Veðráttan - 02.12.1943, Síða 1
VEÐRÁTTAN 1943
ÁRSYFIRLIT SAMIÐ Á VEÐURSTOFUNNI
Tíðarfarið á árinu var yfirleitt óhagstætt.
Loftuægið á öllu landinu var 1.7 mm undir meðallagi.
Meðalhiti ársins var 0 6° yfir meðallagi. Nyrzt á Veslfjörðum var hann
í meðallagi, en hæstur að tiltölu um 1° yfir meðallagi á nohkrum stöðvum á
Austur- og Suðausturlandi.
Sjávarhitinrt við strendur Iandsins var 05° yfir meðallagi, frá 0.4° urdir
því við Sth. að 1.0° fyrir ofan það við Tgh. og Vm.
Úrkoman á öllu landinu var 16 °/o meiri en 30 ára meðaltal, mesf að til-
tölu rúmlega 50 °/o umfram meðalúrkomu í Kvgd. og á Krv., en minnst um
15 °/o undir meðallagi í_ Rvk. Mest úrkoma mældist 2276 mm í Vik, en minnst
342 mm í Reykjahlíð. Ársúrkoman á Seyðisfirði mældist 1321 mm.
Veturinn 1942—’43 (des.—marz) var fremur hagstæður framan af, en
óhagstæður þegar á leið. Snjólag var þá mikið og hagar slæmir. Gæftir lengst
af slæmar. Hiti var 1.3° yfir meðallagi og úrkoma 14 °/o undir meðallagi.
Kýr stóðu inni að meðaltali um 35 vikur, 3 vikum lengur en 10 ára
meðaltal. Þeim var gefið að meðaltali um 39 vikur (15 stöðvar), 3 vikum
lengur en 10 ára meðaltal.
Snjólag og hagi veturinn 1942—’43
(miðað við 8 mán., okt. -maí).
S töðvar 03 ro 0 'O *C > wE S’S E
Reykjavik 37 —
Arnarstapi 55 —
Hellissandur 43 —
Stykkishólmur 33 —
Flatey 36 63
Lambavatn 38 75
Kvígindisdalur 31 ._
Flateyri 77 63
Suðureyri 87 42
Horn 87 —
Kjörvogur 74 —
Núpsdalstunga 62 88
Blönduós 48 88
Skriðuland 65 86
Sandur í AÖaldal 70 69
Húsavík 61 49
Bjarnarstaðir 82 54
ReykjahlíÖ 79 82
Grímsstaðir 75 92
Skálar á Langanesi . . . 59 —
Höfn í Bakkafiröi .... 68 72
Fagridalur 58 83
Nefbjarnarstaðir 55 87
Papey 15 94
Tetgarhorn 27 98
Fagurhólsmýri 23 —
Kirkjubæjarklaustur ... 41 —
Vík í Mýrdal 41 67
Vestmannaeyjar 14 92
Sámsstaðir 22 60
Hæll 36 —
Reykjanes 16 84
Lömbum var gefið 25 vikur (17 stöðvar),
um mánuði lengur en 10 ára meðaltal Þau
voru hýst 26 vikur (18 stöðvar), um mánuði
lengur en 10 ára meðaltal.
Ám var gefið um 26 vikur (18 stöðvar),
6 vikum lengur en 10 ára meðaltal. Þær voru
hýstar rúmlega 26 vikur, er það 5 vikum
lengur en 10 ára meðaltal.
Vorið (apríl—maí) var óhagstætt. um-
hleypingasamt og kalt með köflum. Gróður
var óvenju lítill. Hiti var aðeins yfir meðallagi
og úrkoma 11 °/o umfram meðallag.
tiætt var að gefa gemlingum frá 2.-27.
maí, að meðaltali 17. maí (18 stöðvar), mánuði
síðar en 10 ára meðaltal. Þeim var sleppt að
meðaltali 18 maí (18 stöðvar), tæpum mánuði
síðar en 10 ára meðaltal.
Hætt var að gefa ám frá 3. maí til 3. júnt,
að meðaltali 25 maí (18 stöðvar). Þeim var
sleppt að meðaltali 26. maí (17 stöðvar),
hvortfveggja um mánuði síðar en 10 ára
meðaltal.
Hætt var að gefa hrossum frá 29. apríl til
4. júní, að meðaltali 22. maí (12 stöðvar).
Sums staðar gengu hross sjálfala allan veturinn.
Tún. Frá því að byrjað var að vinna á tún-
um til túnasláttar liðu um 8 vikur (11 stöðvar),
viku skemur en 10 ára meðaltal.
Jörð var síðast alhvit 6. maí (meðaltal 47
stöðva), >/2 mánuði síðar en 10 ára meðaltal.
Jörð var fyrst alauð að staðaldri 20. maí (47
stöðvar), 1/2 mánuði síðar en 10 ára meðaltal.
(49)