Vísbending - 04.12.1992, Blaðsíða 1
ISBENDING
rit um viðskipti og efnahagsmál
4.
desember
1992
48. tbl. 10. árg.
Spár um
hagþróun á
næstunni
Nýjustu efnahagsaðgerðir stjórnvalda
rýra kaupmátt almennings, en hann hefur
raunar minnkað talsvert undanfarin ár.
Svo gæti farið að kaupmáttur
ráðstöfunartekna á mann yrði 18-20%
minni á næsta ári en 1987. Mikill
uppgangur var á árunum 1985-1987,
vaxandi afli og hækkandi fiskverð
erlendis. Halli á ríkisrekstri ýtti enn
undir þensluna. Ráðstöfunartekjur á
mann jukust um tæp 50% 1984-1987.
Síðan 1987 hefur afli minnkað og
landsframleiðsla nánast staðið í stað.
Fólki fjölgar um 0,5-2% á ári, þannig að
hver og einn ber minna úr býtum en
áður. Þá hefur skattheimta aukist mikið
og ráðstöfunarfé almennings minnkað
afþeimsökum. Amótikemuraðfélags-
leg þjónusta eykst, þannig að
ráðstöfunartekjur segja ekki alla söguna.
Þó er enginn vafi á því að lífskjör hafa
verið á niðurleið undanfarin ár. Þenslan
semhérvarfyrirnokkrumárumerhorfin
og í stað hennar komið atvinnuleysi. Á
hinn bóginn hefur verðbólga minnkað
mikið. Horfur eru á að samdrátturinn
haldi áfram. Hér á eftir má sjá vanga-
veltur um þróun helstu hagstærða næsta
árið.
Spá í haust: Minni fram-
leiðsla og atvinna
Áður en gengi krónunnar var fellt
spáði Þjóðhagsstofnun að lands-
framleiðsla myndi minnka um 0,6% frá
• Hagspár
• Iðnaður og auglýsingar
• Hlutabréf
1992 til 1993. Spáð var nokkru meiri
samdrætti þjóðartekna vegna lækkandi
fiskverðs á erlendum mörkuðum.
Stofnunin taldi að verðbólga myndi enn
lækka frá því sem verið hefur. Aðeins
var spáð 2% hækkun verðlags frá árinu
sem er að líða. Þar skipti miklu að ekki
var búist við launahækkunum á næsta
ári, en raunar gerir stofnunin sjaldan ráð
fyrir mikilli hækkun launa í spám sínum.
Því var spáð að skráð atvinnuleysi ykist
úr tæpum 3% 1992 í um 3,5% á næsta
ári, en nú er viðurkennt að sú spá hafi
verið í bjartsýnni kantinum. Aðrir hafa
nefnt mun hærri atvinnuleysistölur.
Atvinnuleysi hefur lengstum verið afar
lítið hér á landi og því torvelt að spá því
Þróun hagstærða undanfarin ár og spár um 1993
(á myndunum sést spá Vísbendingar fyrir 1993)
Landsframleiðsla
1980=100
1 83 85 87 89 91 93
Viðskiptajöfnuður
% landsframleiðslu
81 83 85 87 89 91 93
Verg landsframleiðsla
breyting frá fyrra ári á föstu verði
Spá Þjóðhagsstofnunar
fyrir aðgerðir eftir
1990 1991 1992 1993
0,4% 1,5% -2,7% -0,6% -1,4%
Kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann
Spá Þjóðhagsstofnunar
fyrir aðg. eftir
1990 1991 1992 1993
-4,6% 2,0% -2,7% -0,8% -4,4%
Viðskiptajöfnuður
% af vergri landsframleiðslu
Spá Þjóðhagsstofnunar
1990
-2,2%
1991
-5,0%
1992
-3,3%
fyrir aðg.
1993
-3,1%
eftir
-2,1%
Verðbólga
frá fyrra ári
1990
14,8%
1991
6,8%
1992
4,0%
Spá Þjóðhagsstofnunar
fyrir aðg. eftir
1993
2,0% 4,5%
Spá
Vísb.
-0,5%
Spá
Vísb.
-2,8%
Spá
Vísb.
-2,5%
Spá
Vísb.
4,0%
Kaupmáttur
ráðstöfunartekna
81 83 85 87 89 91 93
Verðbólga
frá fyrra ári