Veðráttan

Árgangur

Veðráttan - 02.12.1979, Blaðsíða 29

Veðráttan - 02.12.1979, Blaðsíða 29
Ársyfirlit VEÐRÁTTAN 1979 þar eru geröar veðurathuganir kl. 9,15 og 21 og athugunarmaður er Guðmundur Stefáns- son bóndi. Veðurathugunarstöðin að Vöglum II var flutt að Lerkihlið snemma í septembermán. Veðurfarsathuganir lögðust niður í Krísuvík um miðjan desembr. Öreglulegar stöövar: Athuganir voru gerðar í Heiðmörk mánuðina mai til október og á Korpúlfsstöðum maí til september. EftirlitsferÖir 1979: Starfsmenn Veðurstofunnar heimsóttu eftirtaldar stöðvar á árinu: Akranes, Akureyri (lögreglustöð), Blönduós, Búð, Búrfell, Fitjar, Grundartanga, Heiðar- bæ, Heiðmörk, Hrauneyjarfoss, Hvanneyri, Hæl, Jaðar, Kalmannstungu, Keflavíkur- flugvöll, Korpúlfsstaði, Máskeldu, Miðfell, Nautabú, Raufarhöfn, Reykhóla, Reyki í ölfusi, Sámsstaði, Sigöldu, Síðumúla, Skriðuklaustur, Skógargerði, Stardal og Þingvelli. Athuganir á skipum 1979: Á eftirtöldum skipum voru gerðar athuganir og skeyti send: Arnarfelli, Álafossi, Árna Friðrikssyni, Bakkafossi, Berglind, Bifröst, Bjarna Bene- diktssyni, Bjarna Sæmundssyni, Brúarfossi, Bæjarfossi, Dettifossi, Dísarfelli, Eldvík, Engey, Fífli, Fjallfossi, Freyfaxa, Goðafossi, Goðanum, Grundarfossi, Guðsteini, Háa- fossi, Harðbak, Helgafelli, Hofsjökli, Hvassafeili, Ingólfi Arnarsyni, Irafossi, Jóni Dan, Jóni Finnssyni, Júní, Jökulfelli, Kaldbak, Kljáfossi, Lagarfossi, Langá, Laxá, Lax- fossi, Mánafossi, Múlafossi, Mælifelli, Rangá, Reykjafossi, Selá, Selfossi, Sigurði, Skafta- felli, Skaftá, Skeiðsfossi, Skógafossi, Sléttbak, Snorra Sturlusyni, Stuðlafossi, Suð- urlandi, Svani, Tungufossi, Urriðafossi, Úðafossi, Vesturlandi, Vigra og ögra. (Alls 61). Háloftaathuganir voru gerðar tvisvar á sólarhring á Keflavíkurflugvelli. Heildarfjöldi athugana varð 720 og athuganir á vindi voru 718. VeÖurstofan starfrækti jaröskjálftamæla á eftirtöldum stöðum: Reykjavík, Síðumúla, Hrauni á Skaga, Hveravöllum, Grimsey, Akureyri, Eyvindará, Kirkjubæjarklaustri og Kvískerjum. Á árinu voru hafnar jarðskjálftamælingar i Leirhöfn. Frá haustinu 1979 hefur Veðurstofan rekið 8 þenslumælastöðvar á eftirtöldum stöð- um á Suðurlandi: Stórólfshvoli, Hellu, Saurbæ í Holtum, Búrfellsvirkjun, Gljúfurleit við Þjórsá, Jaðri í Hrunamannahreppi, Skálholti og Riftúni í ölfusi. Mælar þessir eru steyptir niður í djúpar borholur og eru tengdir við skrifara á yfirborðinu, og er tilgangurinn með þeim að meta hægfara breytingar á spennuástandi jarðskorpunnar á þessu svæði. Ýmislegt. Þ. 1. júli urðu breytingar á rekstri Veðurstofunnar. Flugveðurþjónustan á Kefla- víkurflugvelli, sem hefur verið starfrækt síðan 1952, var flutt til Reykjavikur og sam- einuð veðurspádeildinni þar. Á veðurspádeild fjölgaði um 3 veðurfræðinga og 2 rann- sóknamenn. Álþjóðaflugmálastofnunin greiðir laun þessara starfsmanna. Þessar breyt- ingar stöfuðu af samdrætti Alþjóðaflugmálastofnunarinnar (ICAO) á flugveðurþjón- ustu við alþjóðlegt flug yfir Norður-Atlandshaf.. Frá sama tíma tók Veðurstofan að sér allar veðurathuganir á Keflavíkurflugvelli. Fyrri hluta ársins dvaldi hér á landi, í þrjá mánuði, veðurfræðingurinn Ernest Hov- möller, sem er að góðu kunnur fyrir fyrri sérfræðingsaðstoð sína við Veðurstofuna. Hann vann hér við að undirbúa 3—5 sólarhringa veðurspár, sem ætlað er að gera i náinni framtið. Guðmundur Hafsteinsson sótti námskeið í veðurspágerð fyrir svifflug í Oberpfaffen- hofen við Miinchen 1.—16. mai. Otvarp veðurfregna og útgáfustarfsemi. Útvarpstlmar veöurfregna voru sem hér greinir: Kl. 100, 430, 700 (nema á sunnu- dögum), 815, 1010, 1225 (1245 frá 1. maí), 1615, 1845 og 2230 (2215 frá 1. nóv.). Kl. 100, 700, 1010 og 1845 var bæði útvarpað veðurlýsingu frá einstökum veðurstöðv- um (kl. 700 aðeins innlendar stöðvar), almennu yfirliti og veðurspá fyrir landið, miðin, Austurdjúp og Færeyjadjúp. Á öðrum tímum var útvarpað almennu yfirliti og veður- spá. Kl. 100 og 1245 (1225) var einnig útvarpað spá fyrir hafið sunnan og suðvestan við landið. 1 veðurlýsingu frá einstökum veðurstöðvum var frá 19. apríl tekin upp sú nýbreytni að lesa loftvægi á stöðvunum Reykjavík, Galtarvata, Raufarhöfn, Dalatanga, Stórhöfða, Kristjánssundi, Angmagsalik, Tóbinhöfða, Jan Mayen og síðar á árinu einnig á veður- (125)

x

Veðráttan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veðráttan
https://timarit.is/publication/278

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.