Vísbending - 27.07.2001, Blaðsíða 1
V
V i k u
ISBENDING
rit um viðskipti og efnahagsmál
27. júlí 2001
29. tölublað
19.árgangur
G8 í Genúa
Ráðstefna átta efnuðustu iðnnkja
heims var haldin í Genúa á Ítalíu
20.-22. júlí síðastliðinn. Tilgang-
urinn féll í skuggann af skærum á milli
mótmælenda og ítölsku lögreglunnar.
Raðmótmæli
að virðist sem ófriðleg mótmæli séu
að verða fastur fylgifiskur alþjóð-
legra ráðstefna. Alþjóðaviðskipta-
stofnunin (WTO) hélt ráðstefnu í Seattle
í Bandaríkjunum í desember árið 1999
sem endaði með því að setja þurfti út-
göngubann í borginni. Efnahagsráð-
stefnan í Davos í Sviss í janúar árið
2000, fundur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
og Heimsbankans í Washington í apríl
og Prag í september og ráðstefna
Ameríkuþjóðanna í Quebec í Kanada í
apríl 2001 urðu einnig fyrir áhlaupum
mótmælenda sem enduðu með hand-
tökum, áverkum og gífurlegu tjóni.
Sennilega hafa alvarlegustu árekstrar
lögreglu og mótmælenda verið á ráð-
stefnu Evrópusambandsins í Gautaborg
í Svíþjóð í júní síðastliðnum en þeir
enduðu með því að sænska lögreglan
skaut að mótmælendum með þeim
afleiðingum að þrír særðust alvarlega.
Það varð þó ekki endirinn á þessum
harmleik því að áður en ráðstefna G8-
ríkjanna í Genúa var liðin undir lok lá
einn mótmælenda í valnum og fjöldinn
allur af fólki slasaðist illa í ry skingunum.
Áætla má út frá þeim tölum sem birtar
hafa verið um Seattle og Gautaborg að
heildarkostnaður vegna skemmda á
fyrrnefndum sjö ráðstefnum nemi um
15-20 milljónum Bandaríkjadala'.
Kostnaður vegna tapaðra viðskipta er
á bilinu 50-100 milljónir dala.
Tilgangslausar forvamir?
rátt fyrir harmleikinn í Genúa hafa
aldrei verið gerðar meiri ráðstafanir
vegna alþjóðlegrar ráðstefnu. Borgin
var meira eða minna innsigluð, sérstak-
lega miðborgin, þar sem einungis þeir
sem voru með sérstaka passa gátu farið
um og nær allar samgöngur lágu niðri á
meðan ráðstefnan stóð yfir. Um það bil
18 þúsund hermenn voru fluttir til borg-
arinnar og bæði sprengju- og eiturefna-
sérfræðingar. Eldflaugapöllum var
komið upp á flugvellinum til að tryggja
varnir gegn óleyfilegri flugumferð. Og
ráðstafanir voru gerðar til þess að flytja
alla aðila ráðstefnunnar í skip ef allt færi
í bál og brand.
Ófriðurinn lét ekki á sér standa þrátt
fyrir að ítölsk yfirvöld hafi sýnt ákveðna
fyrirhyggju og fordæmi með því að ræða
við og reyna að ná samkomulagi við
þau samtök sem líkleg voru til að standa
fyrir ólátum. Genúa varð eins og víg-
völlur á meðan ráðstefnan stóð yfir.
Skrílslæti mótmælenda
að hlýtur að vekja spurningar hvað
sé svo mikilvægt að það kosti allt
þetta umstang, bæði af hálfu ráðstefnu-
haldara og þeirra sent mótmæla. Þeir
síðamefndu eru mjög fjölbreyttur hópur
samtaka og fólks með ólík hagsmunamál,
umhverfismál, heilbrigðismál, skulda-
uppgjöf fátækra ríkja, lýðræði, innflytj-
endur og alþjóðavæðingu svo eitthvað
sé nefnt. Málstaður þeirra er misvel
ígrundaður, ýmist sprottinn upp af
djúpstæðri umhyggju fyrir samfélaginu
eða hatri. Mótmælendur mæta á alþjóða-
ráðstefnur til að vekja athygli á sínum
málstað, langflestir með friðsamlegum
hætti en fáeinir stjórnleysingjar með
skrílslátum. Oft virðist málstaðurinn
einungis tilefni til óláta frekar en að hafa
gildi í sjálfum sér. Leiðarahöfundur5wn-
day Times þann 22. júlí komst ágætlega
að orði þegar hann sagði að skrílslætin
gerðu álíka mikið fyrir málstað mótmæl-
enda og fótboltabullur gera fyrir fót-
boltann.
