Veðráttan

Ukioqatigiit

Veðráttan - 01.05.1949, Qupperneq 1

Veðráttan - 01.05.1949, Qupperneq 1
VEÐRÁTTAN 1949 MÁNAÐARYFIRLIT SAMIÐ ÁVEÐURSTOFUNNI Maí Tíðarfarid var mjög óhagstætt. Snjóþyngsli voru með fádæmum norðan lands og í innsveitum syðra. Haglítið var og gróður nær enginn. Víða horfði til vandræða vegna heyleysis. Samgöngur voru lengst af injög erfiðar, og var jafnvel gripið til þess að varpa heyjum niður úr flugvélum. Gæftir voru fremur tregar og afli misjafn. Þ. 1.—2. barst inilt loft inn yfir landið með lægð, sem fór norður Grænlandshaf. Hitinn var víðast um meðallag. Hvassviðri og mikil úrkoma var víða á Suður- og Vesturlandi (þ. 1. Vm. ESE 11). Vindátt var breytileg, en þó aðallega suðlæg. Þ. 3.—7. var norðlæg átt ríkjandi og kalt um allt land, hiti 2°—6° undir meðal- lagi. Mikil snjókoma var norðan lands. Vindur var allhvass nema þ. 7. (þ. 4. Pap. NNW 10). Lægðir voru norðaustan við landið. Þ. 8.—12. var inildasti kafli mánaðarins. Þ. 8. var hitinn í meðallagi, en hina dagana 1°—4° yfir meðallagi um allt land. Vindátt var mjög breytileg og vindur sjaldan hvass. Grunnar lægðir voru á hreyfingu til norðausturs vestanvert við landið eða yfir því. Rigningasamt var víðast hvar á landinu. Þ. 13.—19. var hitinn 2°—4° undir meðallagi á öllu landinu. Aðfaranótt þ. 13. fór lægð norður nieð austurströndinni, og barst þá kalt loft norðaustan úr liafi inn yfir landið. Smá lægð fór til austurs sunnan við land þ. 14. og 15., vindur var þá yfirleitt austlægur. Siðan var hæg breytileg átt og liæð yfir landinu. Þ. 13. snjóaði á Norður- og Austurlandi, en annars var úrkomulaust að mestu. Þ. 20.—22. var hiti um meðallag, lægð var á hreyfingu til austurs sunnan við land, vindátt var austlæg eða norðaustlæg og vindur ekki sérlega hvass. Nokkur úr- koma var á Norðausturlandi, en annars staðar var þurrt veður. Þ. 23.—31. mátti heita vetrarríki um allt land. Hiti var lengst af 5°—6° undir meðallagi nema á Suður- og Suðausturlandi, en þar var liiti yfirleitt 1°—3° undir meðallagi. Mildast var tvo síðustu dagana. Linnulaus hríðarveður voru á Norðurlandi, og suma dagana var einnig nokkur snjókoma sunnan lands. Vindur var norðlægur eða norðaustlægur og oft hvass, en fór þó óvíða yfir 9 vindstig (þ. 27. Arn. N 11; þ. 28. Rvk. N 10; þ. 29. Vm. N 10). Hæð var yfir Grænlandi, en lægðir austanvert við landið. Loftvœgið var 2.8 inb yfir meðallagi, frá 1.2 mb á Hólum að 4.9 mb í Bolungarvík. Hæst stóð loftvog í Grímsey 1031.1 mb þ. 16. kl. 14, en lægst á Hóluin 987.6 inb þ. 12. kl. 23. Ilitinn var 2.4° undir meðallagi. Kaldast var í innsveitum á Norðurlandi, hiti 3°—4° undir meðallagi, eu inildast við austur- og suðurströndina, hiti 1°—2° undir meðallagi. Við norður- og vesturströndina var hitinn 2°—3° undir mcðallagi. Yfir- leitt fór kólnandi, eftir því sem innar dró í landið. Kaldast var þ. 5. og 6., en þá daga var liitinn 4°—7° undir mcðallagi á þeim stöðvum, sem dagsmeðaltöl liafa. Hlýjast var að tiltölu þ. 9., liiti 2°—8° yfir meðallagi. Sjávarhitinn við strendur landsins var 1.5° undir incðallagi, frá 0.6° við Vest- mannaeyjar að 2.8° við Stykkishólm. IJrkoman var injög misjöfn eftir landshlutum. Norðan lands mældist til jafnaðar tæplega tvöföld meðalúrkoma, en sunnan lands nam úrkoman helmingi af meðal- úrkomu. Miðað við ineðallag mældist mest úrkoma á Húsavík eða rösklega fjórföld meðalúrkoma, en minnst á Teigarhorni, tæplega */7 af meðalúrkomu. Úrkomudagar voru 2—11 umfram meðallag á Vcstfjörðum og Norðurlandi, nema á Blönduósi, en þar vour úrkoinudagar 3 færri en venja er til. Annars staðar á landinu voru úrkomu- dagar 2—11 færri en í meðallagi. Fæstir voru þeir að tiltölu í Vík eða 11 færri en venja er til, en flestir á Akureyri 11 umfrain meðallag. Úrkoma á Hrauni á Skaga mældist 64.3 inm og á Seyðisfirði 87.5 mm. (17)

x

Veðráttan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veðráttan
https://timarit.is/publication/278

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.