Vísbending - 29.02.1996, Side 1
ISBENDING
29.
febrúar
1996
Viku
rit um viðskipti og
efnahagsmál
9. tbl. 14. árg.
Einkavæðing: Hvað á að ganga langt?
s
Aundanförnum árum hefur
nokkuð verið selt af fyrir-
tækjum í eigu ríkisins.
Jafnframt hefur ríkið selt aðrar eignir,
t.d. jarðir, húseignirog áhöld. Vegnaþess
að í nær 60 ár hafði verið einstefna í hina
áttina, þ.e. ríkið hafði stöðugt aukið um-
svif sín, þá er ekki óeðlilegt að mörgurn
þyki mikið að gert nú þegar. Engu að
síður á ríkið enn í dag meiri eignir en
nokkur annar innlendur aðili. Eignir hins
opinbera má reikna í hundruðum
milljarða. Af nógu er því að taka ef ríkið
vill selja. En vandinn erekki sá að „há-
karlar“ gíni yfir öllum eignum ríkissjóðs
og vilji gleypa. Þvert á móti kærirenginn
sig um margar þeirra.
Á ríkið rusl?
Ríkið á hundruð jarða. Þar sem bú-
skapur hefur ekki reynst mjög arðbær á
undanförnum áratugum skyldi maður
ætla að ráðamenn væru áfjáðirí að losna
við einhverjar spildur. Það er þó öðru
nær. Menn, sem vilja kaupa jarðir finna
hvern þröskuldinn öðrum hærri. Þá
sjaldan ríkinu tekst að losa sig úr eigin
hömlum og selja einhverja skika þá
keppast menn við að segja að allt of lágt
verð hafi fengist fyrir.
Mjög margar eignir ríkisins eru í raun
verðlausar vegna þess að engir vilja
kaupa. A markaði framboðs og eftir-
spurnar eru hrjóstrugar eyðijarðir oft lítils
virði. Samagildir umfyrirtæki semrekin
eru með tapi ár eftir ár. Virði þeirra eigna
er stundum ntinna en ekki neitt því ríkið
þarf að leggja fram meðlag á hverju ári.
Stundum má hækka verðmætið með því
að hætta rekstri og selja eignirnar sem að
baki standa.
Er arður af eignum hins
opinbera?
Vísbending hefur ekki handbært mat á
opinberum eignum, en segjum að þær
nerni um 500 milljörðum króna. Arður,
sem næmi 5%, gæfi 25 milljarða á ári.
Það væri góð búbót fyrir rislftil fjárlög og
rekstrarreikninga bæj arfélaga að fá þessa
upphæð, en hún er miklu hærri en arð- og
vaxtatekjur eru nú. Fjárlagagatið erfjórir
milljarðarkróna. Ef ríkið seldi eignir, þó
ekki væri nema fyrir um fimm milljarða
á ári þá myndi það samt geta haldið áfranr
sölu á eignum í áratugi. Þannig er ríkinu
í raun ekkert að vanbúnaði að loka fjár-
lagagatinu. Vandinn er hins vegar sá að
finnakaupandaaðeignunum. Hverhefur
bolmagn til þess að kaupa Landsvirkjun,
Póst og síma, Búnaðarbankann, Járn-
blendið eða Aburðarverksmiðjuna?
Enginn einn aðili gæti keypt þessar eignir
á einu bretti, en sjálfsagt væri hægt að
selja þær í áföngum með skipulegri
áætlun. Og það er einmitt mjög brýnt að
selja sunr þessi fyrirtæki. Ef stækka á
Járnblendiverksmiðjuna þá er miklu eðli-
legra að ákvörðun sé tekin um slíkt af
einkaaðila sem hefur eingöngu arðsemis-
sjónarmið r huga en ríkinu, sem nýlega
er sloppið úr björgunarleiðangri vegna
verksmiðjunnar.
Af ofangreindum fyrirtækjum hefur
aðeins Póstur og sími greitt arð reglu-
lega til ríkisins á undanförnunr árum, þótt
sum þeirra, og kannski öll, hafi greitt
skatta. Ríkið á að gera sömu arðsemis-
kröfur til sinna fyrirtækja og aðrir fjár-
magnseigendur. Þeim mun meira sem
eignir ríkisins gefa af sér, þeim mun
minna þurfa þegnarnir að greiða í skatta.
