Veðráttan - 01.09.1992, Blaðsíða 1
ISSN 0258-3836
VEÐRÁTTAN 1992
MÁNAÐARYFIRLIT SAMIÐ Á VEÐURSTOFUNNI
September
Fyrri hluta september var kuldatíð og norðaustanlands var mikið úrfelli og dimm-
viðri. Síðari hluta mánaðarins var hagstæð tíð. Þ. 1.-3. var norðaustanátt, skúrir eða
slydduél á víð og dreif norðanlands en þurrt og víða léttskýjað sunnanlands. Hiti var
3° undir meðallagi 1. og 2. og 4° undir meðallagi 3. og 4. sem voru köldustu dagar mán-
aðarins að tiltölu. Hiti var 3° undir meðallagi 5. Þ. 4. var breytileg átt og skúrir eða
slydduél. Grunn lægð kom upp að landinu og næsta dag þokaðist hún austur með
suðurströndinni og dýpkaði og vindur snerist til vaxandi norðaustanáttar. Suðvestan-
lands létti heldur til en í öðrum landshlutum var rigning.
Þ. 6. og 7. var djúp lægð kyrrstæð skammt suðaustur af landinu og norðaustan
hvassviðri eða stormur. Sunnanlands var lítil úrkoma en sums staðar sandfok eða
moldrok. Á Norður- og Austurlandi var slydda eða rigning, langmest um austanvert
landið. Hiti var nálægt meðallagi 6. og 7., 2° undir því 8. og 3° undir meðallagi 9.-11.
Þ. 8.-10. var lægðin að grynnast fyrir austan og norðaustanland. Vindur var norðan eða
norðvestan og allhvass við norðurströndina. Norðanlands var kalsarigning eða slydda
en bjart veður sunnanlands.
Þ. 11. var hæðarhryggur fyrir vestan land og fremur hæg norðanátt og dálítil súld
norðanlands en léttskýjað suðvestanlands. Síðdegis óx vindur er lægð nálgaðist úr suð-
austri. Næsta dag þokaðist hún norður fyrir austan land. Þá var allhvöss eða hvöss
norðan og síðan norðvestanátt. Suðvestanlands var þurrt að kalla en rigning eða
slydda annars staðar, langmest norðaustanlands. Hiti var 2° undir meðallagi 12.-15.
Þ. 13.-15. var lægð fyrir norðaustan land. Norðanlands var norðvestanátt og rigning
eða slydda, en sunnanlands var norðaustanátt og léttskýjað. Þ.16. nálgaðist vaxandi
lægð úr suðri og vindur snerist til austurs. Sunnanlands þykknaði upp og fór að rigna
um kvöldið en norðanlands létti nokkuð til. Næstu daga var lægðin kyrrstæð suðvestur
af landinu. Þ. 17. var austan hvassviðri eða stormur við suðurströndina en heldur hæg-
ari annars staðar. Rigning var um allt land, langmest á Suðausturlandi. Síðdegis snerist
vindur til suðausturs og lægði talsvert. Hiti var nálægt meðallagi 16. og 17. Þ. 18.-20.
var suðaustan strekkingur. Norðanlands var úrkomulítið og víða bjart veður og hlýtt
að deginum en í öðrum landshlutum var rigning eða skúrir. Hiti var 2° yfir meðallagi
18.-20., en í meðallagi 21.-24.
Þ. 21.-23. voru grunnar lægðir á sveimi við landið og vindur breytilegur eða norðlæg-
ur. Fyrri daginn var léttskýjað sunnanlands en annars rigning eða skúrir um allt land.
Við norður- og austurströndina var þoka.
Þ. 24. nálgaðist hæðarhryggur úr vestri. Vindur var norðlægur og síðan breytilegur
og fremur hægur. Sunnanlands var víða léttskýjað framan af degi en súld á Norður- og
Austurlandi og þoka við ströndina.
Þ. 25.-30. var lægð vestur og suðvestur af landinu. Talsvert hlýnaði í veðri síðustu
daga mánaðarins. Hiti var 1° yfir meðallagi 25.-27., 3° yfir því 28. og 5° yfir meðallagi
29., sem var hlýjasti dagur mánaðarins að tiltölu. Þ. 30. var hiti 4° yfir meðallagi.
Þ. 25. og 26. var sunnanátt og rigning eða skúrir um allt land, mest vestanlands. Þ. 28.-
30. var austlæg átt, hvassviðri eða stormur við suðurströndina en hægari annars staðar.
(65)