Veðurhæð var í meðallagi, en logn var fátítt. Stormur er talinn aðeins þrisvar (Vm. ESE 9 þ. 5., SE 9 þ. 29. og ESE 9 þ. 31., Gr. ESÉ 9 þ. 31.). Aðfaranótt þ. 11. strandaði »Goðafoss* á útsiglingu frá ísafirði. Losn- aði með flóðinu óskemmdur. Þ. 17. féll skipstjórinn af línuveiðaranum Þor- móði útbyrðis á Dýrafirði og drukknaði. Veður var gott og lítil alda. Að- faranótt þ. 19. strandaði enski togarinn Imperialist við Seley út af Reyðar- firði í niðaþoku. Losnaði með flóði eitthvað brotinn. Að kvöldi þ. 31. rak norska flutningaskipið Stat upp í kletta á Akranesi. Náðist út eitthvað laskað. Snjólag. Þetta sumar var óvenju lítill snjór á fjöllunum. Af þeim stöðv- um, sem athuga snjóinn í 600 m hæð. telur aðeins Grnh. dálítið flekkótt fyrstu 3 daga mánaðarins, en alautt úr því. Á 3 stöðvum (Sandur í Aðaldal, Grst. og Fgdl) varð hvítt á fjöllum í þessari hæð þ. 19., en snjóinn tók fljótt upp aftur. Um snjókomu í byggð er getið á Svalvogum og Þst. þ. 19. (slydda). Sólskinið í Rvík. var 135.9 stundir, 26.9 °/o af því sólskin, sem gæti verið. Meðaltal 9 undanfarinna ára er 181.7 st. Mest var sólskinið 13.9 st. þ. 11.; 4 daga var sólskinslaust. Á Ak. var sólskinið 98.6 st. eða 19.1 °/o, mest 12.8 st. þ. 24.; 7 daga var sólskinslaust. Þrumur voru þ. 18. á Þst., Sðr., í Keflavík við Súgandafjörð, á Horn- bjargsvitanum og Kollsá. Jarðsbjálftamæ/arnir sýndu 2 hræringar þ. 5. kl. II06 og 125L Ekki er vissa fengin fyrir því, hvar upptök þeirra hafi verið, en sennilegt er, að þau séu um 1200 km suðvestur af Islandi. Hirt síðast af túnum frá 20. júlí til 30. ágúst, að meðaltali 10. ág. (15. stöðvar). Kartöfiugras byijaði að sölna frá 3. ág. til 14. sept., að meðaltali 28. ág. (15 stöðvar). (32)

x

Veðráttan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veðráttan
https://timarit.is/publication/278

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.