Veðráttan - 01.04.1994, Page 1
ISSN 0258-3836
VEÐRÁTTAN 1994
MÁNAÐARYFIRLIT SAMIÐ Á VEÐURSTOFU ÍSLANDS
Apríl
Tfðarfaríð í mánuðinum var þurrviðrasamt og kalt. Snjó tók lítið upp og var enn talsverður í
lok mánaðarins.
Dagana 1.-9. voru norðlægar áttir ríkjandi og fremur kalt. Þ. 1. var víðáttumikil lægð skammt
suðaustur af landinu á hreyfingu norður með norðvestan hvassviðri og snjókomu um norðan- og
vestanvert landið. Að kvöldi þ. 2. gekk norðvestanáttin niður og létti víða til.
Aðfaranótt þ. 3. fór kröpp lægð austur með suðurströndinni og gerði hvassa austanátt með
snjókomu sunnan og vestan til á landinu um tíma en síðdegis snerist vindur til norðausturs og síðar
norðurs og var vonskuveður á Austurlandi og Austíjörðum. Lægðin þokaðist norður með
austurströndinni og síðar vestur með norðurströndinni þ. 4. og var mjög hvasst og snjókoma vestan
til á landinu ffam eftir nóttu en heldur dró úr veðurhæðinni að morgni þ. 5. er lægðin grynntist og
þokaðist austur. Dagana 5. - 7. var fremur róleg norðanátt og víða léttskýjað um sunnanvert landið
en él fyrir norðan. Að morgni þ. 8. herti norðanáttina og éljagangurinn norðanlands jókst en
síðdegis þ. 9. lægði og létti til á öllu landinu.
Aðfaranótt þ. 10. hlýnaði um leið og þykknaði upp með vaxandi suðaustanátt. Lægð var á
sunnanverðu Grænlandshafi og rigndi í öllum landshlutum þegar úrkomusvæði þokaðist norðaustur
yfir landið. í kjölfarið fylgdi hæg suðvestlæg átt og skúrir eða slydduél um sunnan- og vestanvert
landið. Aðfaranótt þ. 12. snerist vindur til vesturs og síðar norðvesturs með éljagangj um norðan-
og vestanvert landið en næstu nótt lægði.
Dagarnir 13. og 14. voru hlýjastir að tiltölu í mánuðinum. Lægð var á suðvestanverðu
Grænlandshafi og var stíf sunnan- og suðaustanátt með rigningu vestan til á landinu en úrkomulítið
var austan til nema við suðausturströndina þar var súld. Þ. 15. var vestanátt á landinu og skúrir eða
slydduél vestan til en bjart austan til. Þ.16. og 17. varhægbreytilegeðavestlægáttog víða léttskýjað
nema við vesturströndina þar var skýjað og súld þ. 17.
Tímabilið 18. - 29. var fremur kalt og norðaustlægar áttir ríkjandi. Hæð var yfir Austur-Grænlandi
og lægðir fóru norðaustur milli íslands og Bretlandseyja.
Að morgni þ. 18. var lægðardrag við suðausturströndina að þokast austur og var hæg norðaustlæg
áttog dálítil slydda eða snjókoma norðan til á landinu. Þ. 19. herti norðaustanáttinaog éljagangurinn
jókst norðan og austan til en á Suðvesturlandi létti til. Um nóttina lægði og létti til í öllum
landshlutum. Dagana 20. - 22. var fremur hæg norðaustlæg átt og úrkomulítið nema á annesjum
norðanlands og við norðausturströndina þar voru él. Fyrri hluta dags þ. 23. varð vindátt ausdægari
þegar víðáttumikil lægð suður í hafi þokaðist norður og hvessti um tíma syðst á landinu. Síðdegis
létti til um allt land. Dagana 24. - 26. var lægðardrag skammt suðaustur af landinu og var
strekkingsvindur og él einkum á austan- og norðaustanverðu landinu. Þ. 27. var vindátt norðlæg
og síðar norðvestlæg um leið og lægðardragið þokaðist norður og jókst éljagangurinn á
norðvestanverðu landinu. Þ. 28. þokaðist hæðin austur og var yfir landinu þ. 29. og fram eftir degi
þ. 30., létti þá til um allt land. Undir kvöld þ. 30. þykknaði upp með vaxandi suðaustanátt þegar
lægð nálgaðist landið úr suðvestri.
(25)