Vísbending - 24.10.2003, Blaðsíða 2
ISBENDING
Álitaefni á íslenska hlutabréfamarkaðinum
Ágííst Einarsson
prófessor
Eftirlit og stjómun fyrirtækja á hluta-
bréfamarkaði markast m.a. af því
hversu samþjöppuð eignaraðildin
er. Víða eru fáir stórir hluthafar sem hafa
gagnkvæm eignatengsl í mörgum fyrir-
tækjum. Slíkeignaraðildhefurmikil áhrif
í stjórnun fyrirtækja og hefur einnig áhrif
á hlutabréfamarkað eins og t.d. rann-
sókn á spænska hlutabréfamarkaðinum
hefur sýnt. Slík samþjöppun er víða,
m.a. í fyrirtækjum á íslenska hlutabréfa-
markaðinum.
Fákeppni
Þótt íslenski hlutabréfamarkaðurinn
sé orðinn hlutfallslega mjög stór í
samanburði við önnur lönd eins og áður
hefur verið rakið (sjá grein höfundar
„Þróun hlutabréfaviðskipta á Islandi“ í
Vísbendingu 10. okt. 2003, 41. tbl.) eru
tiltölulega fá fyrirtæki á markaðinum hér
eða 52 í lok september 2003.
í mörgum mikilvægum atvinnugrein-
um á fslandi eru mjög fá fyrirtæki starf-
andi. Þannig eru einungis þrjú fyrirtæki
sem annast nær alla olíu- og bensínsölu,
þrjú fyrirtæki sem sjá um nær allar trygg-
ingar, tvö fyrirtæki sem annast mest af
sjóflutningum til og frá landinu og tvö
fyrirtæki sem annast nær allt reglu-
bundið farþegaflug til ogfrá íslandi. Ein
af ástæðunum fyrir því að svo fá fyrir-
tæki eru á markaði sem hefur mikinn
kaupmátt er sú að markaðurinn er lítill
með aðeins 285.000 manns og hann er
langt frá öðrurn löndum. Landsfram-
leiðsla á mann hérlendis á árinu 2002 var
28.800 $ á jafnvirðismælikvarða (PPP)
ogvaríslandí9. sæti af 30OECD-ríkjum.
í lok ágúst 2003 var síöasta olíufél-
agið (Skeljungur) tekið út af Kauphöll-
inni og stærsta verslunarfyrirtæki lands-
ins (Baugur), sem er jafnframt þriðja
stærsta fyrirtæki landsins árið 2002, var
skráð úr Kauphöllinni í júlí 2003 þar sem
eignaraðild var orðin það samþjöppuð.
Stærstufyrirtækin
Breytingin á stöðu fyrirtækja í Kaup-
höll íslands um þessar mundir sést
vel ef borin eru saman stærstu fyrirtækin
(21 fyrirtæki) undanfarin ár ntiðað við
veltu og skoðað hvort þau eru skráð á
Kauphöllinni eða ekki.
Eins og sést í töflu 1 voru 15 af 21
þessara stærstu fyrirtækja skráð í Kaup-
höllinni í árslok 2000,2001 og 2002. í lok
september 2003 eru einungis 11 þeirra
eftir. Ekki er mikil breyting milli áranna
á röð fyrirtækjanna.
Nokkrir hástökkvarar eru á meðal
þessara fyrirtækja. Þannig var Bakkavör
í 55. sæti í árslok 2000, í 37. sæti í árslok
2001 ogí 11.sæti íárslok2002. Kaupþing
var í 31. sæti í árslok 2000, í 19. sæti í
árslok 2001 og í 14. sæti í árslok 2002.
Olíufélögin lækka á listanum. Pharmaco
hækkar nokkuð, Kaupás og Landssím-
inn lækka, Samherji hækkar og lækkar
en flest fyrirtækjanna halda svipaðri
stöðu milli ára. Einungis eitt opinbert
fyrirtæki er á listanum, Landsvirkjun,
og eitt erlent fyrirtæki, Alcan, sem rekur
álverið í Straumsvík. Landspítali Islands
er ein stærsta rekstrareining landsins
með vel tu upp á 26 millj arða kr. árið 2002
sem hefði skilað 8. sæti í töflu 1 en venja
er að flokka spítalann ekki með í þessum
samanburði. Það bendir allt til þess að
Kauphöll Islands haldi áfram að dafna
enda eru mörg fyrirtæki hérlendis mjög
öflug.
