Vísbending - 29.02.1996, Side 2
V
ISBENDING
Fyrirkomulag
veiðileyfagjalds
Markús Möller
—
umræðunni um fiskveiðistjórnun
og úthlutun aflaheimilda hefur
verið undan því kvartað, að for-
mælendur veiðileyfagjalds hafi ekki lagt
fram útfærðar tillögur að framkvæmd
þess. Það er að vísu ofsagt, en engu að
síður er þessari grein ætlað að bregðast
við slíkum umkvörtunum. Henni er hins
vegar ekki ætlað að vera einhver stóri-
sannleikur eða síðasta orðið í umræðunni,
og rétt er að taka fram að ekkert er fjallað
um mismunandi kosti í veiðistjórnun.
Þótt gengið sé út frá núverandi aflamarks-
kerfi, er einfalt að útfæra þessar hug-
myndir t.d. miðað við sóknarkvóta. Ekki
er heldur tekin afstaða til hvort setja ætti
hluta af heildarafla til hliðar vegna áfram-
haldandi krókaleyfisveiða. Það væri þó
einfalt mál ef ástæða þætti til.
Það sem tryggja þarf
Það er varla umdeilt að fiskistofnarnir
við Island eru undirstaða þeirra lífskjara
sem tekist hefur að byggja upp í landinu.
Sérílagieru þeirgrundvöllurviðkvæmra
byggða víða um land. Því er að vonum að
gerðar séu miklar kröfur til þeirra reglna
sem gilda eiga um meðferð fiski-
stofnanna. Eftirfarandi listi er varla
tæmandi, en nægilega vandasamt yrði
þó að uppfylla þau skilyrði sem þar eru
talin:
1) Að tryggja eftir föngum að þjóðin
öll njóti arðsins af fiskistofnunum og að
lífskjör almennings verði sem best.
2) Að skila auðlindum landsins til
komandi kynslóða, þannig að þær hafi af
þeim hag með sama hætti og núlifandi
Islendingar eiga kost á .
3) Að aðlögun að breyttu fyrirkomu-
lagi geti farið fram án harmkvæla fyrir
einstaklinga, byggðir og fyrirtæki sem
eru sérstaklega háð sjávarútvegi.
4) Að arðsemi auðlindanna sé sem
mest, þ.e. að sem mest verðmæti verði
framleidd með sem minnstum til-
kostnaði.
Augljóst er að fjórða atriðið, hámarks-
arðsemi, er forsenda fyrir að almennar
tekjur verði í hámarki, að því tilskyldu
þó, að ekki séu árekslrar milli arðsemi
og almennrar dreifingar auðlindaarðsins.
Sá árekstur virðist ekki vera fyrir hendi.
Það er hins vegar einsætt að hámarks-
arðsemi fiskistofnannanæstekki án þess
að sjávarútvegsfyrirtæki njóti eðlilegra
starfsskilyrða og fé sem lagt er í sjávar-
útveg hafi sömu ávöxtunarskilyrði og
annað fjármagn.
Vandséð er að núverandi fyrirkomu-
lag á meðferð veiðiréttar standist þær
kröfur sem hér eru taldar. Til þess að
kvótalausir landsmenn njóti góðs af fiski-
stofnum í einkaeign þurfa óbeinar tekjur
þeirra í eigin launum og skattgreiðslum
frá sjávarútvegi að vera verulegar. A því
eru sáralitlar líkur.
Miklu líklegra er að beina gjaldtöku
þurfi til að almenn lífskjör verði sem best.
Það erfyrirkomulag slíkrar gjaldtöku sem
hér er fjallað um. Fitjað er upp á því sem
kalla mætti skarað uppboð til langs tíma
með eftirágreiðslum og afurðaverðs-
tengingu. Gert er ráð fyrir tiltölulega
skammri aðlögun fyrir útgerðir en lengri
umþóttunartíma fyrir útvegsbyggðir.
Almennt útboðskerfi
Grunneining eignarhaldsins yrði hin
sama og nú er, hlutfall af tilteknum
heildarafla í tiltekinni fisktegund, en gert
er ráð fyrir að heildarafli yrði ákveðinn á
svipaðan hátt og nú. Núverandi hand-
hafar kvóta myndu hafa hann endur-
gjaldslaust t.d. í 4 ár. Á fimmta ári hæfist
aðlögun að framtíðarfyrirkomulagi og þá
yrðu 2/8 af heildarkvótanum leknir af fyrri
handhöfum, 1/8 boðinn út til 8 ára og 1/
8 boðinn út til eins árs. Tilgangur skamm-
tímaútboðsins er að tryggja nægt fram-
boð á veiðirétti til skamms tíma meðan á
breytingum stendur. Á árum 6-11 yrði 1/
8 af heildarkvóta boðinn út árlega,
ókeypis kvóti fyrri handhafa minnkaður
að sama skapi og skammtímakvótinn
leigður á ný. Á tólfta ári yrði skamm-
tímakvótinn loks boðinn út til átta ára. Á
hverj u ári þaðan í frá y rði 1 /8 hluti heildar-
kvótans boðinn út á ný. Kvóti yrði fram-
seljanlegur innan útboðstímans eftir
svipuðum reglum og gilda almennt um
leigusamninga. Átta ára taktur er hér
valinn til samræmis við líklega endingu
skipa. Með slíkum útboðstakti yrði
áætlanagerð auðveld að því leyti að af-
komuhorfur skips gætu legið tiltölulega
ljósar fyrir þegar ráðist væri í smíði eða
meiri háttar endurbætur. Auðvelt er að
gera sér í hugarlund aðra tímaviðmiðun,
og hægt væri að slá varnagla vegna þess
heildarafla sem útgerðin fengi án endur-
gjalds: Ef afturkippur kæmi í upp-
byggingu fiskistofna, væri hægt að veita
lengri umþóttunartíma sem því svaraði.