Sumar eignir eru þess eðlis að arður af
þeirn verður ekki mældur á sama hátt og
hjá fyrirtæki. Þar má nefna ýmis mann-
virki, til dæmisumferðarljóseðaholræsi.
Hins vegar má t.d. meta arðsemi vega og
hafna með því að mæla umferðarþunga
og uppskipun. Þannig ætla ntenn að reka
Hvalfjarðargöng með vegartolli vegfar-
enda. Um göngin verður rekið sérstakt
fyrirtæki, sem kunnugt er. Allt mælir með
því að fjárhagslegt mat verði tekið upp á
sem flestum sviðum þar sem því verður
við komið, því á þann hátt er líklegra að
ákvarðanir um fjárfestingar verði skyn-
samlegri en ella.
Hvers vegna á ríkið að
seljaeignir?
Spurningin er réttmæt, en við henni
eru rnörg góð svör:
a) Ríkið hefur beinar tekjur af
sölunni og getur notað þær til þess að
greiða upp skuldir.
b) Ríkið kemur sér frá kostnaði, til
dæmis við viðhald eigna eða meðgjöf
með rekstri. Frægt dæmi um hið síðar-
nefnda er rekstur Alafoss um árabil.
c) Reynslan bendir til þess að
kostnaður fyrir neytendur við þjónustu
sé minni hjá einkaaðilum en ríki. Utboð
að ýmsu tagi þar sem áður var ríkisrekstur
(t.d. hjá Vegagerð) styðja þetla.
d) Hjá ríkinu ber enginn ábyrgð á
neinu. Afskril'tir á 60 til 70 milljörðum
króna hjá sjóðum og innlánsstofnunum
hafa ekki kallað á eina einustu afsögn
eða afsökun.
e) Kjör starfsmanna hjá einkafyrir-
tækjum eru yfirleitt betri en hjá ríkinu.
Fyrir nokki'um árum kepptust opinberir
starfsmenn við að krefjast sambærilegra
kjara og gilda á frjálsum markaði.
f) Ríkið á ekki að vasast í málum
sem einkaaðilar geta sinnt.
Allar þessar ástæður eru gildar, þótt
auðvitað megi deila um að hve miklu leyti
þær eigi við í h verj u til viki um sig. Einka-
aðilar eru j afn misjafnir og þeir eru margir
og alls ekki allir jafnhæfir til rekstrar.
Meginkosturinn við einkaeign er sá að
þar eru menn að sýsla með eigið fé og eru
lfklegri til þess að fara vel með það en
eigur annarra. Hins vegar getur hver og
einn horft í eigin barm (eða bílskúrs-
geymslu) til þess að kanna hvort hann
hafi alltaf farið vel með peningana.
Ríkið á eleki að láta staðar numið við
það að selja eignir heldur á það að færa
rekstur þein'a stofnana sem það á áfrarn
til einkaaðila. Meðal stofnana sem geta
haldið áfram að rækj a hlutverk sitt í einka-
rekstri og jafnvel betur en nú er eru: Hag-
stofan, Byggðastofnun, Þjóðhagsstofnun,
Seðlabankinn, Flugmálastjórn, Há-
skólinn og Landspítalinn. Ríkiðyrði enn
um sinn helsti kaupandi þjónustu al’
þessum aðilum. Verkefnin væru hins
vegar falin einkaaðilum, sem myndu
vinna þau betur og ódýrar, rétt eins og
verktakar leggja nú vegi og srníða brýr
ódýrar en Vegagerðin gerði áður.
Efni blaðsins
I forsíðugrein er fjallað um þá
spurningu hve langl ríkið geti gengið í
einkavæðingu. Vísbending kemst að því
að áratugir séu í að ríkið hafi gengið
alla leið, jafnvel þótt það keppist við.
Markús Möller, hagfræðingur, fjallar
um veiðileyfagjald í sjávarútvegi.
Þeir Armann Þorvaldsson og Hreiðar
Már Sigurðsson fjalla um nýtt tœki við
fjármálastjórnun, fólgna framvirka
samninga og skýra þá með dæmi miðað
yvið núverandi víxilvexti.__________