Sjávarútvegskauphöll
Sjávarútvegur skiptir miklu máli í
íslensku hagkerfi. Framlag sjávar-
útvegs til landsframleiðslunnar var
12,5% árið 2001 auk þess sem sjávarút-
vegur skilar 40% af gjaldeyristekjum
þjóðarinnar. I upphafi hlutabréfavið-
skipta á Islandi skipti verslun með hluta-
bréf í sjávarútvegsfyrirtækjum miklu
máli. Hlutdeild sjávarútvegs í hluta-
bréfaviðskiptum hefur þó minnkað
undanfarin ár, sbr. mynd 1.
Árið 1997 voru sjávarútvegsfyrir-
tæki með 39% af markaðsvirði þeirra
félaga sem þá voru skráð í Kauphöll
íslands. Árið 2002 var þetta hlutfall
15,5%. Þótt vægi sjávarútvegs hafi
minnkað er sjávarútvegur umfangsmikill
á íslenska hlutabréfamarkaðinum miðað
við önnur lönd. Þess vegna hefur verið
rætt um að Kauphöll Islands markaðs-
setji sig á alþjóðavettvangi sem sjávar-
útvegskauphöll. I febrúar 2003 voru 17
sjávarútvegsfyrirtæki skráð í Kauphöll
Islands en 12 fyrirtæki í því landi sem
næst kom sem er Japan.
Talið er að um 85 fyrirtæki í sjávarút-
vegi séu skráð á hlutabréfamörkuðum í
heiminum þannig að um 20% þeirra eru
skráð á Islandi. Markaðsvirði skráðra
fyrirtækja í sjávarútvegi er hæst í Japan
en Island er í öðru sæti. Kauphöll Islands
er að kanna áhuga erlendra sjávarút-
vegsfyrirtækja á að skrá sig þar og margt
bendir til þess að hér sé um að ræða
vænlegt viðskiptatækifæri. Hugmynd-
inni hefur verið fylgt eftir á Alþingi en
höfundur þessarar greinar og Vilhjálmur
Egilsson, sem eru báðir fyrrverandi
alþingismenn, lögðu fram frumvarp til
laga um að setja á stofn alþjóðlega sjáv-
arútvegskauphöll á Islandi. Aukin þátt-
taka erlendra fjárfesta á íslenskum hluta-
bréfamarkaði er vænleg leið til að styrkja
markaðinn enn frekar.
Vaxtarbroddur
/
Island hefur allar forsendur til að verða
miðstöð fjármálaviðskipta í sjávar-
útvegi þar sem hér er umtalsverð sér-
þekking í sjávarútvegi og nær sú sér-
þekking ekki hvað síst til viðskipta með
hlutabréf í þessum geira. Þannig er
greining á ársreikningum og mat á
Tafla 1. Stœrstu fyrirtœki Islands frá árinu 2000 til 2003 eftir veltu og
staða þeirra í Kauphöllinni
2003 (30.9.) 2002 2001 2000
Félag Atvinnugrein Skráð Röð Skráð Röð Skráð Röð Skráð
SÍF Sjávarútvegur Já 1 Já 1 Já 1 Já
SH Sjávarútvegur Já 2 Já 2 Já 2 Já
Baugur Verslun og þjónusta Nei 3 Já 3 Já 5 Já
Flugleiðir Samgöngur Já 4 Já 4 Já 3 Já
íslandsbanki Fjármál og tryggingar Já 5 Já 5 Já 4 Já
Landsbankinn Fjármál og tryggingar Já 6 Já 6 Já 6 Já
Alcan Iðnaður og framleiðsla Nei 7 Nei 7 Nei 7 Nei
Eimskip Samgöngur Já 8 Já 10 Já 8 Já
Búnaðarbankinn Fiármál og tryggingar Já 9 Já 8 Já 13 Já
Atlanta Air Samgöngur Nei 10 Nei 9 Nei 11 Nei
Bakkavör Iðnaður og framleiðsla Já 11 Já 37 Já 55 Já
Pharmaco Lyfjagrein Já 12 Já 14 Já 18 Já
Landsíminn Upplýsingatækni Nei 13 Nei 11 Nei 9 Nei
Kaupþing Fjármál og tryggingar Já 14 Já 19 Já 31 Já
Olíufélagið Olíudreifing Nei 15 Já 13 Já 10 Já
Skeljungur Olíudreifíng Nei 16 Já 12 Já 12 Já
Samskip Samgöngur Nei 17 Nei 15 Nei 16 Nei
Landsvirkjun Iðnaður og framleiðsla Nei 18 Nei 18 Nei 17 Nei
Kaupás Verslun og þjónusta Nei 19 Nei 16 Nei 14 Nei
Samherji Sjávarútvegur Já 20 Já 17 Já 30 Já
Olís Olíudreifing Nei 21 Já 20 Já 15 Já
2