Veðráttan - 01.09.1994, Page 1
ISSN 0258-3836
VEÐRÁTTAN 1994
MÁNAÐARYFIRLIT SAMIÐ Á VEÐURSTOFU ÍSLANDS
September
Tíðarfarið í mánuðinum var talið gott um allt land. Hægviðrasamt var og þurrt einkum
norðanlands. Kartöfluuppskera var talin í meðallagi nema allra syðst þar sem hún var í lakara lagi.
í fyrstu viku mánaðarins var fremur mild veðrátta, suðaustlægar áttir og vætusamt um sunnan-
og vestanvert landið. Hægfara lægð var á Grænlandshafi og stíf suðaustanátt og rigning um allt
land þ. 1. Þ. 2. var úrkomusvæði yfir Austfjörðum en annars var hæg suðlæg átt og víða léttskýjað
norðanlands en smáskúrir annars staðar. Aðfaranótt þ. 4. nálgaðist lægð landið úr suðvestri og var
hvöss austanátt og rigning syðst á landinu um tíma. Dagana 5. - 6. var austan og suðaustan strekkingur
á landinu, skýjað og víða rigning eða súld einkum sunnan- og vestanlands. Þ. 7. og 8. var hægari
austanátt og heldur bjartara um vestanvert landið en súld og þoka með ströndinni austan- og
norðaustanlands.
Þ. 9. snerist vindur smám saman til norðausturs og kólnaði. Næstu daga var fremur hægur
vindur og dálítil súld eða rigning við austur- og norðurströndina en bjart veður sunnan- og vestanlands
þar til síðdegis þ. 11. að smálægð myndaðist suður af landinu. Slydda og rigning var allra syðst þ.
12. en á norðanverðu landinu lægði og létti til. Dagana 13. -16. var hæðarhryggur að þokast austur
yfir landið og var hæg breytileg eða vestlæg átt og bjart veður á landinu.
Þ. 17. kom lægð inn á Grænlandshaf og fór að rigna frá henni með suðaustan kalda á Suður- og
Vesturlandi síðdegis en úrkomulítið var í öðrum landshlutum. Þ. 18. þokaðist lægðin norðaustur
og grynntist og var víða súld eða rigning. Þ. 19. var hæg norðlæg átt og rigning norðanlands en
létti heldur til sunnanlands. Aðfaranótt þ. 20. lægði og létti til um allt land þegar dálítill hæðarhryggur
þokaðist austur Yfír það en undir hádegi þykknaði upp með hægt vaxandi suðaustanátt og fór að
rigna um leið og lægð kom inn á Grænlandshaf. Dagana 21. - 22. var lægð fyrir vestan- og suðvestan
land og stíf suðvestanátt á landinu með skúrum suðvestanlands en léttskýjað var víða í öðrum
landshlutum. Þ. 23. þokaðist lægðin austur og var norðlæg átt og fremur kalt næstu nótt. Þ. 24.
myndaðist lægð á vestanverðu Grænlandshafi og þokaðist hún austur yftr land. Rigning var í
flestum landshlutum og slydda til fjalla en ffemur hægur vindur.
Síðdegis þ. 25. snerist til norðanáttar með kalsarigningu og slyddu norðanlands en létti heldur
til syðra.
Þ. 27. kólnaði og dró úr norðanáttinni og létti víða til nema við norðaustur- og austurströndina
þar var áfram norðan strekkingur og él. Dagana 28.-30. var háþrýstisvæði yfir Norðaustur-Grænlandi
og hæðarhryggur suður um ísland og var hæg breytileg átt, kalt og víðast hvar léttskýjað á landinu.
Loftvægi var 3,9 mb yfir meðallagi áranna 1931-1960, ffá 3,5 mb yfir því á Dt að 4,2 mb í Sth
og Vm. Lægst stóð loftvog, 974,4 mb, á Rkn þ. 4. kl 18 og hæst, 1026,8 mb, í Kvk þ.15. kl 21.
Vindáttir milli suðurs og vesturs voru algengastar í mánuðinum og þar af var suðvestanáttin
tíðust. Aðrar vindáttir voru heldur fátíðari en venja er.
Veðurhæð náði hvergi 12 vindstigum í mánuðinum.
(65)