Veðráttan - 01.01.1957, Blaðsíða 2
JANÚAR
VEÐRÁTTAN
1957
Bjart sólekin (klst.)-
Duration o/ bright sunshlne (hours).
Þoka var víðast fátíðari en venja er til. Þ. 1. var
þoka á 12 stöðvum og þ. 13. á 7 stöðvum. Fimm daga
taldist þoka á 1—3 stöðvum.
Vindar milli suðausturs og vesturs voru tíðari en í
meðalári og suðvestanátt tíðust að tiltölu. Vindar milli
norðurs og austurs voru tiltölulega fátiðir. Logn var
sjaldnar en venja er til og veðurhœð hálfu stigi meirl
en í meðalári. Stormdagar voru taldir fleiri en i meðal-
ári á öllum stöðvum, sem meðaltöl hafa, nema Gríms-
stöðum. Þar var aldrei getið um storm.
Þrumur voru óvenju tíðar. Greint var frá þrumum i
skýrslum athugunarmanna, sem hér segir: Þ. 3. Vík; þ.
4. Vik, Lf., Vst.; þ. 5. Lmbv., Kbkl., Vm.; þ. 6. Kbkl.;
þ. 7. Kbkl., Jaðar; þ. 19. Hól.; þ. 20. Vík; þ. 22. Kbkl.;
þ. 23. Tgh., Kbkl., Vík, Smst., Jaðar; þ. 24. Rvk., Hól.,
Eyrb., Kvk.; þ. 25. Hól.; Þ. 30. Hlst., Tgh.
Snjólag var til jafnaðar 56% á öllu landinu. Snjór
var talinn meiri en i meðalári á þeim stöðvum, sem
meðaltöl hafa, frá Vík að Lambavatni. 1 öðrum lands-
hlutum voru minni snjóalög en venja er til.
Hagar voru 78%. Sunnan lands og vestan voru þeir
yfirleitt lélegri en í meðalári, en betri en venja er til á
Norður- og Austurlandi.
SkaÖar. Þ. 2. fórst bv. Goðanes við Færeyjar. Skip-
stjórinn drukknaði, en öðrum var bjargað. Þ. 6. lentu
tvær flugvélar í hrakningum vegna veðurs. Þ. 8. drukkn-
aði skipverji af vb. Maí frá Vestmannaeyjum. Miklir
skaðar urðu í ofviðrinu þ. 14. Mest varð tjónið á Vest-
fjörðum og Norðurlandi. Útihús fuku á Vífilsmýrum í
önundarfirði, maður meiddist, og vörubifreið fauk út af
vegi í grennd við bæinn. Á nokkrum öðrum bæjum í
Önundarfirði urðu heyskaðar og skemmdir á húsum. Á
Geirseyri, Flateyri og Þingeyri varð einnig tjón á mann-
virkjum. Vb. Freyju rak á land í Súgandafirði, og bátar
á höfninni á Isafirði skemmdust. Þak tók af fjárhúsi og
hlöðu þar í grenndinni. 1 Þingeyjar- og Eyjafjarðarsýsl-
um urðu einnig miklir skaðar. 1 Grímsey gróf brim und-
an olíugeymi 60 m frá sjó og færði geyminn úr stað. Á
Ólafsfirði skemmdust olíuleiðslur, og 200 þús. lítrar af
olíu runnu í sjóinn. 1 Ljósavatnsskarði og Fnjóskadal
skemmdust útihús, og hey fuku. Hafnargarðurinn í Hris-
ey skemmdist. Nokkurt tjón varð á Siglufirði og i Flat-
ey. Þ. 16. varð umferðarslys af völdum hálku á Blönduósi, og sama dag var maður nærri
orðinn úti I Oddskarði. Þ. 17. urðu aftur margvíslegir skaðar af sjógangi og veðurofsa á
Vestur- og Norðurlandi. Brimið braut steinsteypta varnargarða á Flateyri, og sjór flæddi
inn í kjallara húsa. Fiskvinnsluhús fauk, stórskemmdir urðu á skreiðarhjöllum og fiski-
mjöl eyðilagðist í geymslum i þorpinu. Útihús fuku í Skápadal í Patreksfirði, og nokkrar
skemmdir urðu á öðrum bæjum þar. Þinghúsið í Gufudal í Barðastrandarsýslu fauk af
grunni og brotnaði i spón. Vegur sópaðist burt á alllöngum kafla á Rauðasandi, og víðar
á Vestfjörðum braut brimið vegi. Á Suðureyri varð mikið tjón á hafnarmannvirkjum og
húsum, og í Bolungarvik urðu nokkrar skemmdir. Á Isafirði fór hafnarbakki og bryggjur
i kaf, og skemmdir urðu á bátum. Bryggja brotnaði á Arngerðareyri. Miklar skemmdir
urðu á mannvirkjum á Straumnesfjalli og i Aðalvík. Á Reykjanesi og Gilsbakka á Strönd-
um fuku hlöður. Bátur tókst á loft úr vetrarstæði á Kjörvogi, fauk til, og skemmdist
nokkuð. Þak gistihúss í Haganesvík fauk og einnig þak af samkomuhúsi í Berufirði. Stórt
fjárhús fauk i heilu lagi á Lundi i Holtshreppi. Víða fuku hey og þakjárn af húsum, og
síma- og raflínur slitnuðu. Vb. Fjölnir strandaði við Rifshöfn og skemmdist lítið eitt, og
vb. Báran frá Vopnafirði slitnaði upp og eyðilagðist. Brim braut sjóvarnargarð á Álfta-
nesi, nokkrir bæir urðu umflotnir sjó, og grjót barst á tún. Þ. 22. sló eldingu niður í
simstöð á Seljalandi undir Eyjafjöllum, og urðu þar nokkrar skemmdir. Þrumuveðrið
olli nokkrum skemmdum á símatækjum víðar í Rangárþingi. Þ. 24. sló eldingu niður í
Þorlákshöfn og spennustöð eyðilagðist. Þ. 25. skemmdist dráttarbraut Keflavíkur af eld-
ingu. Þ. 27. tók mann út af vb. Þórði Ólafssyni, og drukknaði hann. Þ. 28. varð stúlka úti
á Keflavíkurflugvelli. Á Vatnsnesi meiddist kona er bifreið, sem hún ók, rann á hálku.
Flugturnarnir á Reykjavikurflugvelli og Keflavíkurflugvelli skemmdust báðir. Þakjárn
fauk af húsum á Siglufirði og í Hornafirði. I Hornafirði brotnuðu einnig margir síma-
staurar. Frá 21. til mánaðarloka slitnuðu oft síma- og rafmagnslínur sunnan lands og
vestan vegna snjóþunga. Margir staurar brotnuðu í Þingvallasveit þ. 23.
Reykja- Akur- Hallorms-
Dags. vík eyri staOur
i. 2.3
2.
3.
4.
5.
6.
1.
s. o.i
9. 1.1
10.
11.
12.
13.
14. 0.3
15. , ,
16.
17.
18. , ,
19. , ,
20. 0.2 , ,
21. 0.4 0.3
22. ,,
23. ,,
24. ,,
25. , ,
26.
27. 3.1
28.
29.
30.
31. 1.2 >'
Alls \ Sum J 5.3 3.7 M
Vik frá meðallagi
Deviation from normal.
Klst. -13.2 -2.7 —
% -71 —42 —
Sól kemur ekki upp á HallormsstaS
fyrr en 28. Janúar.
(2)