Veðráttan

Árgangur

Veðráttan - 01.12.1953, Blaðsíða 1

Veðráttan - 01.12.1953, Blaðsíða 1
VEÐRÁTTAN 1953 MÁNAÐARYFIRLIT SAMIÐ Á VEÐURSTOFUNNI Desember Tíöarfariö var óvenju milt, en umhleypingasamt. Snjór var lítill, en jörð mjög blaut. Á stöku stað sáust útsprungin blóm. Samgöngur voru greiðar. Gæftir voru tregar, en afli lengst af sæmilegur. Dagana 1.—4. var kalt í veðri. Þ. 3. var 4° kaldara en í meðalári, og var það kaldasti dagur mánaðarins. Hina dagana var hiti 1°—2° undir meðallagi. Snjókoma eða slydda var um allt land þ. 1. og 2., en þ. 3. og 4. voru aðeins él á stöku stað. Þ. 1. nálgaðist djúp lægð suðurströndina, og hvessti þá af austri og norðaustri (Vm. E 12). Hina dagana var vindur hægari. Djúp lægð fór norður Grænlandshaf þ. 5.—6., og sunnan og suðvestan hvass- viðri bar hlýtt loft inn yfir landið (Þ. 5. Vm. S 10 og SW 11, Smst. vh. 10; þ. 6. Rh. SW 10, Gltv. W 10, Krv. WSW 10, Gr. W 10, Sd. SW 10 og WSW 12, Þrv. SSW 11, Dt. SW 12, Skrk. SW 10, Vm. SW 11 og SSW 10). Hiti var 4°—6° yfir meðallagi. Á Norðausturlandi var að mestu þurrt, en í' öðrum landshlutum var rigning eða slydda. Síðan hélzt hlýindatíð að heita má óslitið til áramóta. Að- eins þ. 24. var kaldara en í meðalári, hiti 1° undir meðallagi. Þann dag var lægða- svæði austan við land, en hæðarhryggur yfir landinu. Þ. 23. var lægðasvæði yfir landinu, en alla aðra daga voru lægðir á hreyfingu norður eftir Grænlandshafi og vindur yfirleitt milli suðausturs og suðvesturs. Dagana 9., 13. og 17. var hiti 7° yfir meðallagi, og voru það tiltölulega hlýj- ustu dagar mánaðarins. Aðra daga, frá 7. til 19., var 3°—6° hlýrra en í meðalári. Frá 20. til mánaðarloka var lengst af heldur kaldara en fyrr í mánuðinum. Þ. 29. og 31. var þó hiti 5°—6° yfir meðallagi, en aðra daga, að þ. 24. undanskildum, var 1°—3° hlýrra en í meðalári. Á Norðausturlandi var úrkomulítið, en í öðrum landshlutum voru stöðugar úrkomur. Þ. 24. var þó víðast þurrt og sums staðar bjart veður. Mest var úrkomumagnið dagana 7.—17., og þá daga voru hvassviðri tíð. Þ. 16. og 17. var hvassviðri um allt land, en þá fór mjög djúp lægð norður Grænlandshaf. (Þ. 7. Sd. WSW 12; þ. 8. Vm. S 10; þ. 11. Dt. SSE 11; þ. 12. Vm. S 10 og SSE 11; þ. 13. Vm. S 10; þ. 15. Vm. E 12; þ. 16. Rvk. SSE 10, Sth. SSE 11, Lmbv. vh. 10, Skrl. vh. 10, Sd. SW 11, Þrv. S 10, Hof SSW 10, Mðrd. S 11, Dt. S og SW 12, Skrk. SSW 10 og S 11, Vm. SSE 13 og S 11, Vst. vh. 11; þ. 17. Sd. S 10, Dt. SW og S 10, Skrk. S 11, Vm. S 11, Vst. vh. 11). Þ. 18,—28. var vindur yfirleitt heldur hægari, en suma dagana var þó stormur á nokkrum stöðvum. (Þ. 19. Gltv. ESE 10, Vst. vh. 11; þ. 21. Vm. E 12; þ. 22. Vm. SSW 13; þ. 25. Vm. SE 11, Kvk. SSE 10; þ. 26. og 27. Vm. W 10), en þ. 29. fór djúp lægð norður Grænlandshaf og olli sunnan og vestan hvassviðri um allt land þ. 29.—30., en þ. 31. lægði veðrið. (Þ. 29. Rvk. S og SSW 10, Arn. WSW 10, Hsd. WSW 11, Sth. SW 10, Fl. WSW 10, Rh. W 10, Kvgd. W 10, Sðr. vh. 11, Hbv. SW 10, Krv. WSW 12, Sg. SSW 10, Gr. W 10, Sd. SW 11, Rfh. WSW 10, Ls. WSW 10, Vm. SW, WSW og W 11, Smst. vh. 10, Kvk. WSW 11, Vst. vh. 10; þ. 30. Rvk. WSW og W 12, Hsd. W 11 og WNW 12, Sth. W 10, Fl. W 11 og WSW 10, Rh. W/10, Lmbv. vh. 10, Hlh. W 10, Sg. WSW 10, Rfh. W 11, Ghg. W 10, Dt. NW 10, Skrk. SW 10, Ls. W 10, Vm. W 13, Smst. vh. 10, Rkn. WSW 10, Kvk. W og WNW 10, Vst. vh. 11; þ. 31. Vm. SW 10). Loftvœgiö var 4.2 mb undir meðallagi, frá 1.2 mb á Djúpavogi að 8.6 mb í Bolungarvík. Lægst stóð loftvog í Vestmannaeyjum þ. 1. kl. 13—16, 965.0 mb, en hæst á Djúpavogi þ. 28. kl. 12, 1017.7 mb. Hitinn var 3.7° yfir meðallagi, og er þetta hlýjasti desembermánuður síðan (45)

x

Veðráttan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veðráttan
https://timarit.is/publication/278

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.