Veðráttan - 01.06.1979, Blaðsíða 2
Júní
VEÐRÁTTAN
1979
Loftvægi var 3.3 mb undir meðallagi á öllu landinu, fró 1.6 mb í Vestmannaeyjum
að 4.1 mb á Hornbjargsvita, Rauf£irhöfn og Dalatanga. Hæst stóð loftvog, 1030.1 mb,
á Höfn í Hornafirði, þ. 3. kl. 09, en lægst, 988.5 mb, á Grimsstöðum þ. 22. kl. 21.
Hiti var 0.9° lægri en í meðallagi. Á Suðvesturlandi, Snæfellsnesi, Vestfjörðum og an-
nesjum Norðanlands, var hiti l%°-2%° undir meðallagi, en annars yfirleitt um %°-l%°
undir meðallagi, nema í innsveitum Austurlands og í Skaftafellssýslum, þar sem hiti
var um meðallag.
Úrkoma var 146%. Mest að tiltölu var úrkoman, rúmlega tvöfalt meðalúrkomumagn,
í Árnes- og Rangárvallasýslum og é Vestfjörðum frá Kvigindisdal að Galtarvita. Minnst
að tiltölu var úrkoman, um meðallag, á Austfjörðum og þaðan með suðausturströnd-
inni að Mýrdalsjökli. Úrkomudagafjöldi var mun meiri en í meðallagi á öllu landinu,
1-4 dögum fleiri en á Suður- og Austurlandi frá Vík i Mýrdal austur að Vopnafirði, en
annars staðar 5-10 dögum fleiri.
Þoka var nokkuð sjaldgæfari en venja er til á þeim stöðum, sem hafa meðalþokudaga
reiknaða. Um þoku var getið 28 daga. Þ. 5. og 8. var þoku getið á 25 og 21 stöð. Þoku
var getið á 10-18 stöðvum þ. 4., 6., 9., 11., 12., 18., 20. og 22., á 5-9 stöðvum 13 daga og
á 1-4 stöðvum 5 daga.
Vindar. Sunnanátt var langtíðust í mánuðinum og einnig var vestanátt mun tiðari
en venja er. Hægviðri, norðaustan- og austanáttir voru aftur ó móti mun fátíðari en
venja er til í þessum mánuði.
Snjólag var 8% á öllu landinu. Jörð var yfirleitt talin auð I byggð, nema á Norður-
og Norðausturlandi, þar sem snjólag var heldur meira en venja er í þessum mánuði.
Snjódýpt var mæld á 5 stöðvum, þar sem jörð var talin hvít. Mesta meðalsnjódýpt,
12 cm, mældist á Sandhaugum. Mesta snjódýpt, 15 cm, var mæld á Sandhaugum þ. 1.
Þar var jörð talin alhvít 2 fyrstu daga mánaðarins. Meðalsnjódýpt var 3 cm á Reyðará,
2 cm á Hveravöllum og 1 cm á Nautabúi og Hólum í Hjaltadal.
Framhald á bls. 48.
Stormar.
VEDURHÆO 9 VINDSTIQ VEDURHÆD 10 VINDSTIQ EDA MEIRA EDA MEIRA 2 o Wind force 5 10 « ® 2 Q fa « * VEDURHÆD 9 VINDSTIQ VEDURHÆD 10 VINOSTIQ EDAMEIRA EÐA MEIRA S | Wind force ^ 10 <? § — Q h « *
2. 2 15. 1
3. 3 Vm. ESE 10. 17. 1
4. 1 18. 1
9. 1 27. 1 Vm. ESE 10.
•; Number of atations with wind force >0. ,
(42)