Veðráttan - 01.01.1950, Page 1
VEÐRÁTTAN 1950
MÁNAÐARYFIRLIT SAMIÐ Á VEÐURSTOFUNNI
_________________________________________________________j
Janúar
Tíðarfarið var fremur hagstætt landbúnaði, en gæftir voru mjög stopular. Mán-
uðurinn var óvenju mildur, en mjög storma- og votviðrasamur. Samgöngur voru lengst
af greiðar, enda var yfirleitt snjólétt. Afli var með minnsta móti.
Þ. 1.—8. var austlæg átt ríkjandi. Hæð var norður og norðvestur af landinu og
lægðir sunnan við land. Hvassviðri voru tíð og aftakaveður við suðvesturströndina
þ. 7. og 8. (Þ. 3. Vm. E 12; þ. 4. Vík NE 10, Vm. E 11; þ. 5. Sg. E 10, Hól. E 10,
Vík E 10, Ls. ESE 11, Vm. E 12; þ. 6. Vík NE 10, Vm. veðurhæð 12 og E 11; þ. 7.
Vík E 10, Vm. E 14; þ. 8. Hmd. E 10, Hól. ENE 10 og NNE 10, Vík E 10, Vm. E 15
og ESE 12, Smst. E 10, Hæll ENE 10). Lengst af var tiltölulega milt. Þ. 7. var hitinn
á öllu landinu þó 1° undir meðallagi, aðra daga var hann 2°—4° yfir meðallagi.
Mikil úrkoma var um sunnanvert landið, og flesta dagana var einnig nokkur úrkoma
norðan lands.
Þ. 9.-22. var rnilt veður, en mjög úrkomusamt. Aðeins þ. 15.—-16. var nokkurn
veginn þurrt um sunnanvert landið, og þ. 16.-—17. var yfirleitt þurrt norðan lands.
Þ. 16. var hæðarhryggur yfir landinu. Þ. 9.—15. voru lægðir sunnanvert við landið,
en þ. 17.-—22. fóru þær norðaustur Grænlandshaf. Áttin var lengst af austlæg eða
suðlæg. Ekki var eins stormasamt og I byrjun mánaðarins, þó var livassviðri um allt
land þ. 22. og við suðvesturströndina þ. 17. (Þ. 11. Vm. E 11; þ. 12. Vm. SW 11 og
SE 10; þ. 17. And. SE 10, Hmd. SW 10, Vm. veðurhæð 10; þ. 20. Vm. S 10; þ. 22.
Rvk. WSW 11 og SSW 10, Hmd. SSW 12, Lmhv. SW 10, Sðr. W 10, Krv. W 11, Hlh.
WSW 10, Blds. SE 10, Skrl. SW 10, Sd. veðurhæð 10, Vm. SSE 11 og SW 12.) Hit-
inn á öllu landinu var 2°—8° yfir meðallagi. Þ. 17. og 19. var hann 8° yfir meðallagi,
og voru þessir dagar hlýjustu dagar mánaðarins.
Þ. 23.—24. barst kalt loft frá Grænlandi inn yfir landið. Fvrri daginn var hiti
um meðallag, en hinn síðari 1° undir því, og var sá dagur ásamt þ. 7. kaldasti dagur
mánaðarins. Úrkoma var víðast hvar á landinu báða dagana og allhvöss vestlæg eða
suðlæg átt. (Þ. 23. Vst. veðurhæð 10.)
Þ. 25.—31. var hitinn 3°—7° yfir meðallagi. Lægðir voru lengst af sunnan og
suðvestan við land. Vindur var lengst af suðlægur eða austlægur og mjög stormasamt.
(Þ. 25. And. SW 10, Hmd. S 10, Sðr. SE 10 og SSE 10, Bol. SSW 11, Krv. SW 10,
Vm. SSE 10, og SE 11; þ. 26. Rvk. SE 10, And. SE 10, Hsd. S 11, Dt. S 10 og
SSE 10, Vm. SSE 11 og SE 12; þ. 27. Dt. SSE 10; þ. 28. Hmd. SE 10, Skrl. NE 10,
Vin. SSE 12, S 11 og ESE 11; þ. 29. Dt. S 10; þ. 30. Rvk. SE 10, Vm. SSE 11 og S 11,
Vst. veðurhæð 11; þ. 31. Hmd. og Sðr. veðurhæð 10, Vm. veðurhæð 11). Stöðug úr-
koma var um sunnanvert landið.
Loftvœgið var 2.3 mb yfir meðallagi á öllu landinu, frá 0.2 mb undir meðallagi á
Reykjanesi að 5.9 mb yfir því á Dalatanga. Hæst stóð loftvog á Dalatanga þ. 16.
kl. 20, 1024.7 mb, en lægst í Bolungarvík þ. 22. kl. 08, 966.7 mb.
Hitinn var 3.7° yfir meðallagi á öllu landinu. Mildast var að tiltölu í innsveitum
og með ströndum fram á Norðurlandi og á Vestfjörðum. Á þessum slóðum var liitinn
víðast 4°—5° yfir meðallagi. Heldur svalara var út við sjó um austan- og vestanvert
landið. Þar var víðast rösklega 3° hlýrra en í meðalári. Kaldast var að tiltölu um mið-
bik suðurstrandarinnar.
Sjávarhitinn var 1.3° yfir meðallagi. Hlýjast var að tiltölu í sjó við Fagradal og
Kjörvog, 1.7° yfir meðallagi, en kaldast við Grímsey og Vestmannaeyjar, 0.8° hlýrra
en í meðalári.
Urkoma var meiri en í meðalári á flestum þeim stöðvum, sem úrkomumeðaltöl
hafa. Til jafnaðar var úrkoman á öllu landinu 2/6 umfram meðallag. Tiltölulega þurrt
(1)