Málstaður sumra þessara hópa
hefur þó fengið athygli stjórnvalda, t.d.
niðurskurður skulda fátækra ríkja og
ýmis umhverfismál. Aðrir hafa vakið
athygli á því að þörf er á betri samskipt-
um og skilningi á milli yfirvalda og
almennings. En undirliggjandi samnefn-
ari virðist vera hræðslan við alþjóða-
væðingu og breytingar almennt. Kofi
Annan, yfirmaður Sameinuðu þjóð-
anna, benti á þetta í nýlegu viðtali þegar
hann sagði að vandamálið er að „stjóm-
málamenn verða að útskýra alþjóða-
væðingu betur“.
TilgangurG8
Fyrsti G8-fundurinn var haldinn árið
1975 og þá var tilgangurinn að fá
leiðtoga efnuðustu þjóðanna til þess
að ræða helstu vandamál heimsins í
afslöppuðu andrúmslofti. Ólíklegt er
hins vegar að andrúmsloftið sé mjög
afslappað þegar borgarastyrjöld geisar
fyrir utan skjaldborgina.
Hitt er þó alvarlegra að það virðist
vera einkenni þessara funda hversu
fátæklegt það samkomulag er sem þjóð-
imar komast að. Sumum finnst heldur
mikið skrafað en lítið aðhafst. Þeim
samþy kktum sem hafa verið gerðar hefur
heldur ekki verið fylgt vel eftir.
Rannsóknir frá Háskólanum í Tor-
onto í Kanada sem er sérstakur aka-
demískur rannsóknaraðili fyrir G8 hafa
sýnt að G8-ríkin framfy Igdu að meðaltali
einungis 37% af þeim samþykktum sem
gerðar voru á ráðstefnunum í Lyon
(1996), Denver (1997), Birmingham
(1998) og Köln (1999). Tilgangurinn
virðist heldur lítill þegar fátt er samþykkt
og minna en helmingur þess sem sam-
þykkt er verður nokkru sinni framkvæmt.
Þetta hefur hins vegar breyst mikið
á síðastliðnu ári þar sem rúmlega 80% af
þeim samþykktum sem gerðar voru í
Okinawa í Japan hafa komist til fram-
kvæmda. Það á þó enn eftir að koma í
ljós hvort framhald verði á slíkunt árangri.
Viðfangsefni ráðstefnunnar
rjú meginviðfangsefni ráðstefnunn-
ar í Genúa voru: 1) að draga úr fátækt,
2) alþjóðaunthverfismál og 3) að koma
í veg fyrir deilur.
Allt eru þetta mikilvæg mál sem þörf
er á að ræða um og finna leiðir til að
betrumbæta. G8-ríkin geta vissulega
verið leiðandi fyrir heimsbyggðina og
skýr ski 1 aboð frá þe i m, t. d. u m nti k i I væ gi
alþjóðaviðskipta og baráttunnar við
AIDS, eru líkleg til þess að fá aðrar þjóðir
(Framhald á síðu 4)
V G8-fundurinn í Genúa er ^Tpétur Öm Sigurðsson ^ skersigtöluvertúrísaman- m atvinnurekstri erlendis þar
I yfirstaðinn en fátt stendur ) restrarhagfræðingurfjallar 2 burði við árin á undan /| sem tjármunaeignin sem
X eftir nema blóð, tár og um útrás fslendinga árið hvað varðar beinar fjár- hlutfall af VLF hefur tvö-
brunnin bilflök.________________2000. Ljóst er að síðasta ár___festingar íslendinga í__________faldast frá árinu á undan.
1