Veðráttan - 01.04.1993, Page 1
ISSN 0258-3836
VEÐRÁTTAN 1993
MÁNAÐARYFIRLIT SAMIÐ Á VEÐURSTOFU ÍSLANDS
Apríl
Tíð var góð um land allt fyrri hluta mánaðarins, en spilltist síðan um vestanvert landið. Gæftir
voru stopular fyrir smábáta.
Nær allan fyrri hluta mánaðarins var hiti yfir meðallagi og varla skar nokkur dagur sig úr. í>. 1.
var vindur hægur og víða bjart veður á landinu, en næsta dag var hægt vaxandi austanátt. Nokkur
rigning var suðaustanlands 2. en annars þurrt að kalla. Lægð nálgaðist úr suðri 3. og þá bætti
heldur í vind. Austlægar áttir héldust næsta dag. Hvasst var við suðurströndina 7. og 8., en annars
var vindur hægur einkum 9. - 12. Lengst af var einhver úrkoma um landið austanvert, en annars
úrkomulítið ef frá eru talin regnsvæði sem fóru yfir 4. - 5. og 7. - 8. Lægðir voru fyrir sunnan og
síðar suðaustan land.
Þ. 12. snerist vindur til suðurs og fór að rigna á Suður- og Vesturlandi og síðar um mestallt land.
Þ. 13. var smálægð yfir landinu og vindátt breytileg. Norðanlands var úrkomulítið en annars voru
smáskúrir eða dálítil rigning. Þ. 14. dýpkaði lægð nærri Vestfjörðum. Vindur varð vestlægur og
veður kólnaði. É1 voru um vestanvert landið, en bjart veður eystra.
Þ. 15. og 16. þokaðist lægðin austur fyrir land og snerist vindur þá smám saman til norðanáttar
og létti til syðra, en él voru á Norðurlandi. Svipað veður hélst einnig 17., en 18. - 20. hreyfðist
allmikil lægð til austurs fyrir sunnan land. Nokkuð hvöss austanátt var við suðurströndina 19. og
síðan hallaðist vindur meir til norðausturs. Á Norður- og Austurlandi var úrkoma af ýmsum tegundum
en aftur létti til syðra.
Dagana 21. - 24. varð einna kaldast í mánuðinum. Fyrstu tvo dagana var hæg norðaustanátt
með björtu veðri syðra, en síðan var dálítið lægðardrag við Vesturland. Þá gerði þar slyddu eða
snjókomu, en birti upp á Norður- og Austurlandi.
Síðustu daga mánaðarins fóm tvær lægðir norðaustur Grænlandshaf, með ýmist sunnan- eða
suðvestanátt. Hin fyrri fór hjá 26. en hin síðari aðfaranótt og fyrri hluta dags 28. Þ. 29. og 30.
grynntist lægð á Grænlandshafi. Þessa síðustu viku mánaðarins var fremur hryssingslegt veður
með ýmist rigningu, snjókomu eða éljum um sunnan- og vestanvert landið, en eystra var úrkomulítið
lengst af.
Loftvægi var 2,7 mb undir meðallagi áranna 1931 - 1960, frá 4,0 mb undir því í Sth að 1,6 mb
undir á Dt. Hæst stóð loftvog á Dt þ. 2. kl. 9, 1025,7 mb, en lægst á Hbv þ. 26. kl. 9, 981,5 mb.
Vindáttir: Austanátt var ívið algengari en að meðaltali 1971 - 1980, en aðrar áttir heldur
fátíðari, einkum vestan- og norðanátt.
Snjódýpt var mæld á 75 stöðvum þá morgna sem alhvítt var. Mest snjódýpt í mánuðinum var á
Hvrv þ. 5. og 7., 111 cm. Þar var einnig mest meðalsnjódýpt, 108 cm. Meðalsnjódýpt var 31 - 50 cm
á 3 stöðvum, 20 - 30 cm á 2 stöðvum, 11 - 20 cm á 4 stöðvum, en annars minna.
Þrumur heyrðust eða leiftur sáust á Fghm þ. 5. og í Bðvr þ. 30.
Skaðar: Báturinn Freyja fórst á Faxaflóa 28. Tveir skipveijar drukknuðu.
(25)