Tilboð í veiðirétt
Tilboð í veiðirétl myndi liltakategund
afla, hlutfall af heildarafla viðkomandi
tegundar og greiðsl u fyrir h vert veitt kíló,
sem greiða skyldi innan hæfilegra tíma-
marka eftir að afla væri landað. Til að
draga úr áhættu af verðsveiflum mætti
tengja tilboðin hæfilegum afurðaverðs-
vísitölum, olíuverði og jafnvel afla-
magninu sem úthlutað væri á hverjum
tíma. Þannig mætti til dæmis bjóða 30
kr/kg fyrir 2% af heildarafla í þorski í 8
ár, með 0,8% hækkun eða lækkun krónu-
tölunnar fyrir hvert 1 % sem verð á 5 punda
pakkningu af þorskflökum viki frá 2,5
dölum á pund og 0,1% hækkun eða
lækkun fyrirhvert 1 % sem leyfilegurþor-
skafli viki frá 250 þúsund tonnum á ári
og með 0,2% lækkun fyrir hvert 1 % sem
verð á Norðursjávarhráolíu færi upp fyrir
20 dali á tunnu.
Tilgreina þyrfti í útboðsskilmálum
hverju sinni hvaða verðviðmiðanirmætti
nota og eins væri æskilegt að tilkynna
fyrirfram eftir hvaða reglum tilboð yrðu
borin saman. Ef einhverjum finnst þetta
flókið útboðsferli, er því til að svara, að
til þess að bjóða vitlega í varanlegan
kvóta í núgildandi kerfi þarf svipaða út-
reikninga eða flóknari, og áhættan er
meiri.
Tímabundinn byggðakvóti
Ljóst er að ýmis smærri sveitarfélög í
landinu eru svo háð fiskveiðum og
vinnslu, að byggðin og þar með verð-
mæti fasteigna stendur og fellur með
sjávarúlvegi. Ef þessi byggðarlög yrðu
varanlega undir í samkeppninni um veiði-
heimildir, eða ef útgerðarmenn í núver-
andi kerfi sæju hag sínum betur borgið
annars staðar, yrðu íbúðar- og fisk-
vinnsluhús á þessum stöðum verðlaus.
Eigendur þeirra myndu því tapa stórlega
áhagræðingu ísjávarútvegi. Utboðmeð
eftirágreiðslu er að vísu stórum áhættu-
minna fy rir þessa staði en núverandi kerfi.
Ef björgin tapast á nauðungaruppboði
þarf nú auk skips að kaupa kvóta sem
hæglega getur haft tvöfalt verðmæti á við
skipið, en ef kvóti fæst leigður með eftir-
ágreiðslu þarf einungis að fjármagna
skipið fyrirfram. Vert væri þó að tryggja
hag íbúa á viðkvæmum stöðum enn
frekar með því að bjóða tiltekinn hluta af
heildarafla út sérstaklega og binda útboð
hans því skilyrði að aflanum yrði landað
á lilteknum stað eða að hann l'æri þar að
minnsta kosti um hlöð áður en hann mætti
taka til vinnslu annars staðar. Hægt væri
að ganga enn lengra með því að áskilja
að aflinn væri unninn á löndunarstað. Á
því eru þó annmarkar. Eðlilegt væri að
hverbyggðfengi ey mamerktan hlut í hl ut-
falli við umfang vinnslu síðustu árin, en
þessi sérréttindi minnkuðu hlutfallslega
ef vinnufærum íbúum fækkaði.
Rétt er að taka fram að til lengri tíma
litið er óskynsamlegt að hvetja til búsetu
þar sem hún er dýr. Af þeirri ástæðu væri
skynsamlegt að setja tímamörk á þá
verndun sem hér er lýst. Til að nefna tölur,
mætti merkja fimmtung heildarafla eftir
byggðum og láta verndina standa í 30 ár
eftir að uppboðskerfið væri komið á að
fullu en síðan falla niður á tiltölulega
skömmum tíma. Hver sem vemdartíminn
2