Vísbending - 16.06.2006, Page 1
V
V i k u
ISBENDING
rit um viðskipti og efnahagsmál
16. júní 2006
22. tölublað
24. árgangur
ISSN 1021-8483
Svartir dagar á hlutabréfamarkaði
Ekki blés byrlega á hlutabréfa-
mörkuðum framan af vikunni
12.-16. júní. Að kvöldi mið-
vikudags voru flestir markaðir við
eða nálægt lægsta gildi á árinu. A
fimmtudaginn réttu markaðirnir að-
eins úrkútnum. Islenski markaðurinn
var engin undantekning. Eftir mikla
siglingu í upphafi árs og bjartsýni
markaðsaðila fór vísitalan niður á við
jafnhratt og hún fór upp en nú hefur
hún sveiflast kringum gildið 5.500 í
tvo mánuði og því er hægt að segja
að jafnvægi hafi náðst í bili.
Island
Mynd 1: Úrvalsvísitalan íslenska frá I. /. til 15.6. 2005.
Heimild: Kauphöll Islands.
Ovíða hafa hlutabréf hækkað jafnmik-
ið í verði og hér á landi undanfarin
tvö ár og þeir sem átta sig á þvi hvern-
ig ávöxtun virkar sáu að slík hækkun
gat ekki endurtekið sig aftur og aftur.
Islenski markaðurinn hefurbrotið öll lög-
mál. Markaður sem vex um 60% á ári
tífaldast á fimm árum, hundraðfaldast
á tíu árum og þúsundfaldast á fimmtán
árum. Þó að vel hafi gengið á mörgum
sviðunr og vöxtur sumra fyrirtækja, eins
og til dæmis Kaupþings og Bakkavarar,
haft verið ævintýri líkastur þá eru engu
að síður engin dæmi urn að heill markað-
ur, þótt lítill sé, hafi vaxið með slíkum
hraða í langan tíma.
Ýmsar kenningar eru uppi um það
hvers vegna hlutabréfaverð á markaðin-
um hafi lækkað svo mikið sem raun ber
vitni. Avöxtun fyrri ára er að hluta til
borin uppi af stórum íjárfestum sem hafa,
með mikilli ásókn í hlutabréf, hækkað
verðiðmikið. Hækkunafþessu tagi hefur
að sjálfsögðu vakið athygli almennings
og í byrjun árs 2006 munu margir hafa
gerst Ijárfestar, oft með lánsfé. Þeir seni
tóku þá erlend lán hafa lent tvöfalt í því,
lánin hafa stórhækkað en eignin lækkað
í verði.
Segjurn að einhver hafi keypt hluta-
bréf fyrir 100 milljónir króna um rniðjan
febrúar og tekið 7 5 milljóna króna lán og
átt 25 milljónir í hlutabréfum fyrir. Hann
hefur svo sett öll hlutabréfin sem veð
fyrir láninu í erlendri mynt. Það hefur
nú hækkað i um 90 milljónir en bréfin
lækkað um 23% (ef þau fylgja vísitöl-
unni) og eru því 77 ntilljóna virði í dag.
Höfuðstóll hans hefur því lækkað úr því
að vera jákvæður um 25 milljónir í það
að vera neikvæður um 13 á örskömmum
tíma. Tapið er 38 milljónir og líkur eru á
því að lánið sé gjaldfallið. Fjölmargir
hafa lent í því að undanfömu að bank-
ar hafa gjaldfellt lán vegna þess að
tryggingar hafa rýmað. Getan til þess
að greiða hefur hins vegar rýmað á
sama tima og er jafnvel engin orðin,
eins og í dæminu hér að frarnan.
Þegar neikvæðar matsskýrslur
tóku að berast frá útlöndum veiktist
krónan, eins og allir vita, og í kjölfarið
minnkaði kaupgetan og gengið lækk-
aði. Gjaldfelling lána verður til þess
að margir neyðast til þess að selja
þó að aðstæður séu ekki hagstæðar
og gengið fellur enn. Til lengri tima
litið er engin ástæða til þess að ætla
að gengið haldi áfram að falla nema ef
verðbólgan heldur áfram af sama krafti
og undanfarið.
Útlönd
slenski markaðurinn er ekki sá eini
sem gengið hefur í gegnum áföll á yf-
irstandandi ári. A mynd 2 sést að margir
markaðir eru neikvæðir á árinu. Þó er
(Framhald á síðu 4)
r
I
Mynd 2: Avöxtun á hlutabréfamörkuðum árið 2006.
2 —CQ and 1 )ani ýsk iland
1
Ávöxtun frá
áramótum
Lækkun frá
hæsta gengi
t eirr urinn
A myndinni sést ávöxtun frá áramótum í prósentum og lœkkun frá hœstu
stöðu á árinu 2006.Heimildir: Kauphallir, útreikningar Visbendingar.
1
Hlutabréf hafa lækkað
í verði um heirn allan.
Hvergi hefur lækkunin
frá hæsta verði verið
meiri en hér á landi.
2
Halldór Ásgrímsson lét af
störfum forsætisráðherra
15. júní. Kaupmáttur hef-
ur aldrei verið meiri hér á
landi.
3
Hefur Evrópusambandið
staðist þær væntingar sem
menn gerðu til þess árið
1992? Ekki að öllu leyti.
4
Eiga ijölmiðlar að stinga
eins og býfluga út um allar
trissur eða eiga þeir fyrst og
fremst að segja fréttir?