Veðráttan - 01.12.1962, Page 1
VEÐRÁTTAN 1962
MÁNAÐARYFIHLIT SAMHt A VERIIIISTOFIINNI
Desember
Tíöarfar var yfirleitt talið hagstætt austantil á landinu, en vestan lands var umhleyp-
ingasamt fram að jólum. Samgöngur voru lengst af sæmilega greiðar.
Fyrstu viku mánaðarins voru hlýindi. Þ. 1.—4. var hiti 4°—5° yfir meðallagi, og þ.
5.—7. var 2°—3° hlýrra en i meðalári. Hæð var yfir Norðaustur-Grænlandi og hafinu
austur undan, en lægðir komu suðvestan úr hafi. Smálægð fór austur yfir land þ. 1. og
önnur norður með vesturströndinni daginn eftir. Báða dagana varð allhvasst. Úrkoma
var um allt land, og sunnan lands og vestan rigndi víða mikið. Þ. 3. og 4. var víðáttu-
mikil lægð á Grænlandshafi, allhvöss suðaustan- og sunnanátt með talsverðri rigningu
um vestanvert landið, en hægara og úrkomulítið norðan lands og austan. Lægðin fór
austur með suðurströndinni þ. 5. og olli fyrst austanátt með rigningu austan lands og
sunnan, en síðan brá til norðanáttar með talsverðri úrkomu norðan lands, og syðra
stytti upp. Ný lægð kom úr suðvestri þ. 6. og var austan hvassviðri sunnan lands þann
dag. Mikil rigning var sunnan lands og austan, og aðfaranótt þ. 7. breiddist úrkomu-
svæðið norðvestur yfir landið. Lægðin kom inn yfir landið þ. 7. og gerði þá norðan og
norðaustan storm með hríðarveðri norðvestan lands, en austan lands var suðlæg átt
og rigning.
Lægðin fór norðaustur í haf þ. 8., og síðdegis var komin hvöss norðanátt um allt land.
Austan og norðaustan til á landinu varð dagurinn þó 3°—4° hlýrri en í meðalári, en ann-
ars staðar var hiti 1°— 5° undir meðallagi. Sunnan lands var þurrt, en norðan til á
landinu snjóaði.
Dagana 9.—12. var kalt. Þ. 11. og 12. var 6° kaldara en í meðalári, og urðu það köld-
ustu dagar mánaðarins, en þ. 9. og 10. var hitinn 3°—4° undir meðallagi. Norðanáttina
lægði undir kvöld þ. 9., en daginn eftir olli lægð suðvestan við land suðaustan og austan
hvassviðri á Suðurlandi. Lægðin hreyfðist hratt suðaustur, og þ. 11. gekk aftur í norðan-
átt, en þ. 12. lægði. Norðan lands var dálítil snjókoma alla dagana, og þ. 10. var víða
allmikil snjókoma sunnan lands, en annars var þar að mestu bjart.
Lægð fór norður Grænlandshaf og norður fyrir land þ. 13. og olli fyrst sunnanátt
með allmikilli úrkomu um allt sunnan- og vestanvert landið, en síðan gerði vestanátt
með éljum. Hiti var 1° yfir meðallagi.
Þ. 14. var lægðin komin austur fyrir land, kaldara loft barst á ný inn yfir landið, og
varð 2°—5° kaldara en í meðalári dagana 14.—16. Allkröpp lægð kom suðvestan úr hafi
og fór til austurs sunnan við land, en síðasta daginn var hæðarhryggur yfir landinu. Vind-
átt var breytileg þessa þrjá daga, sums staðar voru él, en úrkoman var víðast lítil.
Dagana 17.—24. var stormasamt en fremur hlýtt. Þ. 17.—19. voru lægðir suðvestan
og vestan við land, vindur milli austurs og suðurs og hvasst um allt land. Víðast dró þó
úr veðrinu í svip aðfaranótt 19. Á Suðausturlandi var mikil úrkoma og einnig sums
staðar vestan til á landinu, en á Norður- og Norðausturlandi var úrkomulítið nema síð-
asta daginn. Hiti var frá meðallagi að 2° yfir því þessa þrjá daga. Þ. 20. fór lægðadrag
norðaustur yfir landið og brá til vestanáttar með éljum, en þ. 21. hvessti á ný af suðri, og
daginn eftir bar sunnan stormur mjög hlýtt loft inn yfir landið. Hiti varð 8° yfir meðal-
lagi og varð þetta hlýjasti dagur mánaðarins, en þ. 20. og 21. var 1°—2° hlýrra en í meðal-
ári. Mikil úrkoma var þ. 21. og 22. alls staðar nema norðaustan til á landinu. Lægð var
að dýpka vestan við land þ. 21. og 22., en hreyfðist síðan norðaustur á bóginn þ. 23.—24.
Vaxandi hæð var sunnan við land. Tvo síðasttöldu dagana var vestanátt. Sunnan lands
og vestan voru él þ. 23., en á aðfangadag birti til og kólnaði. Hiti var 4° yfir meðal-
lagi þ. 23., en 1° yfir því þ. 24.
Síðustu viku ársins var hæð yfir landinu og yfirleitt stillt veður. Á Austurlandi var
úrkomulaust, og þ. 25.—26. mátti heita þurrt um allt land. Þá tvo daga var 2°—4° kaldara
en í meðalári. Smálægð fór norður með Grænlandi þ. 27.—28. og bar loft úr suðvestri inn
yfir landið og olli lítils háttar snjókomu sums staðar vestan og norðan til á landinu. Þ. 27.
var allt að 4° hlýrra en i meðalári norðvestan til á landinu, en annars staðar var hiti frá
meðallagi að 3° undir þvi. Þ. 28. var 4° hlýrra en venja er til á landinu öllu. Siðan var
úrkomulaust að mestu og hægviðri til áramóta, en kaldara, hiti var frá 1° yfir meðallagi
að 1° undir því.
(89)