Veðráttan - 01.08.1989, Blaðsíða 1
ISSN 0258-3836
VEÐRÁTTAN 1989
MÁNAÐARYFIRLIT SAMIÐ Á VEÐURSTOFUNNI
ÁgÚSt
Tíðarfarið í mánuðinum var talið heldur lélegt. Sæmilega hlýtt var en sólarlítið og votviðra-
samt. Hirðing þurrheys gekk illa og berjaspretta var fádæma léleg.
Þ. 1. var hiti 1° yfir meðallagi. Lægð var á Grænlandshafi á leið norðaustur og hæg suðaust-
læg átt, súld og rigning vestan- og sunnanlands en þurrt fyrir norðan nema við ströndina.
Dagana 2. - 7. var hiti í meðallagi. Hæðarhryggur var yfir Norðaustur-Grænlandi og þok-
aðist austur. f>. 2. var norðvestanátt og súld við vesturströndina. Þ. 3. var norðan gola og
skúrir eða þokuloft við norðurströndina fram eftir degi en síðan létti til. t>. 4. var þurrt en
skýjað nema austast þar var bjartara. Veður var svipað þ. 5. en þokubakkar voru við austur-
og norðurströndina og súld á Vestfjörðum.
Þ. 6. var súld eða rigning vestantil á landinu og um kvöldið vaxandi suðaustanátt, er smá
lægð nálgaðist úr suðvestri. Rigndi víða þ. 7. nema norðaustan- og austanlands. Þ. 8. var hiti
1° yfir meðallagi og skil þokuðust yfir landið með talsverðri úrkomu víða um land.
Dagana 9. -14. var hiti í meðallagi. Þ. 9. var lægð að þokast austur fyrir sunnan land og var
hæg austlæg átt og víða rigning við austur- og suðurströndina en léttskýjað á Vestur- og
Norðvesturlandi. Aðfaranótt þ. 10. þykknaði upp fyrir norðan með vaxandi norðaustanátt og
fór að rigna þar, en birti til syðra en skúrir voru á stöku stað. Þ. 11. var austan strekkingur og
dýpkandi lægð suðaustur af landinu á leið norður. Mikið vatnsveður var austanlands í kjölfar-
ið en aðeins smá skúrir vestantil. Þ. 12. stytti upp austanlands en rigning var á annesjum
norðvestanlands og súld eða skúrir við suðurströndina. Þ. 13. -14. var austanátt á landinu og
skúrir eða súld víða nema á Vesturlandi og innsveitum norðvestanlands þar var þurrt og
léttskýjað.
Þ. 15. dýpkaði lægð við Skotland og þokaðist norður. Var norðlæg átt og hiti 1° undir
meðallagi dagana 15. -18. Strekkingsvindur var þ. 15. og rigning eða súld norðan- og austan-
lands en skýjað annars staðar. Þ. 18. var súld víða um land nema syðst þar var bjartviðri og
stundum léttskýjað.
Síðdegis þ. 18. gekk norðanáttin niður og þornaði. Þ. 19. var hiti í meðallagi og hæg suð-
austanátt. Var bjart veður nema á Austfjörðum þar var þoka um kvöldið. Aðfaranótt þ. 20.
þykknaði upp og lægð nálgaðist landið. Rigndi lítið nema við suður- og suðausturströndina.
Hiti var 2° yfir meðallagi þ. 20. og var það annar af tveim hlýjustu dögum mánaðarins að
tiltölu. Dagana 21. - 23. var lægð að þokast austnorðaustur um sunnanvert landið. Hiti var 1°
yfir meðallagi þ. 21. og var suðlæg átt og víða léttskýjað norðantil en skúrir sunnantil á
landinu. Þ. 22. var hiti í meðallagi og vindátt smám saman að snúast til norðurs. Skúrir eða
súld voru víða nema á Suðvesturlandi þar létti til. Þ. 23. var hiti 1° undir meðallagi og norð-
vestanátt að færast inn á landið. Rigning og súld var norðantil en víða léttskýjað á Suður- og
Suðausturlandi.
Dagana 24. - 27. var hæg breytileg átt á landinu og víða léttskýjað nema við ströndina
norðantil, þar var þokuloft einkum þ. 25. Hiti var í meðallagi þ. 24. og 1° undir því þ. 25. - 26.
og aftur í meðallagi þ. 27.
Síðdegis þ. 27. nálgaðist landið úrkomusvæði úr suðvestri. Var suðaustlæg átt og rigning þ.
28. og hiti 1° yfir meðallagi. Þ. 29. var víðast þurrt og sums staðar léttskýjað norðanlands og
hiti 2° yfir meðallagi sem var hinn af tveim hlýjustu dögum mánaðarins. Aðfaranótt þ. 30.
dýpkaði lægð skammt suðvestur af landinu og þokaðist norðaustur. Hiti var 1° yfir meðallagi
þ. 30. og rigndi um allt land en um kvöldið snerist vindur til norðurs og létti til syðra. Var hiti
2° undir meðallagi þ. 31. og var það kaldasti dagur mánaðarins að tiltölu. Var norðanátt og
rigning norðantil en skúrir sunnantil þann dag.
Loftvægi var 8.2mb undir meðallagi. Frá 8.6mb undir meðallagi á Dalatanga að 6.8mb
undir því á Galtarvita. Meðalloftvægi í Stykkishólmi var 999.8mb, sem er það lægsta í ágúst-
mánuði frá upphafi mælinga 1845. Hæst stóð loftvog 1024.7mb á Hjarðarnesi þ. 26. kl. 21 og
24, en lægst 972.7mb á Reykjanesvita þ. 26. kl. 21.
Vindáttir milli norðvesturs og austurs voru tíðastar í mánuðinum. Norðaustanáttir voru
langalgengastar en suðvestanáttir mun fátíðari en venja er.
(57)